Kapphlaup um losunarkvótann
12.3.2008 | 21:58
Að fengnu þessu framkvæmdaleyfi virðist hægt að hefja byggingu álversins í Helguvík.
Þótt ekkert standi í vegi fyrir byggingu álversins sem slíks, liggur samt ekkert fyrir um hvort rekstraraðilum verði mögulegt að reka það. Til að reka álver þarf nefnilega losunarkvóta og smámuni eins og orku heim að dyrum.
Úthlutunarnefnd losunarheimilda og Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra, að kærðri niðurstöðu nefndarinnar, er í afar þröngri stöðu ef hún ætlar sér að taka fleiri sjónarmið en fyrstur kemur fyrstur fær í sinni úthlutun, þegar hún þarf að velja milli Helguvíkur og Húsavíkur í úthlutun sinni. Það er erfitt að sjá að byggðasjónarmið og umhverfisáhrif þeirrar orkuöflunar sem þarf við útdeilingu þessara gæða fái nokkru ráðið, að útgefnu þessu framkvæmdaleyfi, en í lögum um losun gróðurhúsalofttegunda segir:
"Umsækjendur sem hafa þegar starfsleyfi og/eða eru komnir langt í undirbúningi framkvæmda skulu njóta forgangs við ákvörðun um úthlutun losunarheimilda í áætlun úthlutunarnefndar umfram aðra sem skemmra eru komnir í undirbúningi."
Þetta er mergurinn málsins og ástæða þessa hamagangs í Suðurnesjamönnum. Sá aðili sem kominn er lengra í undirbúningi nýtur forgangs. Þannig að jafnvel þótt framkvæmdaleyfið sé byggt á grunnum gögnum eins og umhverfisráðherra heldur fram, er Helguvíkurverkefnið nú komið með fleiri krossa í kladdann en Húsavík, jafnvel þótt ekki sé búið að tryggja orku, flutningsleiðir eða útkljá kærumál. Hvaða vægi þessi kross hefur á eftir að koma í ljós.
En þetta eru ekki góðar fréttir fyrir Húsvíkinga. Sérstaklega þegar ríkisstjórnin talar út og suður um málið. Engin stefna. Maður fer að halda að það séu 12 ríkisstjórnir í þessu landi.
Framkvæmdaleyfi vegna Helguvíkurálvers afgreitt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:28 | Facebook
Athugasemdir
Sjálfstæðisbarátta Íslendinga á seinni hluta 19. aldar og í byrjun þeirrar tuttugustu var baráttan við Kaupmannahafnarvaldið. Sjálfstæðisbarátta fólks úti á landi í upphafi 21.aldar er baráttan við Reykjavíkurvaldið.Suðurnesjamenn leiða þá baráttu.Suðurnesjamenn eru loks búnir að átta sig á því að það eru þeir sjálfir sem eiga að ákveða hvernig og hvort atvinnustarfsemi fer fram á Suðurnesjum.Fólk úti á landi lifir ekki af nema það ráði sínum málum sjálft,en ekki öfgafólk á og kringum Seltjarnarnesið, sem er að stærstum hluta á launum hjá ríkinu og heldur að verðmætasköpunin í þjóðfélaginu verði til hjá því.Höfnum forsjá Tjarnarinnar í R.vík, og þeim vitsmunumsem þar eu.
Sigurgeir Jónsson, 13.3.2008 kl. 11:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.