Ólafur Ragnar að bjarga forsetaembættinu?

Með því að fara fram með eðlilegum hætti við veitingu umboðs til stjórnarmyndunar til Geirs H Haarde er hann vonandi að bjarga forsetaembættinu frá því að Sjálfstæðisflokkurinn holi hlutverk embættisins algerlega að innan.

Sá ventill sem forsetaembættið er í stjórnskipuninni er algerlega nauðsynlegur, sama hvaða einstaklingur gegnir því. Í fjölmiðlamálinu þótti mörgum forsetinn misnota vald sitt, ætla ekki að fjalla um það hér, en með þessum gjörningi ættu raddir Sjálfstæðismanna, sem byggðar eru á vantrausti til persónunnar sem gegnir embættinu að hljóðna. Vera má að skýra þurfi ýmis atriði, sérstaklega er varða þjóðaratkvæðagreiðslur, en hlutverk forsetans við myndun ríkisstjórnar er ótvírætt og bráðnauðsynlegt.


mbl.is Geir falið að mynda nýja ríkisstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sveinn Waage

Djöfull er ég fúll ... best að hjóla í kommann á Bessastöðum!

Það er sól úti Gestur minn, komdu út að leika

Sveinn Waage, 18.5.2007 kl. 12:30

2 Smámynd: Sigurður Viktor Úlfarsson

Þegar flokksleiðtogar með tvo þriðjuhluta þjóðarinnar á bakvið sig óska eftir stjórnarmyndunarumboði getur forseti auðvitað ekki sagt annað en já.

Það þarf hins vegar ekkert að skýra hlutverk forsetans varðandi setningu laga.

Hann má samþykkja frumvörp en hann má ekki hafna þeim.  Hann má hins vegar vísa til þjóðarinnar.  Þetta er á hreinu, bráðnauðsynlegt og fullkomlega eðlilegt.

Ef hann mætti hafna þá byggjum við í einræðisríki en það má hann ekki, einungis vísa til þjóðarinnar sem alltaf hefur lokaorðið í lýðræðisríki.

Sigurður Viktor Úlfarsson, 18.5.2007 kl. 12:35

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Undarleg pólitísk ályktun vinstri flokkanna. Óformleg tilkynning og er á þessa lund:

Það er sameiginleg skoðun okkar hjá Samfylkingunni og Vinstri hreyfingunni grænu framboði að þessu landi verði ekki stjórnað af viti nema Sjálfstæðisflokkurinn eigi þar aðild og sitji við stjórnvölinn. Virðingarfyllst, os.frv.

Þvílíkt fólk!

Árni Gunnarsson, 18.5.2007 kl. 12:38

4 Smámynd: Gestur Guðjónsson

Sigurður, það þarf að skýra nánar þann feril sem mál fara í vilji hann vísa málum til þjóðarinnar, hvernig eigi að standa að því, hversu mikil þátttaka þarf að vera osfrv. Það verður að vera hafið yfir allan vafa, ekki eins og síðast.

Árni, þú athugar að það er formaður þess flokks sem lengst er til vinstri sem í rauninni kemur því þannig fyrir að þetta er svona núna.

Gestur Guðjónsson, 18.5.2007 kl. 12:41

5 Smámynd: Auðun Gíslason

Íhaldsmönnum ýmsum hlýtur að svíða að sjá formann sinn ganga á fund "ógnunarunnar" á Bessastöðum! Sjá þeir rautt?

Sigurður!  Er þessi utanvegar umræða um að forsetinn geti ekki neitað að undirrita lög, einsog hann gerði, ekki svolítið þráhyggjukennd?

Auðun Gíslason, 18.5.2007 kl. 13:29

6 Smámynd: Árni Gunnarsson

Þetta er hárrétt Gestur. Raunalegt að horfa á og heyra þá Ögmund og Steingrím skora hvorn annan á hólm í keppni um hvor gæti komið frá sér hatvíslegri yfirlýsingum.

Eins og hann Marka-Leifi minn sagði forðum: "Jahá, þeim getur nú skjátlast þó þeir séu í kórnum"! 

Árni Gunnarsson, 18.5.2007 kl. 14:06

7 Smámynd: Ívar Jón Arnarson

Ég hélt einmitt að forsetinn hefði neitunarvald gagnvarp frumvörpum og slíku, en kannski það neitunarvald sé fólgið í því að skjóta frumvörpum til þjóðaratkvæðagreiðslu.

Ívar Jón Arnarson, 18.5.2007 kl. 18:46

8 Smámynd: Gestur Guðjónsson

Ívar: það er ferlið sem fer í gang, hafni forsetinn lagafrumvarpi, sem þarf að skýra betur.

Gestur Guðjónsson, 19.5.2007 kl. 00:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband