Hvernig líður tilraunum með keramikskautin?

Fyrir nokkrum mánuðum heyrði ég fréttir af því að verið væri að gera tilraunir með nýja tegund skauta, sem væru ekki byggð á kolum, heldur keramiki og væru því án losunar gróðurhúsalofttegunda. Ker Alcoa ku geta tekið þau skaut í notkun.

Slíkt myndi gerbreyta umhverfisáhrifum álveranna. Í stað losunar gróðurhúsalofttegunda, myndi hreint súrefni losna úr kerjunum.

Það væri gaman að heyra frá Alcoa hvernig þær tilraunir gangi.


mbl.is Fyrsta álið framleitt í álveri Alcoa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnarráðið inc

Það er ekki einleikið hvað stuttbuxnadrengir Sjálfstæðisflokksins eru duglegir. Nú kemur áróður, kostaður af Viðskiptaráði, um að ríkið eigi að losa sig við fangelsið við Arnarhól, Seðlabankann, Alþingishúsið og allar aðrar húseignir ríkisins, selja það einhverjum aðila sem leigði þeim það svo aftur...

Hreinn pólitískur áróður fyrir Sjálfstæðisflokkinn, greiddur af einhverjum öðrum. Svipað og greiningar ASÍ eru að nýtast Samfylkingunni beint.

En heyr á endemi. Einkarekstur á vel við á vissum stöðum, sérstaklega í nýbyggingum. Höfðaborg er ágætt dæmi um það, meðan að hús nefndasviðs Alþingis við Austurvöll er ömurlegt dæmi um það sama. En að afsala sér langtímayfirráðum yfir þjóðargersemum til einkaaðila sem fara að beita algerri hagkvæmni í rekstri (les draga viðhald eins og hægt er) kemur einfaldlega ekki til greina.

Ríkissjóður er skuldlaus og því þarf ekki að selja eignir til að greiða niður skuldir, það er búið að því. Nú er um að gera að reka ríkissjóð sem gegnumstreymissjóð, sem hægt er að nýta með fullu afli til að stýra efnahagslífinu


mbl.is Segir hagkvæmt fyrir opinbera aðila að selja fasteignir sínar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nethal - sniðug leið til að senda skjöl á milli

Félagi minn er búinn að setja upp sniðuga þjónustu. Fría skráasendingu fyrir stór skjöl, allt að 500 MB. Þjónustan er einungis til sendinga innanlands og til sendinga frá Íslandi til útlanda, en ekki til landsins. Þess vegna er hægt að hafa hana gjaldfrjálsa, keyrða á auglýsingum.

Þú hleður skránni á netþjón þeirra, kerfið sendir tölvupóst á þann sem taka á við skjalinu. Móttakandinn fær sem sagt sendan tölvupóst með leiðbeiningum og slóð sem hann á að fara inn á. Þú getur náttúrulega líka sent skjalið á sjálfan þig ef þú ert t.d. að fara með kynningu á milli húsa.

Þannig þarf ekki að hlaða skjölunum inn í tölvupósta og senda, sem tekur pláss í tölvupóstþjónum og margir póstþjónar heimila bara takmarkaða stærð og ættu 500 MB að vera nóg fyrir flestar sendingar.

Mæli með þessu. Slóðin er www.nethal.net


Af mannavali á lista Íhaldsins

Einhverju sinni voru þeir í framboði fyrir íhaldið, Þorsteinn Pálsson, Árni Johnsen og Eggert Haukdal. Fóru þeir með öðrum frambjóðendum um héraðið og héldu fundi með frambjóðendum annarra flokka. Var Eggert Haukdal á þeim tíma í einu af sínu frægu dómsmálum, um landamerki að mig minnir og Árni Johnsen í vandræðum vegna ásakana um hrossaþjófnað í Þykkvabæ.

Lauk einn mótframbjóðenda þeirra máli sínu einhvern vegin á þessa leið: "Ef Eggert stelur landi og er í þriðja sæti, Árni hrossum og er í öðru sæti, hvað í veröldinni hefur Þorsteinn gert til að verðskulda efsta sætið?"


mbl.is Sjálfstæðisflokkur bætir við sig tveimur þingmönnum í Suðurkjördæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ómar einn í skotgröfunum

Ómar Ragnarsson telur nú að hann sé nánast eini umhverfisverndarsinninn sem sé í framboði. Fyrir það fyrsta er Ómar ekki umhverfisverndarsinni í sínum málflutningi. Hann talar fyrir náttúruvernd.

Í þessari færslu á heima síðu fer hann ófögrum orðum um þá sem ekki eru í íslandshreyfingunni

Talar hann niður auðlinda og nýtingarfrumvörpin, sem Jón og Jónína lögðu fram, sem ALLIR flokkar stóðu að því að semja, í sátt, en stjórnarandstaðan ákvað að segja sig svo frá málinu á lokasprettinum, að því að virðist vegna þess að þeir gátu ekki unað Framsókn að koma þessu góða máli í gegn. Málflutningur hennar um að til standi að rústa öllu á meðan á matinu standi heldur ekki vatni eins og skýrt sést á kortinu hér neðar á síðunni og birtist með grein Jónínu um málið. Um er að ræða 4 svæði sem allir flokkar hafa talað jákvætt um.

Hér er því ekki um neinn þykjustuleik að ræða. Ómar verður að koma sér upp úr skotgröfunum og ræða hvað hann vill og leggur til, annað en stórastopp og á hvaða forsendum. Ef grein Jónínu er lesin og kortið er skoðað, þá er alveg ljóst að af þeim kostum sem mögulega væri hægt að hefja framkvæmdir við, Svartsengi, Hellisheiði, Þjórsá og Kröflusvæðið, er afl þeirra þvílíkt að það líður langur tími þar til þörf er á að fara í önnur svæði. Hugsanlega verða djúpboranatilraunir komnar það langt þá að sú pressa verði enn minni. Þannig ætti að gefast góður tími til að fara yfir þau, þeas þau sem merkt eru með upphrópunarmerki. Hin á ekki að snerta og það er ósæmandi að gera fólki upp þann óheiðarleika að ætla þeim annað.

Ómar hefur ekki bent á margt sem ætti að koma í stað iðnþróunar í umræðunni annað en ferðaþjónustu. Nema að stöðnun og atvinnuleysi sé valkostur hjá honum ?

Hvernig ætlar hann að réttlæta þá losun á gróðurhúsalofttegundum sem fylgir ferðaþjónustunni, en það flugeldsneyti sem selt er hér á landi, veldur losun sem nemur helming núverandi losunar frá stóriðjunni. Þá eiga vélarnar eftir að komast til landsins. Sérstaklega í ljósi þess að verið er að gera tilraunir með keramikskaut, sem munu gera losun frá álverum hverfandi verða svörin að vera betri.

Niðurstaða mín er sú að Ómar er ekki að tala um loftslagsmál, eingöngu náttúruverndarmál og sá málflutningur er ekki umhverfisverndarmálflutningur.


Stórmerkt starf

Orri Vigfússon hefur náð ótrúlegum árangri á sviði sem maður hefði annars haldið að væri nánast ómögulegt að ná árangri í. Að fá keypt réttindi sem mann fram af manni hafa verið nytjuð á þann hátt að allir séu ánægðir ber merki um aðferðafræði sem er til algerrar fyrirmyndar.

Að því að ég best veit, hefur hann ekki notið boða og banna neins staðar, heldur fengið þetta fram í frjálsum samningum og nú njótum við íslendingar þess að laxastofninn er nýttur á þann verðmætasta hátt sem hugsast getur. Við þau sem erum smituð af veiðidellu borgum hæstánægð of fjár til að veiða nokkra fiska og sameinast náttúrunni um leið, í stað þess að þeim sé mokað þessu gleðilítið upp með netum.


mbl.is Orri Vigfússon hlýtur helstu verðlaun baráttufólks fyrir verndun umhverfissins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hillary nennir ekki að hafa Bill heima

Hillary Clinton ætlar að gera Clinton að farandsendiherra, komist hún í Hvíta húsið. Það var og... Það verður sjaldan sem þau munu ná einhverju koddahjali. Hvort það yrði einhver breyting veit ég svo ekki...
mbl.is Vill nýta vinsældir Clintons til að bæta ímynd Bandaríkjanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framsóknarmaðurinn Vilhjálmur

Vilhjálmur Þ Vilhjálmsson hefur staðið sig af mikilli prýði í þessu máli. Ég er sífellt að sannfærast betur og betur um að hann sé Framsóknarmaður í hjarta. Athafnir í stað orða og ekki er hann með þetta blinda frjálshyggjublaður um að treysta einkaaðilum í öllum málum, heldur stefnir á að kaupa lóðirnar til að tryggja farsæla lausn. Gott mál. Greinilegt að samneytið við Björn Inga er að gera honum gott.
mbl.is Reykjavíkurborg vill kaupa hús sem urðu eldi að bráð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Virkjanaumræðan - orðbólgan í náttúruverndar- og auðlindamálum

Jónína Bjartmarz, umhverfisráðherra setur virkjana og verndunarmálin í skýrt ljós í góðri grein í Morgunblaðinu í dag. Rekur hún þá undarlegu afstöðu sem stjórnarandstaðan tók í meðferð málsins og verð ég að segja að annaðhvort byggist sú afstaða á því að þeir telji almenning það skyni skroppinn að hann sjái ekki í gegnum málflutning þeirra og ætli að fara í gegnum kosningar á fyrirsögnunum einum saman eða að þeir einfaldlega hafi ekki yfirsýn yfir málið. Læt hverjum um að dæma það, en ef menn hafa hugsjónir fyrir náttúruvernd og ábyrgri auðlindanýtingu, er ekki hægt annað en að fordæma þessi vinnubrögð stjórnarandstöðunnar.

Öll þessi 4 svæði sem um ræðir, Svartsengi, Hellisheiði, Neðri Þjórsá og Kröflusvæðið hefur stjórnarandstaðan ÖLL á einhverjum tímapunkti hrósað og  bent á sem ákjósanlega valkosti til orkuöflunar, en þegar að pólitíska vindáttinn hefur breyst hlaupa menn út og suður.

virkjanakostir

Mögulegu svæðin eru komin mislangt. Sum hafa virkjanaleyfi, önnur bíða framkvæmdaleyfis, enn önnur eru í umhverfismati meðan að sum eiga eftir að fara í umhverfismat.

Hin svæðin bíða mats og er alveg ljóst að stór hluti þeirra verður verndarður, meðan að rauðu svæðin eru vernduð eða yrðu vernduð sérstaklega eins og frumvarpið kvað á um.

Það væri gaman að vita með hvaða rökum stopp-flokkarnir vilja stöðva hagkerfið vegna þeirra svæða sem hér um ræðir og hvaðan þeir ætla að taka pening í þær skaðabætur sem þeir baka ríkissjóði með handbremsustoppinu. Kannski dreymir þá um að það 5% atvinnuleysi sem spáð er, ef framþróunin heldur ekki áfram... Spyr sá sem ekki veit


Það er meira hvað ríkisstjórnin hefur vanrækt velferðina

Var að skoða ríkissreikning á fjárlagavefnum.

Tók saman í hvað sú útgjaldaaukning sem Samfylkingar-Jón Sigurðsson sagði að væri alvond í skýrslu sinni um efnahagsstjórnina hefði farið. Það er fróðleg niðurstaða...Útgjaldabreyting

Þetta er mismunurinn á heildarútgjöldum síðasta kjörtímabils og heildarútgjöldum þessa kjörtímabils, að viðbættum fjárlögum þessa árs, að teknu tilliti til verðbólgu.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband