Látum einskis ófreistað í baráttunni við þessa djöfla

Öflug greiningardeild, gott eftirlit með landhelginni og öflugt landamæraeftirlit eru hlutir sem horfa verður á með jákvæðum augum, þegar menn standa andspænis fíkniefnavánni.

Mér er satt best að segja slétt sama hvort ég eigi á hættu að það sé auðvelt fyrir lögreglu að hlera símann minn eða hvað eina, meðan dópsalar fara inn á skólalóðir og reyna að tæla börnin okkar inn í þetta helvíti.

Það verður bara að hafa það. Rétturinn til lífs er og verður æðstu mannréttindin, annað kemur á eftir.


mbl.is Dómsmálaráðherra: Athugunarefni að nýta búnað ratsjárstofnunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Geir Ágústsson

Þegar þú segir "einskis ófreistað", ertu þá að opna á fyrirvaralausar húsleitir lögreglu í þínum skúffum og hillum hvenær sem er sólarhrings, með eða án rökstudds gruns? "Einskis ófreistað" er a.m.k. túlkað þannig í Bandaríkjunum sem er komið mun lengra í óskadraumi þínum en Ísland í meintri baráttu gegn fíkniefnavánni.

Geir Ágústsson, 23.9.2007 kl. 22:01

2 Smámynd: Hreiðar Eiríksson

Ég legg til að Gestur sæti fyrirvaralausum húsleitum, handtökum, líkamsrannsóknum og yfirheyrslum en aðrir sem vilja halda í grundvallarmannréttindi fái að gera það óáreittir. 

Ég kem tvisvar á dag á skólalóð.  Þar sitja engir fíkniefnasalar í sendiferðabílum og tæla krakkana til sín.  Sennilega eru einhver börn í eldri deildunum byrjuð að neyta áfengis, sem þau hafa fengið hjá foreldrum sínum, og svo hafa þau leitað uppi önnur efni ef þau hafa haft áhuga á. 

Það er skrítið hvað fólk er upptekið af þeirri hugmynd að ef við bara afsölum okkur mannréttindum okkar, þá verði allt gott og allir öruggir.  Samt hefur þetta oft verið reynt og niðurstaðan hefur alltaf verið sú sama - Þá fyrst erum við berskjölduð þegar mannréttindanna nýtur ekki við.

Hreiðar Eiríksson, 23.9.2007 kl. 22:36

3 Smámynd: Þórbergur Torfason

Ég hef áður viðrað þá hugmynd, að leita uppsprettu fjármunanna sem eytt er í þetta. T.d. með þeirri aðferð að vægja þeim sem vísað getur veginn áfram. Það er að segja, ef sá sem gripinn er eins og í tilfelli þessara skútupunga á Fáskrúðsfirði geti leitt málið til næsta aðila og frt sönnur á það, sé tekið eilítið vægar á þeim. Ég held að það sé alveg nauðsynlegt að komast að fjármögnunaraðilanum og upplýsa hvernig auður hans varð til. Það er ótrúleg skítalykt af þessu helvíti öllu saman.

Þórbergur Torfason, 23.9.2007 kl. 23:37

4 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Eftirspurn eftir fíkniefnum leiðir af sér smygl, stöku sending sem gerð er upptæk breytir engu um þá staðreynd. 

Sigurður Þórðarson, 24.9.2007 kl. 08:04

5 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ég get alveg fallist á það að það sé hleraður síminn hjá Gesti fyrst hann vill það ef það getur orðið til gagns. Ég vil aftur á móti ekki láta hlera símann minn.

En án gríns þá tek ég undir það með þér Gestur að fíkniefni eru hrikaleg vá.   

Sigurður Þórðarson, 24.9.2007 kl. 08:15

6 Smámynd: Gestur Guðjónsson

Geir: Ég ætla rétt að vona að amerískt ástand muni ekki koma yfir íslensku þjóðina. Það þarf að sjálfsögðu alltaf eðlilegan gang hluta, en ég er kannski að tala gegn þeim sem vilja minnka rétt lögreglunnar í krafti "mannréttinda".

Hreiðar: Þú ert ágætur.

Þórbergur og Sigurður: sammála ykkur, það þarf að berjast á öllum vígstöðvum. En það er alveg ljóst að það magn sem hefði komist inn á markaðinn, hefðu skútuverjar komist með sitt inn, hefði leitt til fleiri neytenda.

Gestur Guðjónsson, 25.9.2007 kl. 08:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband