Framför fyrir lýðræðið?

Það verður áhugavert að fylgjast með því hvaða áhrif reglur um hámark auglýsingakostnaðar kemur til með að hafa á baráttuna. Ég spái því að málefnabaráttan komi til með að fara fram á öðrum vettvangi og hagsmunasamtök, sem stjórnað er af einstaklingum sem tengdir stjórnmálaflokkunum komi til með að beita sér mun meira. Má þar nefna Náttúruverndarsamtök Íslands, ASÍ, samtök öryrkja, eldri borgara hin ýmsu samtök atvinnurekenda o.s.frv. Nokkur dæmi eru þegar komin fram, sbr sáttmála Framtíðarlandsins, auglýsinguna í NY Times og fleira mætti telja. Er það framför og hvernig á að bókfæra það? - hægt væri að stofna hollvinasamtök Sjálfstæðisflokksins sem mega safna fé og auglýsa óhindrað, aldeilis framför!

Það sem spaugstofan gerir ekki grín að...

Horfði á 2. endursýningu á 300. spaugstofuþættinum í gær. Þeir áttu, eins og svo oft áður ágæta spretti, en um leið og þeir voru að brjóta landslög, sem þeir eiga að standa reikningsskil á, þá rann upp fyrir mér að þeir gera ekki grín að fólki úr öllum flokkum. Framsókn og íhaldið fá eðlilega sinn skerf, verandi í ríkisstjórn, Samfylking fær öðru hverju kveðjur, Frjálslyndir m.a.s. stundum líka, en æpandi þögn þeirra gagnvart Vinstri Grænum er ærandi. Ef einhver getur rifjað upp atriði þar sem VG er hætt, látið vita.


Bloggfærslur 27. mars 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband