Það sem gerðist um páskana...
13.4.2009 | 00:17
...var aðgerð annars arms Sjálfstæðisflokksins til að koma í veg fyrir að Guðlaugur Þór Þórðarson yrði formaður Sjálfstæðisflokksins eftir 2 ár.
Það er ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn horfir fram á lélegustu niðurstöðu í Alþingiskosningum frá stofnun flokksins og sérstaklega stefnir í háðuglega útreið í Kraganum. Það væri að óbreyttu þungbær niðurstaða fyrir Bjarna Benediktsson, nýkjörinn formann flokksins og ólíklegt að honum hefði verið lengi sætt í embætti, sérstaklega ef Guðlaugi Þór gengi sæmilega í sínu kjördæmi.
Þess vegna er þessu máli skúbbað núna, til að gera út af við formannsdrauma Guðlaugs, sem er eina formannsefni þess arms, eftir að Kristján Þór tapaði naumlega fyrir Bjarna um daginn. Skaðinn fyrir Sjálfstæðisflokkurinn er hvort eð er ekki svo mikill. Flokkurinn er ekki á leiðinni í ríkisstjórn, fylgið komið ofan í innstakjarnafylgi, þannig að það mun ekki minnka mjög mikið við þessa aðgerð og staða Bjarna því völduð um hríð.
Þann tíma þarf hann svo til að bæta stöðu flokksins, því með því að byrja nógu neðarlega, mælist risið jú því hærra.
Þessi bloggfærsla Björns Bjarna og það viðhorf sem hún lýsir staðfestir þetta enn frekar.
![]() |
Heiður Sjálfstæðisflokksins ekki metinn til fjár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |