bretar komnir í nýtt þorskastríð

gordon brown, forsætisráðherra bretlands, hefur farið fram á það við íslensk stjórnvöld að þau gangist í ábyrgðir fyrir allar innistæður breskra aðila hjá íslenskum bönkum í bretlandi.  Fer hann fram á 20 milljarða punda í því sambandi.

Hótar hann því að allar eignir íslenskra fyrirtækja verði frystar til að ná fram kröfum sínum.

Það stenst náttúrulega ekki nokkra alþjóðasamninga og lýsir þvílíkri heimsku brown á ögurstundu.

bretland er sem sagt komið í nýtt þorskastríð við Íslendinga, þar sem þorskurinn er gordon brown.

Okkar næsta skref er að skapa ofsahræðslu meðal erlendra fyrirtækja í bretlandi, þannig að þau flýi umvörpum með fjármuni sína. Þau geta náttúrulega ekki treyst bretum fyrir horn með nokkurn hlut eftir þetta. Réttast væri að byrja á því að lista upp þau fyrirtæki í bretlandi sem hafa einhverja tengingu við Ísland, svo væri hægt að fara í tengingar við lönd sem eiga einnig innlánsreikningafyrirtæki í bretlandi. Það myndi þýða algert hrun bresks efnahags.

Öll heimspressan er hér, svo það er auðvelt að koma skilaboðunum á framfæri.


mbl.is Sendinefnd Breta væntanleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrói Höttur

Brown er að gera það sama og Hitler gerði til að þjappa fólkinu saman,Hitler notaði gyðingana eins og Brown notar okkur,sagan á það til að endurtaka sig,þetta er besta leiðin til að beina augum fólksins frá eigin vandamálum bara finna einhvern til að hata.

Hrói Höttur, 10.10.2008 kl. 12:28

Hrói Höttur, 10.10.2008 kl. 12:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband