Í miðju Landsdómsmálinu
þykir mér tvennt standa uppúr: blindni og
vanhæfi.
Það væri freistandi að
segja að allir hafi verið blindir og látið
glepjast og allir hafi verið vanhæfir i ljósi þess
að heimsmyndin sem búið var að byggja upp í
kringum gullkálfinn var byggð á sandi.
Nei. Flest allt af því sem
aflaga fór er afleiðing af því að
bankarnir héldu lánshæfismati sínu við
einkavæðinguna, bankarnir voru metnir sem væru þeir
enn ríkisbankar. Í raun skipti ekki máli hverjum
bankarnir voru seldir, fyrir hvaða verð eða hvort
yfirhöfuð hafi verið greitt fyrir þá. Sú
vitfirring sem nú er komið í ljós að
hafi grasserað í bönkunum hefði náð að
skjóta rótum, svo lengi sem lánveitendur, fullir af lausafé sem þurfti að koma í vinnu, höfðu
trú á þeim í krafti lánshæfismatsins
og veittu nánast ótakmarkað lánsfé.
Sú blindni sem geislar gullsins sló samfélagið
hefði  aldrei orðið, hefðu bankamennirnir þurft
að ávinna sér traust á hefðbundinn hátt,
hefðu þeir einfaldlega þurft að standa sig á
eigin verðleikum.
Hitt sem stendur upp úr í
mínum huga, en er þó ekki afgerandi, er opinberun vanhæfis
Davíðs Oddssonar sem Seðlabankastjóra. Farsæll stjórnmálaferill,
orðheppni, sjálfstraust, ákveðni og sterk nánd gerðu það
að verkum að samstarfsmenn hans virðast ekki hafa náð
að hemja hann, lögfræðinginn, við stjórn Seðlabankans.
Ef sakast ætti við Geir
Haarde fyrir nokkurn hlut, væri það að halda
hlífiskyldi yfir Davíð, en það er samt
ekki orsakavaldur hrunsins og getur seint verið refsivert, heldur varð það bara til að
auka áfall ríkissjóðs í hruninu vegna óskynsamlegra
ákvarðana sem engin virðist hafa þorað að
mótmæla, þ.e. Glitnisyfirtakan og Kaupingslánveitingin.
Svo er bara fyndið eða kannski
frekar hjákátlegt hversu allir þykjast nú
hafa séð hrunið fyrir í ljósi
aðgerðarleysis þeirra og áframhaldandi
lánveitinga.
Nú liggur fyrir að Alþingi mun taka afstöðu til þess hvort draga eigi ákæru á hendur Geir H Haarde til baka.
Verði ályktunin samþykkt og ákæran dregin til baka, mun það valda miklum viðbrögðum í samfélaginu, sagt verður að stjórnmálastéttin verndi sjálfa sig og ekki kæmi mér á óvart að mótmæli brytust út í framhaldinu. Staða Geirs og hinna ráðherrana sem til stóð að ákæra yrði algerlega í lausu lofti. Í raun var hann sviptur ærunni með því að ákæra hann, en það er erfitt að sjá að afturköllun ákærunnar muni gefa honum hana aftur.
Verði ályktunin felld, eru Alþingismenn komnir í athyglisverða stöðu, sérstaklega þeir sem skipt hafa um skoðun í málinu. Veltur það á því hvort Geir verður fundinn sekur eða verði sýkn saka.
Verði Geir sýknaður, verða þeir sem vildu ákæra ásakaðir um að hafa ástundað nornaveiðar. Það er reyndar svo stór hópur að það mun líklegast ekki hafa mikil áhrif á einstaka þingmenn. Hin þrjú sem undir voru í upphafi eru þá líklegast laus allra mála.
Verði Geir fundinn sekur eru þeir sem skipta um skoðun í verulega vondum málum sem og þeir sem greiddu atkvæði taktískt í upphafi, þeir Helgi Hjörvar og Skúli Helgason. Um leið verður staða Ingibjargar Sólrúnar, Árna Mathiesen og Björgvins G Sigurðssona afar afkáraleg. Þau hafa ekki getað svarað til saka, ekki varið sig, komið með málsbætur, en verða óhjákvæmilega dæmd um leið, í hugum fólks. Með réttu eða röngu.
Reyndar tel ég líklegast að Landsdómur mun telja Geir hafa sýnt vanrækslu, hann muni fá ákúrur fyrir vanrækslu. Hvort Landsdómur meti að hann hafi sýnt af sér refsivert athæfi veit ég ekki, tel það ólíklegt. Þar með verður dómurinn ekki til þess að setja niður né gera upp stjórnmálalegan hluta hrunsins, heldur enn eitt eldsneytið í umræðubálið og þau hin þrjú í rauninni í sömu eða svipaðri stöðu.
En vonin er kannski að Landsdómur komi með vel rökstuddan dóm, sem getur leiðbeint samfélaginu við að gera upp hina stjórnmálalegu hlið hrunsins, vel stutt rannsóknarskýrslu Alþingis.
Í þessu saltmáli mega menn ekki missa sjónar á aðalatriðum og enda á því að hengja bakara fyrir smið
Ábyrgðin er fyrst matvælafyrirtækjanna sem notuðu saltið.
Varan er greinilega merkt iðnaðarsalt, ef myndir sem birtar hafa verið í fjölmiðlum eru réttar, þannig að í móttökueftirliti matvælafyrirtækjanna ætti þetta að uppgötvast, hafi þeir sem pöntuðu fyrir viðkomandi fyrirtækis klikkað í innkaupum.
Ölgerðin ber fyrst ábyrgð, hafi hún afgreitt þetta salt sem annað en það sem það er. Þar hlýtur lýsing á reikningi að vera skýr. Merkingar vörunnar eru amk alveg skýrar, séu myndir sem birtar hafa verið í fjölmiðlum af viðkomandi vöru.
Eftirlitsaðilum er ekki ætlað að finna svona lagað. Þeim er ætlað að fylgjast með því að fyrirtækin hafi kerfi sem uppgötva svona lagað.
Ef umræðan spinnst upp í að menn fari fram á að eftirlitsaðilar nái að koma í veg fyrir svona lagað í sínu eftirliti, hvernig samfélag yrði það, hvaða heimildir þyrftu eftirlitaðilarnir að hafa, hversu marga starfsmenn þyrfti til að sinna því eftirliti og hversu mikið myndi það kosta?
Viljum við búa í samfélagi þar sem eftirlitsiðnaðurinn nær öllum svona málum?
Nei.
Sífellt og endalaust tönglast Jóhanna Sigurðardóttir á því að ekki hefði verið hægt að koma í veg fyrir hrunið eftir 2006.
Þetta er ekki rétt. Rannsóknarnefnd Alþingis segir:
"Þegar bankakerfið var orðið allt of stórt miðað við stærð íslensks hagkerfis þurftu stjórnvöld að bregðast við. Grípa hefði þurft til aðgerða í síðasta lagi á árinu 2006 til þess að eiga möguleika á að koma í veg fyrir fall bankanna án þess að það kæmi verulega niður á verðmæti eigna þeirra."
Þetta er það eina sem nefndin segir. Hún segir hvergi að því að ég best veit, að ekki hefði verið hægt að koma í veg fyrir hrunið eftir árið 2006.
Á þetta hengir Jóhanna sig á að ábyrgð hrunsins sé alfarið á höndum Sjálfstæðisflokks og Framsóknar. Engin rök hef ég heyrt frá henni. Bara þessa röngu fullyrðingu.
Á Íslandi er þingræði, sem byggir á þrískiptingu valds, löggjafar-, framkvæmda- og dómsvalds.
Gegnir hver afar mikilvægu hlutverki. Löggjafinn að móta stefnu í gegnum lagasetningu og aðrar ákvarðanir eins og þingsályktunartillögur, þám að ákvarða skatta og ákveða meðhöndlun opinbers fjár, sem framkvæmdavaldið svo framkvæmir samkvæmt laganna hljóðan. Ef upp kemur ágreiningur um túlkun laga sem löggjafinn setur, kemur svo til kasta dómstóla.
Sjálfstæði hvers hluta frá hinum er afar mikilvægt, enda ekki á annan betri hátt hægt að sporna gegn spillingu og gerræði ríkisvaldsins.
Það er það sem Gylfi Magnússon reyndi að gera í sínu svari, að halda sig við sitt hlutverk sem hluta framkvæmdavaldsins og halda sig frá því að gera eitthvað sem er dómsvaldsins.
Hann gerði það klaufalega, en fyrirspyrjandinn, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, sem kjörin er á löggjafarsamkomuna, virðist ekki bera gæfa til að virða þessa grundvallar hlutverkaskiptingu ríkisvaldsins, með því yfirhöfuð að spyrja ráðherra út í hugsanlegt lögmæti samninga milli aðila úti í bæ.
Í rauninni er verið að ýta undir og hvetja til gerræðis ráðherranna með því að ætla þeim að kveða upp þá úrskurði sem fyrirspyrjandinn óskaði eftir.
Það getur ekki vitað á gott.
Meðan meginþorri lána landsmanna er vísitölubundinn, verður að taka tillit til þess í öllum ákvörðunum í skattamálum.
Það virðist AGS ekki gera í sínum tillögum, ef marka má fréttir. Ef virkilega verður að auka tekjur ríkissjóðs, verður að gera það með þeim hætti að það hækki ekki vísitölu neysluverðs, því það myndi auka útgjöld heimilanna á tvo vegu, bæði beint og í gegnum afborganir vísitölutryggðra lána.
En það er ekki hægt að gagnrýna AGS fyrir að koma fram með tillögur sem stofnunin hefur fyrir það fyrsta verið beðin um af ríkisstjórninni sjálfri, heldur verður að líta á hin miklu ítök sem AGS virðist hafa á landsstjórninni, sem vitnisburð um það að ríkisstjórnin geti ekki stjórnað landinu. Til þess sé hún of sundurleit, kjarklaus og hugmyndasnauð.
Einhver verður að stjórna...
Efnahagshruni hefur í ýmsum löndum fylgt endurröðun í stjórnmálalífinu. Nærtækast er að nefna Ítalíu í því samhengi.
Með talsverðri einföldun má segja að í grunninn skiptist fólk í uþb fjórar fylkingar eftir lífsskoðunum. Sósíalistar og íhald eru á ytri væng stjórnmálanna en svo skiptist miðjufylgið, sem ekki fylgir kennisetningum sósíalismans og kapítalismans, í frjálslynt og stjórnlynt.
Í núverandi flokkakerfi skiptast þessi mengi milli margra flokka. Sjálfstæðisflokkurinn skiptist í íhald og frjálslyndan miðjuhóp. Framsókn í frjálslyndan og stjórnlyndan miðjuhóp og íhald. Samfylkingin er sambland af sósíalistum, frjálslyndum og stjórnlyndum miðjumönnum meðan að VG er blanda af sósíalistum og stjórnlyndum miðjumönnum.
Sérstök átakamál um málefni eða persónur skapa svo aukaflokka sem fylgja með og virðist vera pláss fyrir uþb einn í einu. Í dag er Hreyfingin þessi flokkur. Grænu málin náði VG að taka með sér innan flokks og endurinnleiða á dagskránna, eins og kvennalistinn innleiddi jafnréttismálin svo eftirminnilega og vel.
Af hverju þetta riðlast svona tel ég aðallega vera fólgið í tilviljunum. Afkomendur taka til starfa í stjórnmálaflokki "fjölskyldunnar", þótt lífsskoðanirnar séu aðrar. Einhver vinur eða félagi fer í framboð og nær vinahópnum, þótt sundurlyndur sé í stjórnmálaskoðunum, inn í flokkinn og svo framvegis. Þannig er fullt af fólki í "vitlausum" flokki sem aftur skapar fylkingamyndum og sundurlyndi innan flokkanna, sem dregur úr þeim allan kraft og pólítísk umræða verður ekki uppbyggjandi og skapandi hugmyndavinna, heldur niðurdrepandi átök um fordóma gagnvart öðrum fylkinginum innan flokkanna.
Afleiðing af þessu er að flokkarnir hafa fjarlægst sínar grundvallarstefnur, en sem samkvæmt grundvallarstefnusrkám skiptast í VG sósíalista, Samfylkinguna með stjórnlynda miðjumenn, Framsókn með frjálslynda miðjumenn og Sjálfstæðisflokkinn með hægrimennskuna.
Það hefur haft það í för með sér að flokkarnir hafa síðan um 1990 getað komist upp með að smíða sínar kosningastefnuskrár, ekki útfrá sínum grundvallarstefnumálum og stefnu settri af flokksþingum og landsfundum flokkanna, heldur útfrá taktískri greiningu á þjóðarpúlsi Gallup, þar sem allt snýst um að ná í væntanlega kjósendur. Áherslan á það sem þjóðinni er fyrir bestu hefur oft á tíðum átt í vök að verjast í þeim leik.
Á þann hátt hafa stjórnmálaflokkarnir vanrækt og svikið það hlutverk sitt að vera leiðandi í þjóðfélagsumræðu og mótun þess samfélags sem við lifum í.
Hvort nú sé hafin uppstokkun á þessu ástandi, þar sem lífsskoðunarhóparnir skipi sér rétt í flokka væri óskandi, en einhvernvegin held ég að límið í núverandi flokkum sé sterkara en svo að það gerist svona einn tveir og þrír.
En breytinga er þörf. Svo mikið er víst. Hvort sem það gerist undir núverandi nöfnum stjórnmálaflokkanna eða nýjum. Það má bara fá að koma í ljós.
Þótt ég sé einlægur fylgismaður þess að endurskoða þurfi stjórnarráðið og gera á því róttækar breytingar, mun róttækari en frumvarp forsætisráðherra mælir fyrir um, er ekki rétti tíminn til að gera slíkt nú.
Maður fer ekki í upptekt á vél í miðjum brimsjó.
Það er eitt aðalatriðið í allri áfallastjórnun að breyta ekki þeim ferlum og starfsháttum sem ekki þarf nauðsynlega að breyta, hversu vitlausir og óhagkvæmir sem þeir kunna að vera. Einbeiting embættismanna þjóðarinnar á að vera óskipt á því að koma þjóðarskútunni í var. Það á ekki að trufla þá með áhyggjum af eigin stöðu og breytingum á starfsumhverfi þeirra umfram það sem er algerlega bráðnauðsynlegt til að leysa þau mál sem fyrir liggja.
Að því loknu á að fara í breytingar, sem eru löngu tímabærar og hefðu fyrir löngu átt að vera komnar til framkvæmda
Innanflokksmál eins og þessi á ekki að ræða á opinberum vettvangi, en fyrst Guðni Ágústsson fv. formaður Framsóknarflokksin og Óskar Bergsson fv. borgarfulltrúi hans halda opinberlega fram furðulegum eftiráskýringum um valið á lista flokksins í Reykjavík, verður að leiðrétta það á sama vettvangi.
Óskar Bergsson, þá sitjandi borgarfulltrúi, var mjög áfram um að valið yrði á listann með lýðræðislegum hætti. Sú aðferð var ákveðin á kjördæmaþingi þar sem allir greiddu aðferðinni atkvæði, þar sem fram komu allir frestir og skilyrði.
Undirbúningur tillögunnar var í höndum stjórnar kjördæmasambandsins, einkum hans helsta trúnaðarmanns, formanns FR.
Öll þau sem höfðu hug á að taka sæti á listannum, söfnuðu eðlilega liði til að tryggja sér kosningu með lýðræðislegri aðferð. Það gerði Óskar Bergsson einnig, eðlilega.
Einar Skúlason hlaut góðan hljómgrunn og hlaut yfirburðakosningu. Einar fékk 62% atkvæða og Óskar 38%.
Þannig virkar lýðræðið og lýðræðisþroskinn felst ekki síst í því að taka niðurstöðunni, þótt hún sé ekki sú sem maður myndi helst vilja.
Óskar hefur um árabil verið einn ötulasti lýðræðistalsmaður Framsóknarflokksins, stundum skilgreindur í "órólegu deildinni" gegn "flokkseigendunum" og því er framganga hans og stuðningsmanna hans mér mikil vonbrigði.
En nú er ekkert annað að gera en að hlusta á skilaboð kjósenda, félagsmanna og trúnaðarmannna, taka mark á þeim og bæta vinnubrögðin, því hófsamur og yfirvegaður málflutningur öfgalauss stjórnmálaflokks eins og Framsóknarflokksins er það sem ég tel að sé best fallið til að reisa við íslenskt samfélag og stuðla að endursköpun þess sáttmála sem rofnaði á fyrstu árum þessarar aldar.
Í minni sveitarfélögum skipta þeir einstaklingar sem eru í framboði hverju sinni mikið meira máli en í stóru sveitarfélögunum. Þar ná frambjóðendur að kynna sig persónulega við hvern og einn, en í stóru sveitarfélögunum er það ekki hægt og því skiptir almenn ímynd miklu meira máli og þar með ímynd þess flokks sem þeir bjóða fram fyrir.
Í stærri sveitarfélögunum skiptir staða landsmála því miklu meira máli.
Á því er gagnrýni Guðmundar byggð, ef ég hef skilið hann rétt.
Ungir Húnvetningar verða að hafa það í huga og því dugar sú röksemd að vel hafi gengið á landsbyggðinni ekki.  Þeir verða að skjóta með augun opin fyrir því.
Heiðarleg málefnaleg gagnrýni er hluti af lýðræðinu og er ósk hinna ungu Húnvetninga því miður vitnisburður um gamla tíma, þar sem reykfyllt bakherbergi voru fastar innréttingar og menn eigi að biðjast afsökunar á skoðunum sínum.
Á síðasta flokksþingi Framsóknar var samþykkt að setja öllum sem starfa innan flokksins siðareglur.
Nefnd hefur kynnt drög að þeim og verða þær lagðar fyrir næsta flokksþing, sem haldið verður í vetur, til samþykktar.
Þannig að fordæmið er komið fyrir Samfylkinguna og er þeim örugglega meira en velkomið að taka þær reglur upp í sínu starfi, enda liggur umtalsverð vinna að baki þeim drögum sem fyrir liggja.
Sérstakur saksóknari fór fram á að gæsluvarðhaldsúrskurðir héraðsdóms og hæstaréttar yfir Kaupþingsmönnum væru ekki birtir, þar sem það gæti skaðað rannsóknina.
Hann gerir það varla að gamni sínu
Samt birta fjölmiðlar úrskurðina um leið og þeir komast yfir þá...!
Nú liggur fyrir yfirlýsing Jóhönnu Sigurðardóttur um að hún hafi ekki gefið loforð um launakjör seðlabankastjóra.
Það er þvert á yfirlýsingar Láru V Júlíusdóttur, fulltrúa Samfylkingarinnar í stjórn Seðlabankans, en hún er jafnframt formaður stjórnar.
Í mínum huga verður Lára að útskýra sitt mál og sama hvernig því er háttað er einsýnt að hún verður að segja af sér. Annaðhvort fer hún með ósannindi, sem ég tel afar ólíklegt, og ber því að segja af sér, eða að hún nýtur ekki lengur trausts ríkisstjórnarinnar, sem hefur ákveðið að skilja hana eftir úti í kuldanum og ber því þá auðvitað að segja af sér, rúin trausti.
Nú liggur fyrir að orð Seðlabankastjóra og formanns stjórnar Seðlabankans standa á móti orðum aðstoðarmanns forsætisráðherra, Hrannars B Arnarssonar.
Forsætisráðherra verður að koma fram og kveða upp úr með hver lofaði hverjum hverju.
Í framhaldinu þurfa annaðhvort formaður stjórnar Seðlabankans, þá ber að ósannsögli, eða aðstoðarmaður forsætisráðherra, þá ber að ósannsögli, að víkja.
Það er með ólíkindum, í ljósi þeirra digurbarkalegu yfirlýsinga sem núverandi stjórnarherrar höfðu um fyrri ríkisstjórnir, oft með réttu, að þetta skuli virkilega vera staða mála.
Að núverandi ríkisstjórn firrist við að verða við tilmælum GRECO, ríkjahóps Evrópuráðsins gegn spillingu sýnir að í þessum málaflokki, eins og öðrum virðast yfirlýsingar þeirra vera orðin tóm.
Engar efndir í þessu sem öðru.