Vörusvik Samfylkingarinnar?

Ef marka má viðtal Ingibjargar Sólrúnar við sunnudagsmoggann síðasta er greinilegt að hún er að fá raunveruleikann í andlitið og neyðist því til að koma niður á jörðina og nálgast á skynsömu og hófsömu stefnu sem Framsókn kynnti í kosningabaráttunni í fjöldamörgum málum. Aftur á móti hlýtur sá hluti kjósenda sem létu ginnast af taumlausu loforðaflóði Samfylkingarinnar í kosningabaráttunni telja sig hafa keypt svikna vöru.

Sem dæmi má nefna spurninguna um biðlistana, sem Samfylkingin auglýsti mikið að hún ætlaði að útrýma. Nú er svarið:

"Þeim verður auðvitað aldrei útrýmt að fullu. Það eru ríflega 3 þúsund manns á biðlistum  hjá Landspítalanum eftir einhverskonar aðgerðum og þjónustu. Það verða alltaf einhverjir sem bíða og það getur verið fullkomlega eðlilegt. Það liggur ekki alltaf lífið við."

Þegar Siv Friðleifsdóttir kom með sömu röksemdafærslu í kosningabaráttunni, gerðu Samfylkingarmenn hróp að henni og dylgjuðu um dugleysi, sögðust aldeilis ætla að gera betur.

Í 16. grein neytendakaupalögum segir

"Söluhlutur telst vera gallaður ef:
...
   

   b. seljandi hefur við kaupin vanrækt að gefa upplýsingar um atriði varðandi hlutinn eða not hans sem seljandi hlaut að þekkja til og neytandi mátti ætla að hann fengi upplýsingar um, enda megi ætla að vanrækslan hafi haft áhrif á kaupin;
   
c. hann svarar ekki til þeirra upplýsinga sem seljandi hefur við markaðssetningu eða á annan hátt gefið um hlutinn, eiginleika hans eða notkun nema seljandi sýni fram á að réttar upplýsingar hafi verið gefnar neytanda við kaupin eða að upplýsingarnar hafi ekki haft áhrif á kaupin;"

Það er spurning hvort þetta eigi við í þessu tilfelli?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gestur Guðjónsson

Held að við séum að upplifa þetta í áður óþekktum mæli núna. Fyrir kosningar var ein landbúnaðarstefna kynnt úti á landi og önnur í Reykjavík, ein stóriðjustefna kynnt á Húsavík og önnur í Reykjavík. Lækkun álaga um leið og stórfelldum útgjöldum var lofað. Fjölmiðlar brugðust gersamlega skyldu sinni að taka saman kostnað við loforðaflauminn og gera hann upp. Leyfðu formönnunum bara að koma með einhverjar tölur, án þess að biðja um forsendur fyrir þeim eða kanna þær frekar.

Gestur Guðjónsson, 30.5.2007 kl. 13:54

2 Smámynd: Gestur Guðjónsson

Barnakortin fengu ekki að heita það fyrir íhaldinu. Í stað þess voru þau nefnd ónefninu ótekjutengdar barnabætur, sem er það sama. Fiskveiðistjórnunarkerfinu verður að breyta. Er sammála þér um það, en því miður höfðum við ekki sjávarútvegsráðuneytið og því ekki frumkvæðið í þeim málaflokki. Það verður þó ekki gert með eignaupptöku eins og Frjálslyndir hafa boðað og Samfylkingin.

Gestur Guðjónsson, 30.5.2007 kl. 18:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband