Þáttaskil í ESB?

Eitt er víst. Það Evrópusamband sem við erum að íhuga að sækja um aðild að nú verður annað Evrópusamband en það sem okkur ber vonandi gæfa til að sækja um aðild að og enn annað en það Evrópusamband sem við myndum svo ganga í, ef við næðum samningi sem þjóðin meti að bæti hag sinn.

Evrópusambandið hefur verið að þróast í átt til eiginlegs þjóðríkis, en í öllum þjóðaratkvæðagreiðslum um slík mál eru þær að falla eða að samþykkjast með afar naumum meirihluta.

Þau skilaboð hljóta stjórnendur ESB að fara að skilja.

Efnahagskreppan sem ríður núna húsum mun einnig ýta í sömu átt. Þjóðríkin hafa verið að horfa í eigin barm og vera sjálfum sér næst, sem hefur óhjákvæmilega það í för með sér að ESB hlýtur að fara að grynnast á ný og þróast meira í átt að því efnahagsbandalagi, sem það var í upphafi.


mbl.is Tekist á um kreppuviðbrögð í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Vilhjálmsson

Takk fyrir þetta. Heiti potturinn leysti þessi mál í kvöld. Jarðfræðin fær að ráða för. Jarðskorpan markar skil efnahagslegrar samvinnu og réttindi samtarfsaðila okkar. Bandaríkjanna annars vegar og Noregs hins vegar. Við tökum upp nýja mynt , norskan-dollar,  og verðgildi hans miðað við hlutfallslega venslun hagkerfanna og niðurstöðu samninga um efnahagslega samvinnu og tryggingu. Stofnaður verður einn sameiginlegur lífeyrissjóður allra landsmanna - allir jafnir þar. Eignir landsmanna í bönkunum, skuldir fyrirtækja, verða færðar niður í efnahagsreikningi, frá skuld í eigið fé og hluturinn sameign þjóðarinnar. Skuldir heimilanna verðar verða færðar niður sem nemur því hlutfalli sem hver og einn valdi að skuldsetja eign sína en verðið miðað við byggingakostnað í löndunum þremur. Bandarískur banki yfirtekur tvo íslensku bankanna en Íslendingar og Norðmenn sameinast um aðra bankastarfsemi í dreifðri eignaraðild. Íslenskir bankastarfsmenn fá ný og spennandi tækifæri hjá banka á við City Bank. Auðlindir og forgangssamstarf um þær mótast af jarðfræðilegri legu. Þannig ættu Norðmenn forgangsaðgang að samstarfi um Drekasvæðið en Bandaríkin allt svæðið vestan við sprungumótin frá Reykjaneshrygg að Kleifarvatni og svo norðaustur í gegnum landi. Allur lífmassi í hafi, ám og vötnum verður sameign þjóðarinnar þótt núverandi nýtingaréttur verði virtur, vatnsföll af öllum toga einnig sem og orkubúskapur  þjóðarinnar gjörvallur auk landsins alls að öðru leiti. Náttúra landsins mun í auknum mæli færast í þjóðlega umsýslan og lúta ströngustu skilyrðum um sjálfbærni og samfélagslega ábyrga ræktun. Margt fleira kom fram í heita pottinum enda var skipuritið og verklagsferlið allt klárað á 40 mínútum enda karlarnir sumir orðnir ansi estrogenískir hlutfallslega séð út af hitanum og gátu því gert eitthvað annað en tuða. Heiti potturinn er ekki sem verstur sjálfur

Einar Vilhjálmsson, 2.12.2008 kl. 03:37

2 Smámynd: G. Tómas Gunnarsson

Það er fátt sem bendir til þess að "Sambandið" grynnist.  Þvert á móti.  Ríkin eru enda á fullri ferð að koma "Lissbon" í gagnið, bara efir öðrum leiðum, nú þegar er farið að ræða hvenær Írar muni kjósa aftur.

Kreppan mun verða og er notuð til að hraða á samrunaferlinu, því þegar fólk og þjóðir eru "efnahagslega hrædd" er andstaðan minni.  Það mun verða (og er) bent á að það þurfi samrædd og miðstýrð viðbrögð við kreppum eins og þessari og ég hef heyrt það nú þegar að kreppan hefði aldrei orðið svona djúp ef "stjórnarskráin" hefði verið samþykkt.

En það er að flestu leyti líka rökréttasta leiðin fyrir "Sambandið".  Sameiginleg mynt varðaði vegin til frekari samruna, til lengdar ganga myntbandalög ekki upp, það gera ríki hins vegar.

G. Tómas Gunnarsson, 2.12.2008 kl. 03:37

3 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Semsagt;

Lissabon samþykktin felld í þjóðaratkvæðagreiðslu EN

SAMT skal koma henni í gegn.  Ef marka má innslag  G. Tómasar Gunnarssonar

Upprfræðandi

Miðbæjaríhaldið

Lýðræðisástinni eru engin takmörk sett.

Bjarni Kjartansson, 2.12.2008 kl. 09:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband