Verður ekki að skýra hlutina fyrir ESB?

Það eru svo greinilega tvær ríkisstjórnir í landinu að okkur sem sjáum það ber skylda til að láta þá sem það ekki sjá og skilja vita af því.

Ráðherrar VG telja sig alls ekki bundna af orðum og gerðum ríkisstjórnarinnar og haga sér í samræmi við það, gefa út yfirlýsingar þvert á stjórnarsáttmálann og telja sig alls ekki bundna af þeim samningum sem ríkisstjórnin í heild sinni gerir, eins og stöðugleikasáttmálann.

Þegar ástandið er þannig ríkir ekki stjórnmálalegur stöðugleiki en hann er alger forsenda fyrir því að nokkur beri traust til okkar, hvort sem eru aðrar þjóðir, lánardrottnar eða íslenska þjóðin.


mbl.is Ummæli fjármálaráðherra vekja athygli í Brussel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Er þessi ríkisstjórn ekki fjandans nógu höll undir Brussel?  Það hlýtur að mega heyrast örlítið tíst úr fjármálaráðherra eða hvað?

Sigurður Þórðarson, 7.11.2009 kl. 19:44

2 Smámynd: Gestur Guðjónsson

Hun verður að vita hvað hun vill. Það er nu það minnsta

Gestur Guðjónsson, 7.11.2009 kl. 20:05

3 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Þau eru nú ekki í sama flokki Jóhanna og Steingrímur en það gæti komið að því fyrr en marga grunar.

 Annars held ég að flestir séu sammála um að umsóknin um aðild að ESB er ekki í hópi brýnustu mála fyrir Ísland um þessar mundir. Það þarf að grynnka á erlendum skuldum, bæta atvinnuástandið, endurreisa bankakerfið, leysa Jöklabréfavandann, skera niður ríkisútgjöld  og finna jafnvægi á gengi krónunnar svo dæmi séu tekin áður en menn eyða dýrmætum  tíma  í ESB.

Sigurður Þórðarson, 8.11.2009 kl. 02:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband