Herferð farin af stað gegn forseta vorum.

Maður hlýtur að spyrja sig af hverju Morgunblaðið og hliðarblöð þess séu nú að velta sér upp úr málefnum forsetaembættisins og leggja málin upp með þessum hætti. Ég get ekki séð annað en að þetta sé hrein herferð í kjölfar tilkynningar Ólafs Ragnars Grímssonar um að hann sæktist eftir endurkjöri. Ef umræðan væri af eðlilegum hvötum runnin hefði hún átt að koma upp í tengslum við fjárlagagerðina, en ekki núna þegar búið er að samþykkja þau.

Það er afar eðlilegt að forsetinn kosti meira núna en áður. Ólafur hefur verið afar duglegur að kynna land og þjóð á alþjóðavettvangi. Mér er til efs að rekstraraðilar netþjónabúa væru á leiðinni hingað ef aðkomu hans hefði ekki notið við. Það eitt borgar þessar 31 milljón sem rekstrarkostnaðurinn hefur aukist, þ.e. ef 1995 hefur verið dæmigert ár fyrir reksturinn meðan frú Vigdís Finnbogadóttir gegndi embættinu.

Kannski hefur þessi dugnaður hans komið niður á heimabrúki embættisins, en ég hef ekki orðið var við annað en að hann sé bara talsvert áberandi í samfélagsmyndinni innanlands og sá stöðugleiki sem hefur verið við stjórn landsins þann tíma sem hann hefur gegn embættinu hefur heldur ekki bundið hann mikið heima.

Forsetaembættið er þjóðinni mikilvægt sem sameiningartákn og málsvari hennar út á við og ef þjóðin hefur einhverja sjálfsvirðingu, verður hún að standa myndarlega að embættinu. Gildir einu hvaða einstaklingur gegnir því. Er þessi herferð Morgunblaðsins og margra Sjálfstæðismanna gegn persónunni Ólafi Ragnari Grímssyni bein árás á það embætti sem hann gegnir og þeim sjálfum til skammar.


mbl.is Æ dýrara í rekstri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Man einhver eftir því að Morgunblaðið hafi staðið vaktina og andmælt þenslu í utanríkisþjónustunni?

Minni á sólarhringsráðningu í sendiherraembætti. 

Árni Gunnarsson, 3.1.2008 kl. 12:40

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Vísa í blogg mitt í gær um að Ólafur leitar nú endurkjörs. Ólafur var mjög umdeildur
stjórnmálamaður, enda leiðtogi hérlendra sósíalista. Þess vegna var og er þess
alls ekki að vænta að hann geti orðið það sameiningatákn þjóðarinnar sem fyrir-
rennari hans Frú Vigdís Finnbogadóttir var í embætti forseta Íslands. Þvert á móti
hefur gustað um embættið sem náði hámarki þegar Ólafur fór þvert gegn meirihluta Alþingis í svokölluðu fjölmiðlamáli. Vonast því að Ólafur fái verðugt
mótframboð í vor, lýðræðinu og forsetaembættinu til heilla.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 3.1.2008 kl. 13:20

3 Smámynd: Hólmgeir Guðmundsson

Etv ættir þú að lesa fréttina aftur. Kostnaður við embættið hefur ekki aukist um 31 mkr heldur aðra upphæð.

Hólmgeir Guðmundsson, 4.1.2008 kl. 12:17

4 Smámynd: Gestur Guðjónsson

Hólmgeir: Forsetaembættið hefur gert athugasemd við fréttaflutning 24 stunda varðandi upphæðina og sýnir fram á að breytt upphæð á þessum lið eigi sér eðlilegar skýringar, eitthvað sem blaðamaðurinn hefði léttilega getað gert, hefði hann til þess faglegan metnað. Mér fannst ég slá varnagla við upphæðina í færslunni, en kannski ekki nægjanlega skýrt.

Gestur Guðjónsson, 4.1.2008 kl. 13:34

5 Smámynd: Hólmgeir Guðmundsson

Það sem ég átti við var að árið 1995 var rekstrarkostnaður við embættið 50 mkr sem jafngildir 81 mkr að núvirði. Árið 2008 er kostnaður áætlaður á fjárlögum 196,4 mkr. Kostnaðurinn hefur því aukist um 116 mkr eða næstum 2,5-faldast.

Forsetaembættinu mun efalítið alltaf vera sannfært um að "breytt upphæð á þessum lið eigi sér eðlilegar skýringar". Þeas ef upphæðin hækkar.

Hólmgeir Guðmundsson, 7.1.2008 kl. 21:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband