Menntaskattur

Þessir blessuðu sósíalistar virðast ekki skilja skattkerfið og það þótt sjálfur skattstjórinn fyrrverandi sé innanborðs.

Því einfaldara sem skattkerfið er, því betra. Það virðast þessir herramenn ekki átta sig á.

Ef leggja á hærri hlutfallslegar álögur á þá sem hærri hafa tekjurnar þarf ekki að flækja kerfið. Mun eðlilegra er að leggja á hærri prósentu og hækka um leið persónuafsláttinn.

Væri gustuk að miða skattleysismörkin loksins við lágmarksframfærslu, útfrá sameiginlegum framfærslugrunni. Löngu þarft verkefni

En þessir herramenn verða líka að átta sig á því að þeir eru að letja fólk til náms, því ef leggja á hærri skattprósentu á þá sem fara í nám og eiga því færri ár á vinnumarkaðinum af þeim sökum eru þeir að greiðla hlutfallslega hærri upphæð af sínum ævitekjum í skatt.

Ef menn vilja endilega hafa þetta svona, er eðlilegt að afborganir af námslánum yrðu á móti skattfrjálsar.


mbl.is Mikil hækkun skatta í pípunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Langt nám þýðir nú ekki alltaf há laun (-:

Bragi Þór Valsson (IP-tala skráð) 10.11.2009 kl. 12:17

2 Smámynd: Rauða Ljónið

Auðvita verðar þeir að greiða sem menga ferðariðnaðurinn mengar um 4.2 miljónir af CO2 losun er þrír til fjórföld í háloftunum sem gerir um 12.6 milljónir tonna leggja á því meðal skatt samkvæmt reglugerð eða um 150 til 200€ eða 28.000 til 37.000 þúsund ISK á hvern túrista sem gerir * 2.0 milljóni túrista á ársgrundvelli.

Síðan geta menn reiknað út hvað það skilar inn í þjóðarbúið.

Rauða Ljónið, 10.11.2009 kl. 23:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband