Bleikjan mynduð

Ágúst Ólafur varaformaður Samfylkingarinnar fær ekki ráðherradóm, Björgvin G Sigurðsson er tekinn fram fyrir hann, en viðskiptaráðuneyti er "búið til" fyrir hann. Ágúst Ólafur getur ekki verið sáttur við það.

Kristján Möller fær að opna Siglufjarðargöng og framfylgja því sem síðasta ríkisstjórn var búin að ákveða að gera í samgöngumálum og klára Grímseyjarferjuna, en ekki að bæta fjarskiptakerfið og efla ferðaiðnaðinn. Össur fær þau verkefni í stað viðskiptamálanna sem hann missir úr iðnaðarráðuneytinu. Held að það sé góð breyting fyrir hann og ég sé Össur baða sig í ljósi góðra verka sem undirbúin hafa verið í ráðuneytinu í tíð Jóns og Valgerðar.

Þórunni spái ég velgengni í umhverfisráðuneytinu, sem er afar vel mannað ráðuneyti, en hvað stendur í sáttmálanum í utanríkismálum verður spennandi að sjá.

En meginfréttin og meginþungi vinnu þessarar ríkisstjórnar verður á Jóhönnu Sigurðardóttur. Hún hefur ástundað góð vinnubrögð í stjórnarandstöðu, hrósað þegar tilefni hefur verið til sem hefur gefið henni meiri vigt þegar hún gagnrýnir, en málaflokkurinn er gríðarstór og mikið lagt á vinnusama konu, meðan að aðrir ráðherrar fá mun léttari verk.

Hlakka til að sjá málefnasamninginn


mbl.is Þrjár konur og þrír karlar ráðherrar fyrir Samfylkingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Svona svona Gestur! Er það ekki fyrir neðan þína virðingu að vera svona..... bitur eitthvað?

Heiða B. Heiðars, 23.5.2007 kl. 01:08

2 Smámynd: Gestur Guðjónsson

Baldur: Ég setti "búið til" í gæsalappir einmitt þess vegna.

Heiða: Lestu þetta aftur. Ég er bara ekki vitund bitur í þessari færslu.

Gestur Guðjónsson, 23.5.2007 kl. 08:17

3 Smámynd: Gestur Guðjónsson

Öfundast? Hvað áttu við?

Gestur Guðjónsson, 23.5.2007 kl. 11:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband