Er yfirlýsing Samfylkingarráðherranna um hvalveiðiandstöðuna ómark?

Í viðtölum eftir útgáfu hvalveiðikvótans, kom fram að Einari K Guðfinnsyni hafi verið fullkunnugt um afstöðu ráðherra Samfylkingarinnar til útgáfu hvalveiðikvóta. Það segir mér að málið hafi verið rætt á ríkisstjórnarfundi.

Í ljósi 5. greinar laga um ráðherraábyrgð, fæ ég ekki séð annað en að allir þeir ráðherrar sem tóku þátt í þeirri umræðu bera sameiginlega ábyrgð á þeim gjörningi, en hún segir:

"5. gr. Sé um að ræða embættisathöfn í ríkisráði eða á ráðherrafundi, sbr. 16. og 17. gr. stjórnarskrárinnar, bera allir viðstaddir ráðherrar, sem með ráðum, fortölum, atkvæði eða á annan hátt hafa stuðlað að þeirri athöfn, ábyrgð á henni."

Þess vegna hlýtur sú spurning að vakna hvort yfirlýsing Samfylkingarinnar um að þeir styddu ekki þessa ákvörðun sé ekki ómark að lögum og því lýðskrum af versta tagi?

Ef málið hefur ekki verið kynnt í ríkisstjórn er það stórkostleg yfirsjón hjá forsætisráðherra og jafnvel enn verra mál, því ef mál sem varða fleiri en eitt ráðuneyti, sem útgáfa hvalveiðikvóta vissulega gerir í ljósi þess að utanríkisráðuneytið þarf að verja gjörninginn erlendis, verður það að ræðast við það borð, þótt útgáfuheimild reglugerðarinnar liggi formlega hjá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.


mbl.is Vinstristefna að tala niður atvinnulífið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórkostleg fjölskylda

Við sem horfum af hliðarlínunni á þjáningar þessarar fjölskyldu, getum ekki annað en dáðst að því hvernig hún hefur náð að breyta þessum sorglega atburði, sem virðist svo óendanlega tilgangslaus, í eitthvað sem mun vonandi bæta samfélagið sem við lifum í til frambúðar.

Fyrir það vil ég þakka og óska þeim alls hins besta í framhaldinu.

Jónína minnti í minningargrein sinni um stúlkuna á ábyrgð þeirra lækna sem ávísa læknadópi. Minnir það mann enn og aftur á þörfina á að koma á einni samræmdri sjúkraskrá og lyfjaskrá, sem því miður hefur tekið allt of langan tíma að koma á fót. Þar má ekki líða smákóngum að hefta framþróunina.

Grein Ingibjargar verður vonandi minnst sem greinar sem breytti barnaverndarmálum á Íslandi.

Réttur foreldra til barna sinna virðist vera mun sterkari en réttur barnanna til sómasamlegra uppeldisskilyrða. Því þarf að breyta, bæði í lagaumhverfinu og eins í framkvæmd barnaverndarmála sem og hjá dómstólum. Við skulum ekki gleyma því að börnin velja sér ekki foreldra og geta ekki komið fram sem þrýstihópur.

Það er margt sem rennur í gegnum hugann.

Væri til dæmis ekki eðlileg vinnuregla að foreldrar standist einfalt eiturlyfjapróf áður en börn eru skilin eftir án eftirlits þar sem saga eiturlyfjaneyslu er þekkt hjá viðkomandi?

Hvað er eðlilegt við það að fólk sem ekki getur átt börn þurfi að leita erlendis eftir börnum til að hlúa að, veita öryggi og tryggð, þegar fjöldi barna hér á landi eru svikin um það allt saman? Þeir foreldrar sem hafa tekið börn dópista að sér þurfa sífellt að vera að sjá á eftir börnunum til þeirra, bara vegna þess að blóðforeldrarnir, kannski bara annað þeirra, hefur haldist edrú í viku eða svo. Það getur ekki verið gott fyrir börnin að þurfa að búa við þennan hringlandahátt.

Væri "sjálfvirk" forræðissvipting yfir virkum dópistum úrræði sem einhverju myndi skila?

Eiga foreldrar og aðrir aðstandendur alltaf að þurfa að fara sjálfir í gegnum dómstóla þegar barnaverndaryfirvöld hafa kannski öflugri og fljótvirkari úrræði, eins og Dögg Pálsdóttir fer vel yfir í þessari færslu?

Barnaverndaryfirvöld eru ávallt í erfiðri stöðu gagnvart gagnrýni og geta ekki varið sig í málum gagnvart einstaklingum sem hafa sannleikan ekki alltaf í heiðri þegar þeir fara í fjölmiðla og er gott að sjá að Barnaverndarstofa skuli ætla að fara yfir málið, og sem betur fer er búið að koma á fót embætti Umboðsmanns barna sem ætti að sinna eftirliti með eftirlitnu útfrá sjónarhóli barnanna.

Þessi jákvæða nálgun á málið er til mikillar fyrirmyndar og sem betur fer gaf Guð drengjunum þessa stórkostlegu fjölskyldu sem getur annast þá.

Því miður eru ekki allir svo heppnir.


mbl.is Barnaverndarstofa rannsakar málið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 22. maí 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband