Samkynhneigðir

Nú ætla ég að skrifa hvað mér finnst um homma og lesbíur. Mér finnst þau barasta allt í lagi. Ég er stoltur af því að búa í samfélagi þar sem lagaumhverfið mismunar þeim ekki og samfélagið sjálft er smám saman að verða þannig að það er fólki ekki óyfirstíganlegt að koma út úr skápnum. Einhversstaðar heyrði ég að há sjálfsmorðstíðni ungra karlmanna væri að einhverjum hluta hægt að rekja til þeirra sálarkvala sem það olli þeim sem vissu ekki "hvað væri að þeim". Ef þá var farið að bjóða í grun að það væri samkynhneigð gátu þeir ekki hugsa sér að lifa því lífi og ekki heldur að lifa lífi inni í skápnum hafi menn valið þá leið að farga sér.

Það er hryllingur til þess að hugsa og vonandi tekst okkur að hreinsa síðustu agnúana af samfélaginu og viðhorfi okkar sem búum í því, þannig að lífið fyrir utan skápinn virðist öllum þeim sem eru samkynhneigðir þess virði að lifa því.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Skarfurinn

Nú er Frammarinn mikli þá hommavinur líka,  þú segir aldielis fréttir, til hamingju með að upplýsa alþjóð um það, nú líður öllum miklu betur.

Skarfurinn, 10.8.2007 kl. 12:32

2 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Já... eða bara mannvinur ;)

Heiða B. Heiðars, 10.8.2007 kl. 13:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband