Steingrímur J stöðvar græna stóriðju á Íslandi
19.4.2009 | 09:15
Orð og gjörðir Vinstri grænna fara ekki saman.
Við setningu raforkulaga bjuggu Framsóknarráðherrarnir Valgerður Sverrisdóttir og Guðni Ágústsson svo um hnútana að garðyrkjubændum yrði bætt sú raforkuverðshækkun sem af lögunum hlaust.
Þá leiðréttingu afnám Sjálfstæðismaðurinn Einar K Guðfinnsson einhliða í sinni valdatíð.
Nú hafði Steingrímur J Sigfússon, sem er bæði fjármálaráðherra og landbúnaðarráðherra, gott tækifæri til að afturkalla þann ósómagjörning íhaldsins.
Það gerði hann ekki og nú hefur ríkið meiri tekur af hverri kílóvattsstund til garðyrkjubænda en íslenskra heimila, annarra stórnotenda og stóriðju.
Steingrímur J er með þessari aðgerð að kippa fótunum undan rekstrargrundvelli ylræktar í landinu.
Held að vinstri grænum væri rétt að hætta að tala um eflingu garðyrkju í sínum málflutningi meðan þeir ástunda svona skemmdarverk á íslensku atvinnulífi.
![]() |
Garðyrkjubændur skrifuðu ekki undir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðræður við ESB og stöðugleikasamningur
18.4.2009 | 09:28
- FYRIR OKKUR ÖLL
![]() |
Fullnægir einu af sjö skilyrðum Maastricht |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Óheilindi íhaldsins og Kristjáns Möller
17.4.2009 | 13:11
Það er óvenjulegt að fylgjast með óheilindum Sjálfstæðisflokksins varðandi störf Alþingis.
Það hefur glögglega opinberast að Sjálfstæðismenn líta niður á Alþingi og telja að völdin eigi að vera hjá ráðherrum, helst þeirra sjálfra.
Á sama hátt var ömurlegt að heyra Kristján L Möller ljúga því blákalt að ekkert hafi verið búið að gera varðandi Norðfjarðargöng áður en hann kom í ráðuneytið. Hið rétta er að jarðfræðivinna, hagkvæmniútreikningar og frumhönnun var lokið og langt komin þegar hann settist í stólinn.
Menn verða að segja satt og koma hreint fram.
![]() |
Ofbeldi og skemmdarverk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
ESB umsóknarstjórn í kortunum
16.4.2009 | 22:41
Ef eitthvað er að marka Samfylkinguna og VG er rétt að benda kjósendum á að eina leiðin til að tryggja að sótt verði um aðild að ESB svo fólk geti fengið spilin á borðið og tekið málefnalega afstöðu um framtíðarstöðu Íslands í Evrópu í þjóðaratkvæði er að tryggja Framsókn og Samfylkingunni meirihluta á þingi.
Til þess þarf Framsókn að bæta við sig 4 þingmönnum frá síðustu skoðanakönnun - fyrir okkur öll.
![]() |
Hafa ekki leyst ágreining um ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Íhaldið...
15.4.2009 | 15:26
...er á móti öllum þeim breytingumsem kynnu að valda því að tök flokksins og áhrifamanna þeirra á íslensku samfélagi minnkuðu.
Skiptir engu þótt mikill meirihluti íslensku þjóðarinnar sé fylgjandi breytingum á stjórnarskránni.
Sama hvort mælt er beint eða gegnum fylgistölur þeirra framboða sem vilja breyta stjórnarskránni.
VG og Samfylkingin standa illa í lappirnar í þessu máli, þannig að þessir flokkar svíkja loforð um stjórnlagaþing, sem var eitt skilyrða Framsóknar fyrir að verja minnihlutastjórnina falli, ásamt sviknu loforði um aðgerðir til að koma efnahagslífinu í gang og slá skjaldborg um heimilin.
Framsókn stóð aftur á móti við sitt loforð og hafði frumkvæði að því að koma íhaldinu frá völdum. Ekki hafði Samfylkingin dug í sér til þess. Stólarnir hafa líklegast verið of þægilegir til að hægt væri að taka slíka sénsa.
![]() |
Stjórnarskráin ekki á dagskrá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
VG ræðst gegn sjálfstæði sveitarfélaga
15.4.2009 | 10:48
Vilji sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps er skýr. Hann er sá sami og vilji annarra sveitarfélaga sem koma að Holta- og Hvammsvirkjunum í Þjórsá.
Sveitarstjórnin vill atvinnuuppbyggingu og taka með því þátt í endurreisn íslensks efnahagslífs.
Ef Kolbrún Halldórsdóttir, umhverfisráðherra, ræðst í krafti valds síns gegn uppbyggingu í landinu með þeim hætti að neita að skrifa undir aðalskipulag sveitarfélagsins er hún um leið að nema úr gildi skipulag annarra sveitarfélaga sem hafa Holta og Hvammsvirkjanir á sínu aðalskipulagi. Ríkið hlýtur þar með að vera skaðabótaskylt ef hún ræðst með þeim hætti gegn hagsmunum sveitarfélaganna, sem samkvæmt lögum sem Alþingi hefur sett hafa klárlega skipulagsvaldið innan sinna marka.
Þannig er framkvæmdavaldið enn og aftur að ganga á hlut löggjafarvaldsins. Því verður að breyta.
Eygló Harðardóttir hefur staðið mynduglega vörð um hagsmuni þjóðarinnar og íbúa kjördæmis síns í þessu máli og ber heiður og þökk fyrir.
![]() |
Kolbrún á fund vegna skipulags |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það sem gerðist um páskana...
13.4.2009 | 00:17
...var aðgerð annars arms Sjálfstæðisflokksins til að koma í veg fyrir að Guðlaugur Þór Þórðarson yrði formaður Sjálfstæðisflokksins eftir 2 ár.
Það er ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn horfir fram á lélegustu niðurstöðu í Alþingiskosningum frá stofnun flokksins og sérstaklega stefnir í háðuglega útreið í Kraganum. Það væri að óbreyttu þungbær niðurstaða fyrir Bjarna Benediktsson, nýkjörinn formann flokksins og ólíklegt að honum hefði verið lengi sætt í embætti, sérstaklega ef Guðlaugi Þór gengi sæmilega í sínu kjördæmi.
Þess vegna er þessu máli skúbbað núna, til að gera út af við formannsdrauma Guðlaugs, sem er eina formannsefni þess arms, eftir að Kristján Þór tapaði naumlega fyrir Bjarna um daginn. Skaðinn fyrir Sjálfstæðisflokkurinn er hvort eð er ekki svo mikill. Flokkurinn er ekki á leiðinni í ríkisstjórn, fylgið komið ofan í innstakjarnafylgi, þannig að það mun ekki minnka mjög mikið við þessa aðgerð og staða Bjarna því völduð um hríð.
Þann tíma þarf hann svo til að bæta stöðu flokksins, því með því að byrja nógu neðarlega, mælist risið jú því hærra.
Þessi bloggfærsla Björns Bjarna og það viðhorf sem hún lýsir staðfestir þetta enn frekar.
![]() |
Heiður Sjálfstæðisflokksins ekki metinn til fjár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Rangt farið með
12.4.2009 | 20:34
mbl.is fer ekki rétt með í þessari frétt. Framsókn og Samfylking hafa gefið upp heildarupphæðir framlaga frá lögaðilum.
Það hefur íhaldið hins vegar ekki gert.
Uppfært kl 23:40. Nú hefur mbl.is leiðrétt fréttina, sem ber að virða.
![]() |
Fengu meiri styrki árið 2006 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Óttalega nánasir eru þetta
12.4.2009 | 19:40
Þessi fyrirtæki sem mest hafa verið spyrt við Framsókn hverra flokkurinn hefur mest þurft að verjast ásökunum um að ganga hagsmuna eru óttalegar nánasir.
Milljón hver og rétt rúmlega það ef þau eru yfir höfuð að styrkja flokkinn!!!
iss...
![]() |
Framsókn opnar bókhaldið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Flokkurinn fyrst - hvað með þjóðina?
11.4.2009 | 20:05
Geir H Haarde getur beðist afsökunar og tekur ábyrgð á því að þiggja milljónirnar 60 frá FL og Landsbankanum.
En hann gat ekki beðist afsökunar eða tekið ábyrgð á því að bankakerfið hrundi og í framhaldinu efnahagslífið.
Hann gat heldur ekki beðið Breiðuvíkurdrengina afsökunar.
Það er gott að forgangsröðunin sé á hreinu.
![]() |
Allt komið fram sem máli skiptir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |