Er það vitleysa í mér eða eru fleiri rónar á götunum núna?

Kannski er það góða veðrið, reykingabannið eða kannski frekar lokun Byrgisins og Gunnarsholts, allavegana finnst mér vera fleiri útigangs- og ógæfumenn á götunum í miðbænum núna. Er ég einn um það?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tryggvi H.

Góð regla þegar maður telur sig sjá breytingar í samfélaginu að líta fyrst á breytingar hjá manni sjálfum. Í þessu tilfelli gæti verið um að ræða að þú ert sjálfur svo fínn til fara að fólk líður fyrir samanburðinn,

en nei í fullri alvöru þá hlýtur að vera um fjölgun að ræða og vert að taka alla tölfræði um búsetuúrræði fólks með fyrirvara, "rónar" eða "ógæfufólk" er jafn róna- eða ógæfulegt hvort sem það hefur í húsaskjól.

Tryggvi H., 24.7.2007 kl. 16:58

2 Smámynd: Albertína Friðbjörg

Sæll - ég tók einmitt eftir þessu þegar ég skrapp suður um daginn og velti fyrir mér því sama - væri áhugavert að sjá e-r raunverulegar tölur varðandi þetta en mín tilfinning er að þetta hafi aukist.

Albertína Friðbjörg, 24.7.2007 kl. 17:59

3 Smámynd: Rósa Harðardóttir

Ég tel að það sé aukning á ógæfufólki og heimilislausum. Ég brá mér niður í bæ s.l. laugardagsmorgun og þá voru eingöngu ferðamenn og rónar í bænum, mér brá frekar.  Þetta kom einnig fram í Kastljósi í kvöld þar sem var viðtal við dóttur ógæfumanns og krabbameinssjúklings og fyrrverandi ógæfumann.

Rósa Harðardóttir, 24.7.2007 kl. 22:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband