Hámörkun verðmæta úr sjó

Hafrannsóknastofnun er sú stofnun sem á að hafa heildaryfirsýn yfir lífríkið í sjónum og veita ráðgjöf um hversu mikið er hægt að veiða af hverri tegund.

Ef ég hef fylgst rétt með byggist sú ráðgjöf reyndar ekki á margstofna líkani, þar sem áhrif veiðiálags á einn stofn á annan stofn eru reiknuð með.

Til dæmis er ljóst að loðnuveiðar hafa bein áhrif á rækjustofninn, þar sem báðar tegundir eru fæða þorsks og annara tegundaí.

Þess vegna verður að fara að taka ákvarðanir um kvóta á grundvelli hámörkunar heildarverðmæta úr sjó. Kannski borgar sig að geyma loðnuna í sjónum sem fæðu fyrir þorskinn, þannig að hann éti minna af rækju og verði kannski feitari sjálfur?


mbl.is Mikil óvissa um loðnuvertíðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristinn Gestsson

Þetta er sjónarmið sem sjómenn hafa verið að benda á árum saman. Það liggur í hlutarins eðli að það er ekki hægt að byggja upp þorskstofn uppá 2,5 milljónir tonna ef hann hefur ekkert að éta. En það er með þetta eins og annað ef það fellur ekki að þeim fræðum sem viðurkennd eru við Skúlagötuna er það dæmt sem bull því miður er þetta þannig.

Kristinn Gestsson, 20.12.2008 kl. 21:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband