Davíð sér sínum augum silfrið

Það er með ólíkindum að fylgjast með þeirri tækni sem Davíð Oddsson býr yfir til að snúa viðtölum og umræðum á þann hátt að það henti honum og hans sýn á hlutina taki yfirhöndina, eins og hann gerði í Kastljósviðtali kvöldsins.

Frá hans bæjardyrum séð, virðast allir í kringum hann vera fífl og fyrir færði hann sín rök.

En Davíð á eftir að svara því hví í veröldinni hann vék ekki fyrst honum var sýnt það vantraust að ekki var tekið mark á þeim varnaðarorðum sem hann segist hafa verið með.

En auðvitað á Davíð að fara úr Seðlabankanum til að skapa frið um starfsemi bankans, óháð því hvort það sé verðskuldað eða óverðskuldað að hann fari. Það er eins í þessu máli eins og í stjórnmálunum. Lífið er ekki endilega sanngjarnt...

En reyndar finnst mér skrítið að ríkisstjórnin skuli ekki víkja Davíð fyrir vanrækslu, því mér vitanlega hefur Seðlabankinn ekki gefið ríkisstjórninni skýrslu um hví verðbólgumarkmiðin hafi ekki náðst, né komið fram með tillögur til breytinga þannig að þau megi nást, samkvæmt gildandi peningamálastefnu:

"Stefnt er að því að verðbólgan verði að jafnaði sem næst verðbólgumarkmiðinu. Víki hún meira en 1½ prósentu í hvora átt ber Seðlabankanum að gera ríkisstjórninni opinberlega grein fyrir ástæðum þess og leiðum til úrbóta"


mbl.is Fjármagnsflutningar Kaupþings höfðu mikil áhrif á Bretana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

ég tek eftir að seðlabankastjóri vill ekkert muna forsætisráðherratíð sína...sem var löng?...stoltur?...hann setti þessar “reglur ” seðlabankans sjálfur (og lagði niður þjóðhagsstofnun).

Er allavega að hugsa um “Sauruman” í Hringadróttinssögu núna og bara veit (18 ára reynsla ) að mjög margir Íslendingar halda að “þetta sé” hálmstráið?

...so help me God!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 24.2.2009 kl. 21:09

2 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Leikhús fáránleikans - ísland í hnotskurn.

Arinbjörn Kúld, 24.2.2009 kl. 21:14

3 identicon

Davíð Oddson er pólitíkus og verður ekkert annað í augum annarra stjórnmálamanna og þjóðarinnar. Þetta gerir það að verkum að allt það sem Davíð segir verður lítið á með augum stjórnmálanna og véfengd sem slíkt.

Bara þetta gerir Davíð af óhæfum seðlabankastjóra. Því ríkisstjórnin og aðrir stjórnmálamenn verða að treysta því sem hann hefur að segja. En ekki efast um að einhverjir annarlegir hagsmunir hangi á spýtunni.

Eins ósanngjarnt og gömlum vígamanni eins og DO finnst þetta, eins og kom fram í viðtalinu í kvöld. Þá er það þessi efi um hvatir hans sem gera hann óhæfan í starfið. Því ég efa ekki að hann hafi unnið þar að heillindum.

Magnús Bjarnason (IP-tala skráð) 24.2.2009 kl. 21:18

4 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Gestur, Davíð virðist alltaf takast að dáleiða hálfa þjóðina.  Við skulum hafa í huga að þetta er sami maður og sagði um miðjan maí "að efnahagskreppan sem dunið hefur yfir þjóðina í kjölfar alþjóðlegu bankakreppunnar hafi ekki verið fyrirséð".

Marinó G. Njálsson, 24.2.2009 kl. 22:33

5 Smámynd: Jónas Egilsson

Dáleiða fulluyrðið þið. Spurt er á móti, hvað sagði hann efnislega - er það ekki málið.

Eftir stendur sýnist mér nýbakaður forsætisráðherra í nýju fötum keisarans - stefnumálum og efnahagspakka sem ekki eru til.

Reyndar verður fróðlegt að að heyra hliðar annarra á því sem gerðist.

Jónas Egilsson, 24.2.2009 kl. 23:45

6 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

"En Davíð á eftir að svara því hví í veröldinni hann vék ekki fyrst honum var sýnt það vantraust að ekki var tekið mark á þeim varnaðarorðum sem hann segist hafa verið með."

Nákvæmlega!

Davíð talar tungum tveim.

Georg P Sveinbjörnsson, 25.2.2009 kl. 00:57

7 Smámynd: Óttar Felix Hauksson

Þegar hinn 11. september í efnahagslífi Íslands átti sér stað í byrjun október 2008, þá vildi svo til að einn af forsvarsmönnum Moody's var staddur í sjónvarpssal beinnar útsendingar hjá fjármálasjónvarpsstöðinni CNBC Europe. Ég sat og horfði á hann í tölvunni hjá mér. Talið barst að íslensku krónunni og Seðlabanka Íslands. En í þessum hamförum náði íslenska krónan sennilega að falla mest allra gjaldmiðla án þess að viðkomandi seðlabanki gerði neitt til að stöðva fallið

Þetta er dálítið merkilegt. En hvað er svona merkilegt við þetta? Jú, talsmaður Moody's sagði það vera Seðlabanka Íslands til mikils hróss að hann freistaðist ekki til þess að grípa inn með stuðningsuppkaupum á krónu. Þessi maður frá Moody's vissi nefnilega vel að þetta er freisting sem hefur orðið mörgum gjaldeyrisforðanum að falli, því í hita augnabliksins er svo auðvelt að missa skynsemina og fara að ímynda sér að hægt sé að verja myntina gegn ofurkröftum. Endalaus röð af seðlabönkum heimsins hafa reynt þetta í erfiðum aðstæðum og er hausinn oftast blásinn af þeim og forðinn gufar upp


Ekki á þeirra vakt

En þetta gerðist bara ekki hjá Seðlabanka Íslands. Hausinn var ekki blásinn af Seðlabanka Íslands og gjaldeyrisforða þjóðarinnar var ekki eytt í halda uppi vonlausu gengi einungis hinum vonlausu til hjálpar

Þjóðin getur því þakkað hæfum mönnum Seðlabanka Íslands fyrir að hún á ennþá gjaldeyrisforða. Honum var ekki eytt til hjálpar hinum vonlausu. Hann var geymdur handa þjóðinni. Geymdur ef til harðinda kæmi og ef Ísland hefði þurft að halda út og þrauka eitt og yfirgefið í óvinveittri baráttu - og ef þurft hefði að semja illvíga samninga við umheiminn, algerlega án utanaðkomandi hjálpar. Það hefði því verið hægt. Styrkleiki í samningum er nauðsynlegur en hann hverfur þó oftast ef þjóðin sveltur. Þetta var tryggt vegna þess að það sátu hæfir hagfræðingar og vanir stjórnendur í Seðlabanka Íslands. Banka þjóðarinnar. En núna á samt að reka þá

Næsta atriði í krísustjórn undir áföllum - og ennþá hér samkvæmt Moody's - er að tryggja að það sé ekki gert áhlaup á gjaldeyrisforðann. Að hann endi ekki á Cayman eða í hólfi í Singapore í eigu fárra aðila. Þetta tryggði Seðlabanki Íslands einnig. Gjaldeyrisforðinn er þarna ennþá, fyrir þjóðina. Seðlabanki Íslands sýndi hér í verki að hann er stofnun sem brást ekki. En mikið var lagt á hann. Öllu var hrúgað á þessa stofnun. Óhæfum fjármálageira á ólöglegum vaxtahormónum, óhæfum rembum útrásar og einnig eyðslusamri ríkisstjórn. Svo biðja menn um kraftaverk á meðan allt var gert sem yfirhöfuð var hægt að gera til að þröngva Seðlabankanum til að grípa til örþrifaráða. Gjaldmiðillinn níddur niður, sífellt grafið er undan öllu með innilegri heimsku fjölmiðla, forvígismenn lýðskrumast í akkorði og Samfylkingin grefur undan starfshæfni ríkisstjórnarinnar þegar mest ríður á að hún sé sterk og þróttmikil

Hin nýja ríkisstjórn Íslands heldur eins og öll vinstri öfl alltaf halda að það sé hægt að laga allt ef bara settar eru fleiri reglur. Hún heldur að allir hætti að aka óvarlega vegna þess að þeir hafi bílpróf. En vandamálið er bara það að ríkisstjórn Íslands situr núna ölvuð undir stýri og er að keyra yfir á rauðu ljósi út um allt. Hún mun brjóta allt og bramla í ölæðinu. Hún er nefnilega ofurölvi og víman er hefndarþorsti, skítt með þjóðina og skítt með landið. Ölvunaræði þar sem bakarar bæjarins verða hengdir opinberlega sem smiðir. Brátt mun brauðið því þverra

En hver gerði þetta?

En hver gerði árásina á Ísland, á myntina, á Seðlabankann, á ríkissjóð og á öryggi þjóðarinnar? Það veit ríkisstjórnin ekki, hún hefur ekki tíma, því hún er úti að aka

Ekki einu sinni seðlabankastjóri Evrópusambandsins mun geta fengið vinnu hjá nýju ríkisstjórn Íslands því hann hefur ekki prófið. Þess utan þá hefur hann aldrei prófað neitt nema að búa í ríkisreknu hagkerfi svo prófið skiptir heldur ekki máli hér. En núna getur nýja ríkisstjórn Íslands valið úr fullt af hæfum mönnum úr hinu fyrrverandi af öllu fyrrverandi, þ.e. frá leifunum af fjármálageira Íslands og klappstýrum gulláranna

Þvílíkir kjánar og einfeldningar. Næst verður forsætisráðherrann krafinn um skilríki þegar hann/hún þarf að fara á . . . já þú veist.....Ofanskráð er tekið af bloggi Gunnars Rögnvaldssonar og er athyglisvert innlegg í þá einlitu umræðu sem átt hefur séð stað hér á landi í kjölfar atburða þeirra er leiddu til falls bankanna. Grunnhyggnir tækifærissinnar úr rýmsum áttum hafa reynt að skjóta pólitískum keilum, ráðast á Seðlabanka Íslands og gera hann að blóraböggli. Forsætisráðherra vinstri starfsstjórnarinnar hefur látið etja sér á foraðið og fjölmiðlar hafa básúnað upp órökstutt blaðrið semi stórasannleiik, að forsenda afturbatans í efnahagsmálum sé að finna í hreinsunum í yfirstjórn Seðlabanka Íslands! Spyrja mætti hvort í kjölfar fall Lehman brothers bankans í Ameríku, sem hafði keðjuverkandi áhrif á starfsemi vestrænna banka, hvort Hörður Torfason, Jóhanna Sigurðardóttir og Co. ætli ekki að skrifa Obama bréf og spyrja hvort hann vilji ekki reyna að víkja Ben Bernanke seðlabankastjóra úr starfi (hann er með 14 ára samning frá 2006). Hvergi í hinum vestræna heimi annars staðar en hér hafa ríkisstjórnir reynt að reka yfirmenn seðlabankanna í kjölfar bankakreppunar. Þær eru upplýstari en svo um orsakir vandans.

Óttar Felix Hauksson, 25.2.2009 kl. 01:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband