FL 2 - hver er ábyrgð stjórnarmanna?

Það er skrítið að fylgjast með skýringum á því hvernig farið hefur verið inn í almenningshlutafélög og þau ryksuguð að innan, ef marka mál þetta myndband, sem einhver hefur tekið saman.

Það sem fær mann til að staldra við er ábyrgð stjórna fyrirtækja gagnvart hluthöfum og lögmæti ákvarðana, þegar ákvarðanir virðast teknar framhjá stjórnum.

Þegar maður kaupir hlutafé í félagi sem er skráð í kauphöll væntir maður þess að það sé varið með ákveðnari og stífari reglum en í óskráðum félögum og eftirlit með starfsemi þess sé meiri en ella.

  • Getur virkilega verið að Hannes Smárason hafi ritað fyrirtækið einn?
  • Þurfti ekki meirihluta stjórnar til að rita fyrirtækið og samþykkja meiriháttar ákvarðanir?
  • Ef fleiri stjórnarmenn rita fyrirtækin, hverjir skrifa upp á gjörningana, en hlaupast svo frá þeirri ábyrgð?
  • Ætla hluthafar að láta það yfir sig ganga að stjórn hlaupi einfaldlega frá ábyrgð sinni og láti fyrirtæki og hlutafé eftir í höndum á fólki sem það vantreystir greinilega sbr yfirlýsingar stjórnarmanna og fv forstjóra?
  • Hefur Kauphöllin engu hlutverki að gegna?

Ef hluthafar geta ekki varið hendur sínar í gegnum hlutafélagalög og lög um kauphallarviðskipti þarf að fara undir eins í endurskoðun þeirra laga.

- Hér er verðugt verkefni handa viðskiptaráðherra.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sævar Helgason

Þetta virðist ekki vera neitt annað en þjófnaður. Það er eiginlega furðulegt að fólk kaupi hlutabréf í fyrirtækjum.  De Code var hrikalegt dæmi - þar var búið að tala væntingavísitöluna upp í USD 60 á hlut- síðan sprakk blaðran eins og sápukúla- um 20 milljarðar á þeirra tímagengi hurfu frá hluthöfum... Vantar ekk i öflugri lög varðandi umsýslu hlutafélaga. Bandaríkjamenn hafa öflug lög og eru svikahrappar umsvifalaust settir í fangelsi þegar upp kemst sbr Enron málið...

Sævar Helgason, 1.9.2008 kl. 19:52

2 Smámynd: Gestur Guðjónsson

Þetta er eitthvað sem Viðskiptaráðuneytið verður að fara yfir og koma með tillögur til breytinga ef það er vandinn.

Kannski er vandinn frekar sá að hluthafar gæta ekki hagsmuna sinna, að Vilhjálmur Bjarnason sé einn í liði?

Ef svo er ætti okkur hinum að standa á sama, ef manni rynni ekki í grun að fénu væri passlega vel komið í þeim höndum sem það er komið í nú.

Gestur Guðjónsson, 1.9.2008 kl. 20:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband