Tekur Hafró ekki tillit til fæðuveiðanna í þorsklíkönunum
3.6.2007 | 11:09
Fyrir nokkrum árum fór ég á fund hjá Hafró. Þar komst ég að þeim mönnum sem hafa með stofnlíkanagerð að gera. Spurði ég þá, hvort þeir tækju ekki tillit til loðnu og rækjuveiðanna í fæðuhluta þorsklíkansins og afát þorsks á þá stofna. Svo var ekki.
Ef það er ekki orðið þannig í dag, er ekki skrítið að rækjan skuli vera hrunin og loðnan eins og hún er, að maður tali þá ekki um þorskstofninni sem afleiðingu af því.
Vonandi er þetta ekki rétt hjá mér, en ef svo er hafa menn brugðist skyldu sinni, þá kannski vegna hræðslu við stóru útgerðirnar sem eru hvað sterkastar í bræðslufisknum. Það eru jú þeirra hagsmunir að ná kolefninu upp sem loðnu, en "missa" það ekki upp í þorskinn, þar sem aðrir eiga þann kvóta.
"Stórmerkilegt að við skulum ekki vera búnir að eyða þorskinum" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Nýjustu færslur
- Sala Landsvirkjunnar kemur ekki til greina
- Fylgi Bjartrar framtíðar
- Vinnulag við fjárlagagerð
- Landsbyggðaskattur
- Verðbólguleiðin?
- Blindir og vanhæfir gullkálfsdansarar
- Hver verða eftirmál þingsályktunartillögunnar?
- Hengjum ekki bakara fyrir smið
- Rangtúlkun Jóhönnu og Samfylkingarinnar á Rannsóknarnefndarsk...
- Furðulegar nornaveiðar í gúrkutíð
Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Bloggvinir
- Agnes Ásta
- Albertína Friðbjörg
- Björn Ingi Hrafnsson
- Dofri Hermannsson
- Fanný Guðbjörg Jónsdóttir
- Framsóknarflokkurinn
- Guðmundur Ragnar Björnsson
- Gunnlaugur Stefánsson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Helga Sigrún Harðardóttir
- Hlini Melsteð Jóngeirsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Jónas Yngvi Ásgrímsson
- Jónína Brynjólfsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigurður G. Tómasson
- Snæþór Sigurbjörn Halldórsson
- Sóley Tómasdóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Svava Halldóra Friðgeirsdóttir
- Sveinn Hjörtur
- Valdimar Sigurjónsson
- Guttormur
- Sigurður Ellert Sigurjónsson
- Agnar Bragi
- Anna Kristinsdóttir
- Ari Jósepsson
- Arinbjörn Kúld
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Ármann Kr. Ólafsson
- Áslaug Friðriksdóttir
- Ásta
- Baldur Fjölnisson
- Baldur Sigurðarson
- Bergur Sigurðsson
- Bergþór Skúlason
- Birgitta Jónsdóttir
- Birkir Jón Jónsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Björgmundur Örn Guðmundsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bwahahaha...
- Daði Einarsson
- Egill Jóhannsson
- Einar Björn Bjarnason
- Einar Kristinn Guðfinnsson
- Einar Sigurbergur Arason
- Einar Vilhjálmsson
- Einar Þór Strand
- Eiríkur Harðarson
- ESB
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Eysteinn Jónsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- FUF í Reykjavík
- Gísli Tryggvason
- Greta Björg Úlfsdóttir
- Guðmundur Andri Skúlason
- Guðmundur Magnússon
- Guðmundur St Ragnarsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Gunnar Aron Ólason
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnar Rögnvaldsson
- Gústaf Níelsson
- Halldór Borgþórsson
- Hallur Magnússon
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Heiðar Lind Hansson
- Heimir Eyvindarson
- Heimir Tómasson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Hermann Einarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Himmalingur
- hreinsamviska
- Hrólfur Guðmundsson
- Indriði Haukur Þorláksson
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Jakob Falur Kristinsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Jakob Þór Haraldsson
- Jóhannes Guðnason
- Jóhannes Snævar Haraldsson
- Jóhann Pétur Pétursson
- Jóhann Tryggvi Sigurðsson
- Jón Aðalsteinn Jónsson
- Jónas Egilsson
- Jón Axel Ólafsson
- Jón Baldur Lorange
- Jón Finnbogason
- Jón Ólafur Vilhjálmsson
- Jón Snæbjörnsson
- Júlíus Brjánsson
- Karl Hreiðarsson
- Karl V. Matthíasson
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristín Helga Guðmundsdóttir
- Landvernd
- maddaman
- Magnús Guðjónsson
- Magnús Þór Friðriksson
- Marteinn Magnússon
- Morgunblaðið
- Oddur Helgi Halldórsson
- Ólafur Fr Mixa
- Ómar Ragnarsson
- Óskar Arnórsson
- Páll Gröndal
- Páll Vilhjálmsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ritstjóri
- Samband ungra framsóknarmanna
- S. Einar Sigurðsson
- Sigurður Árnason
- Sigurður Fannar Guðmundsson
- Sigurður Ingi Jóhannsson
- Sigurður Jónsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Viktor Úlfarsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Stefán Bogi Sveinsson
- Steinn Hafliðason
- Sædís Ósk Harðardóttir
- Sævar Helgason
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Vefritid
- viddi
- Þórólfur S. Finnsson
- Þór Saari
- Þráinn Jökull Elísson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það er fagnaðarefni að sífellt fleiri Framsóknarmenn virðast nú vera reiðubúnir að rata af villum sinna vega og endurskoða fiskveiðistjórnunarkerfið.
Mættu þeir verða sem flestir. Þú ert á réttri leið í þessum pistli. En það eru ekki kolefni sem menn sækjast eftir í loðnunni. Það eru prótein og fitusýrur.
Ég hef margoft bent á að geggjaðar og gengdarlausar loðnuveiðar um margra ára skeið eru ein af alvarlegustu mistökunum sem við höfum gert. Þær veiðar hafa stórskaðað lífríkið við Ísland. Því vak það mikinn óhug þegar LÍÚ forkólfarnir í gær nánast hlökkuðu yfir því að ráðgjöfin núna væri ekki kolsvört - það hefði nefnilega fundist loðna!
Það verður að fjarlægja þessa menn frá öllum áhrifum á veiðiráðgjöf og ákvarðanatöku áður en enn ver fer því þeim er ekki sjálfrátt í rányrkjunni. Því miður gerist það ekki því Sjálfstæðisflokkurinn verndar þessa slordóna með öllum tiltækum ráðum og Samfylkingin er bullandi meðvirk og meðvitundalaus í ruglingu því þar eru tómir veifiskatar.
En vonandi fer Framsókn að vakna. Þar hefur löngum verið margt ágætt fólk.
Magnús Þór Hafsteinsson, 3.6.2007 kl. 11:33
Gestur, þetta er rétt til getið hjá þér. Það er ekki tekið tillit til fæðuframboðs, annara spendýra en manna sem éta margfalt meira en við veiðum, afráns (stofninn étur sjálfan sig) eða hitastigs, dánastuðullinn er alltaf 20%! Þú ættir að spyrja þá hjá Hafró hvort þú megir skoða veiði- og stofnstærðarlíkanið þeirra sem mér skilst að sé ofani kjallara. Þeir voru ekki lítið stoltir þegar Gunnar tölfræðingurinn þeirra sýndi þetta fyrirbrigði í sjónvarpinu fyrir um 20 árum. Má ég þá heldur biðja um stjörnuspekikort frá Gulla Bergmann. Ég vona að framsóknarmenn og frjálslyndir taki höndum saman í stjórnarandstöðunni um að efla gagnrýna hugsun og sjálfstæðar rannsóknir í sjávarútvegi.
Sigurður Þórðarson, 3.6.2007 kl. 11:46
Á hvaða formi kolefnið er, prótein eða fitusýrur er ekki aðalatriðið. Í sjónum er ákveðin frumframleiðsla lífmassa sem við eigum að skipuleggja og hámarka verðmætin á með því að hleypa honum upp í gegnum vistkerfið og taka hann út þar sem hann nýtist sem best. Ég horfi á þetta með mínum umhverfisverkfræðiaugum, þar sem heildarmassajafnvægi skiptir meira máli en einangraður viðgangur hverrar einstakrar tegundar. Aftur á móti verð ég að segja að þær tillögur sem Frjálslyndir hafa verið með í stýringu á veiðunum tel ég ekki þær sem eru best fallnar til að ná þessari hámörkun. Aflamarkshugsunin er að mínu mati sú besta, en útfærsluna á henni og sjálfstæði þeirra vísinda sem að baki hennar þarf að búa þarf að taka til gagngerrar endurskoðunar. Tel ég að fram komi afar spennandi tillögur frá Framsókn í þessum málum á komandi misserum.
Sigurður: það eru sorgleg tíðindi sem þú staðfestir.
Gestur Guðjónsson, 3.6.2007 kl. 15:22
Forsend fyrir því að menn reyni að færa málin til betri vegar er væntanlega að viðurkenna að eitthvað megi betur fara. Á það hefur skort en við skulum ekki halda okkur við sagnfræðina. Það var vissulega gott innlegg hjá Birni Inga í dag. Aflamark á skip hefur einn stórann vankant sem er brottkast. Það' er allt gott um að menn horfi á þetta með umhverfisverkfræðingsaugum. Kannski er það sú sýn sem okkur vantar? Fram til þessa hafa verið kallaðir til talna-og hagfræðispekingar með takmarkaða líffræðiþekkingu til að láta "ljós" sitt skína. Þessir menn tala gjarnan um hagræðingu í veiðum á þorskstofninum, sem þeir hafa í eintölu og þeir átta sig þar af leiðandi ekki á að styrkur þorpanna liggur í nálægð þeirra við staðbundin fiskimið.
Sigurður Þórðarson, 3.6.2007 kl. 23:09
Sammála
Gestur Guðjónsson, 3.6.2007 kl. 23:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.