ESB skilyrði Framsóknar eru raunhæf og eðlileg

Þegar rætt er um aðildarviðræður við Evrópusambandið verður að hafa í huga að þeim er ætlað að gæta hagsmuna þjóðarinnar við inngöngu.  Aðildarviðræður fjalla um varanleg samningsákvæði, undanþágur og aðlögun.   Í aðildarviðræðum leggja þjóðir fram kröfur og óskir,  m.a um varanleg ákvæði og tímabundnar undanþágur frá gildandi reglum sambandsins.    Varanleg ákvæði í aðildarsamningi tryggja að breytingar á regluverki ESB muni ekki hafa áhrif á Íslandi í viðkomandi málaflokki, en tímabundnar undanþágur fela í sér aðlögunartíma eða markmið sem ná þarf áður en ákveðnar reglur taka gildi.  Það er regla frekar en undanteking að þjóðir ná fram með vel rökstuddar kröfur í aðildarviðræðum.  

Sjávarútvegurinn

Almenn þjóðarsátt er um að tryggja þurfi full yfirráð yfir fiskveiðiauðlindinni í samningaviðræðum.    Mikilvægt er að tryggja forræði Íslendinga á auðlindum landsins í stjórnarskrá eins og framsóknarmenn hafa lagt til í tillögum sínum um auðlindasjóð. Íslendingar geta vísað í nokkur fordæmi varðandi yfirráð yfir fiskveiðilögsögunni.  Má þar m.a. benda á samninga um Azoreyjar, Kanaríeyjar og Möltu.   Einnig er að finna í gildandi reglum ESB hugtök eins og grenndarrétt, veiðireynslu og hlutfallslegan stöðuleika sem styðja við málsstað Íslendinga.

Það sem væri nýtt í kröfum Íslendinga eru meðal annars sérákvæði um flökkustofna og hvalveiðar, en þar mun reyna á íslensku samninganefndina og íslensku þjóðina í framhaldinu, ef þessar kröfur næðust ekki fram.

Ef fara á að áliti mannréttindanefndar SÞ er ljóst að auðvelda verður nýliðun í útgerð. Það þýðir með öðrum orðum að gera nýjum aðilum mögulegt að komast inn í greinina án þess að hafa veiðireynslu.  Því verða aðrar hindranir en einungis veiðireynsla að gilda um íslenskan sjávarútveg.

Orkuauðlindir

Tryggja þarf yfirráð Íslendinga yfir öðrum auðlindum þjóðarinnar, eins og orkuauðlindum. Því verður að hafa inni heimildarákvæði um eignarhald á landi og tryggja stöðu auðlinda í þjóðareigu í stjórnarskrá. Þar til búið er að setja þetta ákvæði í stjórnarskrá, verður Alþingi að setja sérstök lög þar sem þessum yfirráðum er lýst, t.d. í tengslum við löggjöf um Auðlindasjóð. Þetta þarf að gerast áður en farið er í aðildarviðræður.

Landbúnaður

Í aðildarsamningi þarf að vera viðurkenning á að íslenskur landbúnaður sé heimskautalandbúnaður, en sú viðurkenning miðast í aðildarsamningi Svíþjóðar og Finnlands við 62. gráðu norðlægrar breiddar.

Sömuleiðis verður aðildarsamningur að fela í sér viðurkenningu á nauðsyn fæðuöryggis þjóðarinnar. Nauðsyn þessa ákvæðis sýndi sig í bankahruninu þegar lokaðist fyrir öll gjaldeyrisviðskipti. Þjóðin verður einnig að geta tekið á því ástandi sem kemur upp, þegar óáran geysar á heimsvísu, sbr spánsku veikina 1918 og heimsstyrjaldirnar. Slík skilyrði kosta neytendur eitthvað hærra matvælaverð, enda standast gylliboð Samfylkingarinnar um "evrópskt" matvælaverð við inngöngu í ESB hvort eð er enga skoðun vegna staðsetningar landsins.

Í aðildarsamningi þarf að vera skýrt að Íslendingar stjórni sjálfir framleiðslu og úrvinnslu íslenskra landbúnaðarafurða og geti verið sjálfum sér nægir um kjöt og mjólk og þannig  tryggt fæðuöryggi þjóðarinnar. Heilbrigðiskröfur og sóttvarnir verða að fá að vera óbreyttar og þar með verða áfram að vera strangar reglur um innflutning dýra til landsins á þeim forsendum.

Gjaldmiðilsmál

Staða íslensku krónunnar og íslensks efnahagslífs kalla á tafarlaus viðbrögð.  Með aðildarumsókn til ESB er mörkuð stefna í efnahags og peningamálum sem líkleg er til til að auka hér stöðugleika.   Til að tryggja þann stöðugleika í sessi er mikilvægt að í viðræðuáætlun Íslendinga og ESB sé í upphafi gert ráð fyrir stöðugleikasamningi við Seðlabanka Evrópu og aðild að ERM2, sem er skilgreint aðlögunarferli þeirra myntsvæða sem stefna að upptöku Evru.  En þannig fær íslenska krónan þann bakhjarl sem hún þarfnast meðan unnið að uppbyggingu efnahagslífsins og skilyrðum að aðild að Myntsamstarfinu er fullnægt og hægt að taka hér upp Evru.

Fullveldi þjóðarinnar og þjóðhættir

Skýr og einhliða úrsagnarréttur, sem í dag er þegar viðurkenndur í aðalsáttmála ESB, verði hluti aðildarsamnings og því viðurkenndur í eitt skipti fyrir öll.

Það er eðlilegt að fámenn þjóð geri þá kröfu í aðildarsamningi að hún njóti framvegis virðingar og stuðnings að því er lýtur að þjóðtungu og þjóðmenningu.   Til dæmis skiptir það miklu máli að ESB viðurkenni sérstöðu íslenskrar tungu í stjórnsýslu og þýðingum.

Sama máli gegnir um ýmsar þjóðlegar venjur, t.d. matarhefðir og verndun á sérstökum framleiðsluheitum eins og skyri.  Ýmis fleiri dæmi mætti nefna í þessu sambandi.


mbl.is Dregur saman með flokkunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Hansson

Heldur þú að Framsókn standi við þetta allt ef á reynir? Eins og að "tryggja stöðu auðlinda í þjóðareigu í stjórnarskrá" áður en farið er í aðildarviðræður.

Ég spyr vegna þess að þetta þýðir að þá væri ekki hægt að hefja viðræður fyrr en á þarnæsta kjörtímabili. Sem er hið besta mál, því ekki veitir af að undirbúa málið af fagmennsku og kostgæfni. Nógu dýrt hefur það reynst okkur fúskið.

Mér fannst gleðilegt að heyra í dag af þremur kjósendum (já, þó þeir væru bara þrír) sem eru hættir við að kjósa Samfylkinguna og ætla að kjósa Framsókn í staðinn. Ástæðan sem þau gáfu upp var að þeim líkar ekki ofstækið í ESB trúboði Samfylkingar og vilja treysta því að Framsókn standi við stefnu sína í þessum málum. Hafi skynsemina að leiðarljósi.

Ég vona að þið Framsóknarmenn standið undir því trausti.

Haraldur Hansson, 22.4.2009 kl. 18:31

2 Smámynd: Gestur Guðjónsson

Ég mun gera mitt í því.

Gestur Guðjónsson, 22.4.2009 kl. 18:46

3 Smámynd: Kristbjörg Þórisdóttir

Þetta er góð úttekt hjá þér Gestur :).

Framsókn er með lang skynsamlegustu stefnuna varðandi ESB... og margt annað auðvitað!

Takk!!!

Kristbjörg Þórisdóttir, 22.4.2009 kl. 22:10

4 Smámynd: Marteinn Unnar Heiðarsson

Afhverju einblína menn alltaf á evru?? er sambó kannski búin að lofa uppí ermina á sér með múturpeningum frá ESB einsog þeir eru þekktir fyrir að nota til að nauðga þjóðum inní ESB.Við búum á besta stað í heimi og ég vill ekki að einhver Brussel ketlingur segi mér í framtíðinni um það hvenær ég megi fara á klósettið af því að hann bjó til reglu um það!! nei takk.Það eru miklir möguleikar að opnast fyrir okkur kannski í olíu og kannski líka þegar siglingaleiðin norðurfyrir Grænland opnast og ekki vill ég að einhverjir spilltir ánskotar í Brussel hirði það af okkur.Það virðist vera voða viðkvæmt að ræða um aðra möguleika tildæmis að ath með Dollar sem væri mun heppilegra fyrir okkur einsog er og tæki ekki eins langan tíma að koma í gagnið og evru.Er ekki aðalmálið í dag að koma stöðugleika á okkar gjaldmiðil svo að við getum haldið áfram?og ég held að það gerist ekki í sambandi með ESB þar sem allt er á niðurleið og hver hugsar um sjálfansig..

Marteinn Unnar Heiðarsson, 22.4.2009 kl. 23:29

5 Smámynd: Dofri Hermannsson

Mörgum þykja skilyrði Framsóknar við inngöngu í ESB svo ströng og ófrávíkjanleg að í raun hafi taflinu verið snúið við og ESB hafi verið boðið að ganga í Framsókn. En gott ef þið eruð að mýkjast í afstöðunni.

Kv. frá "óvini" Framsóknar :)

Dofri Hermannsson, 23.4.2009 kl. 09:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband