Lífrænn landbúnaður á Íslandi
11.3.2008 | 10:21
Meðan ég var í námi í Danmörku fyrir rúmum áratug voru lífrænar afurðir að ryðja sér til rúms af krafti. Er talsvert stór hluti framleiðslunnar í dag lífrænn og mikil og góð eftirspurn eftir vörunum. Slíku er ekki til að dreifa hér á landi. Af hverju ætli það sé?
Í Evrópu er jarðnæði þaulnýtt, mikil áburðar- og eiturefnanotkun. Það hefur haft það í för með sér að umhverfisáhrif landbúnaðar á ár, vötn, strandsvæði og sjó eru merkjanleg og oft á tíðum mikil. Það sem þó hefur haft mest áhrif á umræðuna um landbúnaðinn víðast hvar er mengun drykkjarvatns af hans völdum, enda drykkjarvatn sótt í grunnvatnið undir túnum og ökrum bænda.
Engum af þessum vandamálum hefur verið til að dreifa hér á landi.
Við verðum að átta okkur á því að lífræn ræktun í Evrópu er að mestu leiti drifin áfram af nauðsyn umhverfisins og er því styrkt sérstaklega af samfélaginu vegna þess, en er ekki drifin áfram af óskum markaðarins eða lýðheilsuástæðum.
Umræða um að lífrænt ræktaðar vörur séu heilnæmari en aðrar hefur ekki farið eins hátt erlendis og umræðan um umhverfisáhrif ræktunarinnar. Reyndar hef ég heyrt að ósannað sé að þær séu heilnæmari, en mér finnst lífrænt ræktað grænmeti yfirleitt bragðmeira og lystugra og ætla að leyfa mér að trúa því að það sé hollara en afurð úr þauleldi. En sú trú mín getur ekki réttlætt samfélagsútgjöld til að ýta undir lífræna ræktun, en mér er að sjálfsögðu frjálst að borga meira fyrir lífræna vöru vegna þessarar afstöðu minnar. Samfélagsútgjöld verða að byggja á staðreyndum.
Á Íslandi er lífræn ræktun eingöngu drifin áfram af óskum markaðarins og því gengur innleiðing lífrænnar ræktunar hægt. Hefðbundnar íslenskar landbúnaðarvörur eru líka framleiddar á hátt sem er afar nálægt þeim lífræna og ég hef oft spurt mig hvort gera eigi sömu kröfur til vottunar á lífrænni ræktun um allan heim? Hvort hefðbundinn íslenskur landbúnaður byggi ekki í raun á lífrænni ræktun, þegar tekið er tillit til þess að ekki hefur verið sýnt fram á að notkun tilbúins áburðar hér hafi valdið umhverfinu skaða, lyfjanotkun er í algeru lágmarki og eiturefnanotkun hverfandi?
Verða kröfurnar ekki að taka tillit til aðstæðna á hverjum stað?
![]() |
Vantar peninga til að ýta undir lífrænan búskap |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |