Upphaf prófkjörsbaráttu Björgvins og Lúðvíks
25.1.2009 | 12:33
Þessa hárréttu og virðingarverðu ákvörðun Björgvins G Sigurðssonar, að segja af sér og biðja um að skipt verði út í Fjármálaeftirlitinu í leiðinni, sem eykur svo aftur pressuna á því að Sjálfstæðisflokkurinn geri slíkt hið sama gagnvart Seðlabankanum, verður líka að skoða í þúfnapólitísku ljósi.
Lúðvík Bergvinsson, helsti keppinautur Björgvins um forystu í Samfylkingunni í Suðurkjördæmi, var einn frummælenda á fundi Samfylkingarfélagsins í Reykjavík um daginn. Félagi sem hann á í rauninni ekkert að vera að skipta sér af. Þar opinberaði hann andstöðu sína við ríkisstjórnina og hefur örugglega talað upp í eyru margra Samfylkingarmanna í Suðurkjördæmi og styrkt með því stöðu sína gagnvart Björgvini.
Þessum vangaveltum til staðfestingar, notaði Björgvin G Sigurðsson þennan fréttamannafund til að lýsa skoðun sinni á því innanflokksmáli, hvernig hann teldi að velja eigi á lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, með opnu prófkjöri, nú þegar ljóst er að kosið verður í vor.
Þannig að ákvörðunin var kannski ekki eins stór og flott og hún leit út fyrir í fyrstu.
En ég tek samt hatt minn og húfu ofan fyrir frumkvæði Björgvins, það á örugglega eftir að lengja veru hans í íslenskum stjórnmálum.
Björgvin segir af sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:37 | Facebook
Athugasemdir
Sæll Gestur.
Hinn pólítiski hráskinnaleikur er rétt hafinn svo mikið er víst.
kv.Guðrún María.
Guðrún María Óskarsdóttir., 26.1.2009 kl. 01:32
Virðingarverð ákvörðun ? að axla ábrygð eftir að vera búnir að klúðra heilu þjóðfélagi og fá klapp á öxlina ? - að axla ábyrgð er að taka ekki að sér hlutverk sem viðkomandi ræður ekki við ? réttindalaus að keyra rútu fulla af fólki og valda óstjórnlegu tjóni og segja síðan af sér, og axla ábyrgð ?
Jón Snæbjörnsson, 26.1.2009 kl. 09:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.