Atlaga að heilbrigðiskerfinu í vændum

Það verður afar áhugavert að fylgjast með því hvort fólki verði gert heimilt að kaupa sig fram fyrir í röðinni á einkastofum úti í bæ eða úti í heimi og fá það svo endurgreitt hjá Tryggingastofnun, þ.e. almenningi, sem þarf að bíða í röðinni eins og hinir. Það er grundvöllurinn í málflutningi fjölskylduföðursins úr Hafnarfirði.

Hans helsta röksemd verður líklegast að Tryggingastofnun hefði hvort eð er greitt aðgerðina á endanum og varakrafa að hann fái greitt það sem þetta hefði kostað á Íslandi.

Ef niðurstaða málsins verður svo að hann fái það greitt, hvort heldur að það gerðist strax eða á þeim tíma sem hann hefði annars komist að, er hoggið fast að grundvelli íslenska heilbrigðis- og tryggingakerfisins, sem góð og breið sátt hefur verið um hjá öllum flokkum, nema helst Sjálfstæðisflokknum. Það kallaði á tafarlausa lagabreytingu. Ef EES samningurinn myndi valda svona stórskemmdum á íslensku velferðarkerfi, þyrfti að skoða þann samning alvarlega reyna að fá hann endurskoðaðan mtt þessa, því hér er um slíkt grundvallarmál í íslenskri samfélagsgerð að ræða.

Þetta er einmitt mál sem íhaldið hefur viljað fá upp, kannski ekki alveg strax. En málið er einmitt birtingarmynd þess hvað gerist ef heilbrigðiskerfið er hugsanalaust einkavætt og sett í einkarekstur.

Þess vegna fer um mann kaldur hrollur þegar maður hugsar til þess að íhaldið hefur skipað að ég held alla hæstaréttadómara Íslands. Suma umdeilt, svo ekki sé meira sagt.


mbl.is Vill fá kostnað bættan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 18. ágúst 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband