Agaleysi í efnahagsstjórninni viðurkennt
10.3.2008 | 00:19
Ágúst Ólafur Ágústsson sagði í Silfri Egils í dag að ef við sæktum um ESB aðild, myndi aginn í hagsstjórninni aukast.
Varaformaður Samfylkingarinnar viðurkennir sem sagt að aginn í efnahagsstjórninni sé ekki nægur. Það er nákvæmlega það sama og Framsókn hefur bent á. Að halda því fram að afgangur á fjárlögum sé merki um aga og aðhald, meðan að allir aðrir í kringum horfa í útgjöld ríkisins þegar talað er um aðhald er hreint bull.
Útgjöld ríksins jukust með síðustu fjárlögum um 20%. Það er hrein firra að halda því fram að það sé aðhald. Það þarf engan hagfræðing til að sjá það.
Ágúst endurtók staðhæfingu Árna Páls Árnasonar um að yfirlýsing um aðildarumsókn að ESB myndi ein og sér bæta stöðu okkar. Líklegast er það rétt. En það væri ekki vegna þess að innganga okkar í ESB væri endilega besta lausnin. Það væri vegna þess að þá væri ríkisstjórnin að sýna að hún hefði þó að minnsta kosti einhverja stefnu.
Í dag hefur ríkisstjórnin enga stefnu til breytinga og það er það sem er ótrúverðugt.
Ef gefin yrði út yfirlýsing um að við ætluðum að halda krónunni áfram en breyta peningamálastefnunni, t.d. með breyttum verðbólgumarkmiðum, auknum gjaldeyrisvaraforða eða hvað eina af þeim atriðum sem verið hafa í umræðunni, myndi það einnig hafa jákvæð áhrif.
Þegar við erum svo komin í þá stöðu að geta tekið ákvörðun um meiri grundvallarbreytingar, er um að gera að skoða alla möguleika. En fyrst þarf að ná stöðugleika og hann næst ekki nema með aðgerðum sem byggja á einhverri stefnu og aga til að framfylgja henni. Það hefur ekki verið tilfellið í tíð núverandi ríkisstjórnar og það hefur varaformaður Samfylkingarinnar nú viðurkennt.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Þetta eru afar athyglisverð ummæli frá stjórnarliða
Steinn Hafliðason, 10.3.2008 kl. 14:26
eins og fyrr hittirðu naglann á höfuðið félagi- það er stundum svo að betra er illt að gera en ekki neitt og á við um stjórnarbandalag það sem nú situr að völdum og á eiginlega ekki skilið að vera kallað ríkisstjórn - það eina sem flokkarnir gera eru að verja hvorn annan falli,- hægri höndin berst alltaf gegn því sem sú vinstri gerir og öfugt,- já reyndar mjög mikið öfugt!
Bjarni Harðarson, 10.3.2008 kl. 17:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.