Er landbúnaðarráðherra að skapa ríkinu skaðabótaábyrgð?

Með því að heimila innflutning á hráu kjöti eykst hættan á því að ýmsir þeir búfjársjúkdómar sem hrjá bústofna nágranna vorra berist í okkar búfénað.

Það að við séum laus við þessa sjúkdóma er ein helsta ástæða þess hversu lítil lyfjanotkun er í íslenskum landbúnaði, sem er stór þáttur í því hversu heilnæmar afurðirnar eru.

Þegar þessa sóttir kæmu til landsins leggjast þær enn ver á íslenska bústofninn og veikja mun fleiri dýr, þar sem hann hefur engar náttúrulegar varnir gegn þeim. Eins er hætt við að fleiri en ein sótt kæmi til landsins samtímis, þannig að endurtekin sýking gæti lagt enn fleiri en ella, þar sem dýrin væru veik fyrir.

Mér er spurn, þar sem það er ekkert sem knýr á um þessa breytingu, hvort ráðherra sé ekki að skapa ríkinu skaðabótaábyrgð gagnvart því stórtjóni sem hann gæti verið að valda íslenskum landbúnaði með þessari ákvörðun sinni, þá bæði meðan að sóttirnar eru að ríða yfir sem og sá aukni lyfjakostnaður sem henni fylgir óneitanlega?

Ég sé að kratar eru þegar farnir að fagna, en þeir hafa síðan tilraunabúskapur þeirra við Krýsuvík mistókst ávallt barist gegn íslenskum landbúnaði, nú síðast með því að leggja til niðurfellingu á tollum á kjötvörum. Sú tillaga hljómar nógu sakleysisleg og sanngjörn, en það sem viðskiptaráðherra segir ekki eða veit ekki er að aðföng og framleiðsla þessara afurða er niðurgreidd erlendis, eitthvað sem ekki er til að dreifa hérlendis.

Það verður áhugavert að fylgjast með því hvernig þessu mun vinda fram.


mbl.is Landbúnaðarráðherra boðar tímamótabreytingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Þarna er ráðherra kominn út á mjög hálan ís. Fróðlegt hvað sjálfstæðismenn í
bændastett segja.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 5.4.2008 kl. 14:01

2 Smámynd: Kristján Eldjárn Þorgeirsson

Sammála þér að öllu leyti Gestur! Ég vil minna á að flest allir sjúkdómar sem herjað hafa á íslenskt búfé eru annað hvort komnir til landsins með búfjartilraunum, t.d. fjárkláðarnir og mæðiveikin sem geysuðu á íslenskt sauðfé á árum áður voru þannig til komnir að reynt var að kynbæta íslenska sauðféð með innflutningi á liffé, eða með ónærgætni gagnvart hreinsunum á t.d. á reiðtygjum, en þannig var talið að hrossaveikin, sem geysaði hér árið 1998, væri til komin.

Kristján Eldjárn Þorgeirsson, 5.4.2008 kl. 14:13

3 Smámynd: Skákfélagið Goðinn

Sammála þér Gestur. Þetta er heimskuleg ákvörðun hjá ráðherra og getur endað illa.

Skákfélagið Goðinn, 5.4.2008 kl. 15:04

4 identicon

Heill og sæll; Gestur og aðrir skrifarar !

Vel mælt; Gestur. Þarna fara skoðanir okkar saman, sem og réttmæt lýsing þín á, raunverulegri hættu, sem af hrámetinu kynni að hljótast.

Þakka þér fyrir; að geta sóðaskapar kratanna, líka sem áratuga fjandskapar þeirra, gegn íslenzkri bændastétt. 

Með beztu kveðjum, sem fyrr / Óskar Helgi Helgason

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 5.4.2008 kl. 22:30

5 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Gestur.

Held að hér sé illa ígrunduð ákvarðantaka vægast sagt.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 5.4.2008 kl. 23:59

6 Smámynd: Anton Þór Harðarson

Það er skrýtið hvað mikið af fólki er hérna á meginlandi evrópu, miðað við hvaða hræðilega óæti sem landbúnaðrvörur, framleiddar utan íslands eru.

Anton Þór Harðarson, 6.4.2008 kl. 09:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband