Á að birta fréttir af svona mótmælum?

Með því að birta fréttir af mótmælum þessa hóps og vekja þar með athygli á þeim, er ritstjórn viðkomandi fjölmiðils þá ekki að verða að vilja mótmælenda og þá í rauninni að taka undir málstað þeirra?

Um leið er ritstjórnin að ýta undir áframhald svipaðra aðgerða, sem eru meira í anda stjórnleysis en eðlilegrar lýðræðislegrar tjáningar.


mbl.is Mótmælin við Grundartanga standa enn yfir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingi Björn Sigurðsson

Skemmtileg athugasemt, en aftur á móti gefur þú fréttastofum tilefni til að halda áfram fréttaflutningi sínum. Líklega mest bloguðust fréttir nú um stundir, ég taldi hátt í fjörtíu "blog um fréttir" þegar Snorrabrautin var stífluð. 

Það er ljóst að það liggur fyrir samtökunum að vekja athygli og það hefur þeim tekist með litlum tilkostnaði. Eru í rauninni snilldar markaðsmenn, hversu öfug snúið sem það kann að hljóma. 

Ingi Björn Sigurðsson, 18.7.2007 kl. 21:02

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Máleið er að það ætti fyrir löngu að vera búið að víssa þessum anarkistaskríl úr landi!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 18.7.2007 kl. 21:32

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Í endurhæfingu!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 19.7.2007 kl. 00:10

4 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Nei þarna þurfa fréttamenn að vega og meta ákveðna hluti Gestur og ég tek undir þessa spurningu með þér sem sjálfsagða og eðlilega .

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 19.7.2007 kl. 01:10

5 Smámynd: Guðmundur Örn Jónsson

Er ekki á sama hátt verið að ýta undir hryðjuverk með því að segja fréttir af þeim?  Er ekki á sama hátt verið að ýta undir svokölluð sæmdarmorð með því að segja fréttir af þeim? 

Ég næ ekki alveg hvert þú ert að fara.  Eigum við að beita sömu aðferðum og í gamla Sovét, og segja frá því sem gerist árum eða áratugum seinna?  OK ég veit að þetta er útúrsnúningur hjá mér því ég þykist vita að þú sért ekki að óska eftir sovéskum aðferðum.  En ég held að ritstjórnir séu ekkert endilega að taka undir málflutning mótmælenda með því að segja fréttir af mótmælum, ef svo væri þá væru þeir að taka undir ansi margan málflutninginn.

Guðmundur Örn Jónsson, 19.7.2007 kl. 09:57

6 Smámynd: Salvör  Kristjana Gissurardóttir

Já, Gestur það á að birta fréttir af svona mótmælum. Það skiptir engu máli þó það séu örfáir og engir taki undir málstaðinn. Það er mælikvarði á hversu gott samfélagið er að það sé líka hlustað á hjáróma raddir, líka raddir þeirra sem eru fyrirlitnir, smáðir og hæddir. Það er verst stjórnsýsla í þeim löndum þar sem aðeins fá að hljóma í fjölmiðlum raddir sem mæra og hrósa valdhöfum.

Við eigum að hlusta kurteislega á þá sem gagnrýna og meta hvort sú gagnrýni er reist á rökum og hvort ef til vill sé skynsamlegt að taka tillit til hennar. Ef það er ekki hægt núna þá í framtíðinni.

Annars eru oft fluttar fréttir af fámennum atburðum og uppákomum, oft svo fámennum að fréttamenn eiga erfitt með að fylla upp í myndflötinn af fólki, það eru svo örfáir mættir.  

Salvör Kristjana Gissurardóttir, 19.7.2007 kl. 12:53

7 identicon

Ég tek undir orð Guðmundar og Salvörar.. Reyndar voru þessi mótmæli smá ferskur vindur í gúrkutíðinni.. en það má kannski ekki segja það upphátt..

Björg F (IP-tala skráð) 19.7.2007 kl. 14:40

8 Smámynd: Gestur Guðjónsson

Ég get alveg tekið undir með þeim sem þykir eðlilegt að sagt sé frá þessu, en þegar ég skrifaði færsluna voru 3 fréttir af þessu "máli" á mbl.is. Það er margt fleira merkilegt að gerast í samfélaginu sem ekki er sagt frá, sem með sömu rökum og beitt hefur verið hér, ætti að segja frá... Ritstjórnir stunda að sjálfsögðu ritskoðun, það er þeirra starf og þurfa að fara varlega og yfirvegað með það "vald" sitt, sem þær hafa fengið frá eigendum sínum.

Gestur Guðjónsson, 19.7.2007 kl. 21:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband