Stjórnarmeirihlutinn tekur fjárlögin í gíslingu

Það er undarleg staða komin upp á Alþingi nú þegar stjórnarmeirihlutinn hefur tekið fjárlagagerðina í gíslingu til að koma Icesave-málinu í gegn.

Minnihlutinn ætlar með réttu að reifa málið vel í þingsal, enda var því þröngvað hálfunnu út úr nefndum, en vilja af ábyrgð að sú umræða tefji samt ekki önnur brýn mál, eins og fjárlagaumræðuna.

Það vill ríkisstjórnin ekki og stjórnarmeirihlutinn hlýðir og er þar með búið að taka fjárlagagerðina í gíslingu, til þess að koma þessum óskapnaði í gegnum þingið.

Hvað er þessi meirihluti eiginlega að hugsa? Ekki þjóðarhag, svo mikið er víst.


mbl.is Þinginu haldið í gíslingu málþófs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes H. Laxdal

Er þetta ekki sama ríkisstjórnin gerði með bæði ESB umsóknina og IceSave Part 1,  lætur önnur mikilvægari mál sitja á hakanum og neitar að taka þau upp fyrr en hún fær sínu framgengt.

Jóhannes H. Laxdal, 27.11.2009 kl. 16:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband