Fáránlegur málflutningur Eiríks Bergmann

Evrópusinninn, stjórnmálafræðingurinn, dósentinn, en ekki síst Samfylkingarmaðurinn Eiríkur Bergmann leyfir ekki athugasemdir á bloggi sínu. Í sinni seinustu færslu segir hann:

"Birkir Jón Jónsson, sem kynnir sig stjórnmálamann á Alþingi og í Framsóknarflokknum, fellur í þann grautfúla pytt sumra stjórnmálamanna sem þrýtur rök að ráðast að starfsheiðri manna"

Það áhugaverða við færslu Eiríks er að hann kemur ekki með nein rök eða skýringar á því hvernig hann kemst að þessari niðurstöðu.

Er Eiríkur hafinn yfir það að gera grein fyrir upphrópunum sínum í krafti stöðu sinnar?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Svokallaðir jafnaðarmenn eru jafnan  jafnaðri en
aðrir..........

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 18.11.2007 kl. 14:08

2 Smámynd: Stefán Jónsson

Sæll Gestur. Ég get tekið undir að þessi grein Eiríks er blátt áfram hlægileg. Maðurinn hefur nákvæmlega ekkert málefnalegt fram að færa og fer bara með einhverja tóma þvælu, eins og að leggja Birki þau orð í munn að "... Guðmundur Ólafsson, hagfræðingur, beri ábyrgð á vanda Framsóknarflokksins."
Svo er það ansi djúpt í árina tekið að Birkir ráðist að starfsheiðri Guðmundar Ólafssonar, þó hann bendi á að hagfræðingurinn setji fram svo heimskulega kenningu að meðal grunnskólakrakki geti séð að hún er röng.

Stefán Jónsson, 18.11.2007 kl. 16:14

3 Smámynd: Eiríkur Bergmann Einarsson

Sælir

Ég gerði nú ekki annað en að afrita færslu Birkis Jóns, svo gott sem orðrétt, en svissaði nafni Guðmundar Ólafssonar út fyrir hans eigið og hermdi upp á hann sjálfan með oggulitlum staðfæringum. Sjá færslu Birkis: http://www.birkir.blog.is/blog/birkir/entry/367253/.

Kær kveðja, Eiríkur 

Eiríkur Bergmann Einarsson, 18.11.2007 kl. 17:22

4 Smámynd: Magnús Þór Hafsteinsson

Þetta er vont að sjá.

Varla getur verið að þetta sé sami hlutlausi fræðimaðurinn og uppnefndi mig Magnús "Le Pen" og Jón Magnússon Jón "Hagen" á bloggi sínu fyrir nokkrum mánuðum?

Að sjálfsögðu án þess að gefa færi á andsvörum, enda þessi maður meintur boðberi upplýstra umræðustjórnmála á landi hér.

Magnús Þór Hafsteinsson, 18.11.2007 kl. 17:35

5 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Tók eimitt eftir þessu og fannst snjallt af Eiríki að nota sama málflutning og hann gagnrýndi, orðum sínum til áherslu. Gaman að sjá að menn gengu í gildruna hehe.

Annars er ég ekki að draga dám af neinni pólitík hér enda óflokksbundinn, en hef alltaf gaman af svona rökræðuhókuspókus. 1-0 fyrir Eiríki. Ad Hominem vírusinn er orðinn krónískur í stjórnmálaumræðu hér og gott að á hann sé bent.

Jón Steinar Ragnarsson, 18.11.2007 kl. 17:46

6 Smámynd: Gestur Guðjónsson

Birkir Jón Jónsson er alþingismaður fyrir Framsóknarflokkinn og felur sig hvergi í þeim efnum. Lesendur hafa þar með alla möguleika á að lesa málflutning þeirra í því ljósi. Það er aftur á móti sorglegt þegar menn fela sig á bakvið starfstitla þegar menn eru í raun boðberar ákveðinna stjórnmálaflokka. 

Gestur Guðjónsson, 18.11.2007 kl. 18:40

7 Smámynd: Stefán Jónsson

Guðmundur Ólafsson hefur margt gott til málanna að leggja og því skil ég ekki að hann hafi komið með jafn fáránlega fullyrðingu og að Íbúðalánasjóður beri einhverja ábyrgð á hækkun húsnæðisverðs.
Þetta hefur kannski átt að vera hagfræðibrandari.
Það sér það hver maður að bankarnir ætla að beita öllum brögðum til að ganga af sjóðnum dauðum til að geta okrað enn meira á okkur en þeir gera í dag.

Stefán Jónsson, 18.11.2007 kl. 20:12

8 identicon

Heill og sæll, Gestur og aðrir skrifarar !

Hvaða helvítis hræsni; er þetta, Gestur minn ? Ekki það, að ég ætli að bera nokkurt blak af Eiríki Bergmann, nema síður sé, Brussel kálfinum þeim, en,..... hvað með Birki Jón sjálfan ? Hví felur hann sig, bakvið athugasemdaleysið, á síðu hans sjálfs ? Hefir hann kannski; eitthvert óhreint mjöl, í pokahorninu, Gestur minn ?

Er Birkir Jón kannski ein, síðustu dreggja Halldórs Ásgrímssonar, viðlíka kerlingunni frá Lómatjörn, sem og hrappinum Birni Inga Hrafnssyni, innan ykkar flokks ?

Já, Gestur minn; Björn Ingi Hrafnsson er einn þeirra, hverjir véla þessi dægrin, um örlög og framtíð Orkuveitu Reykjavíkur. Vill svo til; að ég og mín fjöskylda, greiðum hitaveitureikninga okkar, til téðrar Orkuveitu, því lítilmenni þau, hver fóru með völdin, hér; í Efra- Ölfusi (Hveragerði), fyrir nokkru, færðu þáverandi Hitaveitu Hveragerðis Reykvízku stofnuninni; hitaveitu Hvg., á silfurfati.

Manni getur nú runnið í skap, Gestur minn ! Seint mun ykkur takast; að þvo flokk ykkar, af spillingaródauninum, fremur en núverandi stjórnarflokkum, a.m.k. sýnir Guðni Ágústsson enga tilburði, í þá veru, að hreinsa út Halldórs hyskið. 

Mbk. / Óskar Helgi Helgason      

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 19.11.2007 kl. 01:12

9 Smámynd: Gestur Guðjónsson

Sæll sjálfur.

Það er ekki erfitt að halda uppi vörum fyrir jafn góðan stjórnmálamann og Birki Jón. Harðduglegan með hjartað á réttum stað.

Þú veist vel hvernig MBA námi er háttað, en það er skipulagt þannig að tíminn er tekinn af fjölskyldulífi þeirra sem það stunda. Birkir Jón er barnlaus og býr að því að ég best veit einn og er því ekki að stela tíma af neinum. Sveitarstjórnarmenn eru iðulega á þingi, sem betur fer.

Gestur Guðjónsson, 19.11.2007 kl. 22:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband