HA? Hvað hefur hann verið hingað til??????
14.4.2007 | 18:58
Nú er ég hissa. Samfylkingin hefur hingað til haldið því fram að hún sé jafnaðarmannaflokkur Íslands. Mig minnir að það hafi verið gert alveg frá upphafi. Hvað hefur flokkurinn þá verið hingað til?
Nú minnist ISG á mótbyrinn, enda verið þrælminnt á það.
![]() |
Ingibjörg Sólrún: Erum orðin fullmótaður flokkur jafnaðarmanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Beinar tillögur - lausnir - nei, takk
14.4.2007 | 16:49
Valgerður Bjarnadóttir leggur fram tillögu um útfærslu á ákveðnu máli. Kristrún Heimisdóttir lagðist alfarið gegn því með stuðningi landsfundsins að skýrar, vel skilgreindar tillögur séu ekki í samræmi við starfshefðir flokksins!!! Ja hérna. Svo vill flokkurinn að hann sé tekinn alvarlega!
Framsókn vill afnema öll sérréttindi Alþingismanna. Einfalt, skýrt, sanngjarnt.
![]() |
Hart deilt um meðferð tillögu um eftirlaunafrumvarp |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Sjálfstæðisflokkurinn sáttur við stuðninginn við Íraksstríðið
14.4.2007 | 16:34
Ekki er minnst einu orði á Íraksstríðið í utanríkisályktun Sjálfstæðisflokksins. Flokkurinn er sem sagt alveg sáttur við þá ákvörðun sem tekin var, þrátt fyrir að hún hafi verið byggð á gögnum frá Bandaríkjamönnum sem sýndu sig svo að vera hreinn uppspuni. Íhaldið ætlar sem sagt ekkert að endurskoða sambandið við Bandaríkjamenn sem hafa brugðist trúnaði okkar með áður óþekktum hætti.
Sömuleiðis var samþykkt ályktum þess efnis að Sjálfstæðisflokkurinn hafni hvers kyns stuðningi við ríkisstjórnir, sem hryðjuverkahópar eiga aðild að. Miðað við þá fylgispekt sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur sýnt Bandaríkjamönnum og ætlar að gera áfram, þýðir þetta að Sjálfstæðisflokkurinn mun aldrei geta stutt stofnun Palestínuríkis...
Er hægt að styðja svona skoðanir???
![]() |
Tekist á um orðalag í utanríkismálaályktun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ásgarður gengur ekki
14.4.2007 | 14:09
![]() |
Efri-Brú fær nýtt nafn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Er rekstur hagfræðideildar ASÍ tekin með í bókhaldi Samfylkingarinnar?
14.4.2007 | 13:55
Fram kom í gær að efnahags-, vinnumarkaðs- og atvinnustefna Samfylkingarinnar væri meira og minna öll samin af ASÍ. Um leið og ISG hefur sagt eitthvað um efnahagsmál, kemur ASÍ á eftir með rökstuðninginn. Verðlagseftirlitið kemur með frétt og næsta dag kemur frétt frá Samfylkingunni um afnám tolla og að hætta eigi niðurgreiðslum.
Það er því alveg greinilegt að mikið af starfi ASÍ er unnið þétt með innsta kjarna Samfylkingarinnar og því eðlilegt að maður spyrji hvort sá kostnaður sem ASÍ ber af því rúmist innan þeirra 300.000 sem lögaðilar mega styrkja stjórnmálaflokka um? Ég bara spyr...
Ræddi einnig um fjármál stjórnmálaflokkanna hér
![]() |
Afgangur af rekstri Samfylkingarinnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þingmannsefni Samfylkingarinnar fór á kostum í Kastljósinu
14.4.2007 | 01:05
Kristrún Heimisdóttir fór mikinn í Kastljósinu í kvöld. Held reyndar að þetta sé í fyrsta skipti sem ég hef séð hana í sjónvarpi, þar sem hún hefur ekki minnst á að hún sé lögfræðingur. Snæþór lýsir þessu ágætlega hér
En það er alveg greinilegt að frambjóðendur Samfylkingarinnar hafa ekki hugmynd um hvað fjármál eru, miðað við það sem fram kom í þættinum. Það að kalla stefnuskrár annarra flokka dýrar og hafa svo ekki hugmynd um hvað þeirra eigin tillögur kosta ber ekki vott um mikla þekkingu eða yfirvegun. Kasta því svo fram að það eigi að kæla hagkerfið. Ég hélt að allar spár segðu að það væri þegar farið að kólna og næði jafnvægi strax á þessu ári. Það væri dálaglegt ef Samfylkingin kæmist í stjórn og hún færi svo að gorta sig af því að hafa náð tökum á hagkerfinu, eða er ætlunin að frysta hagkerfið og koma í brúk því hagstjórnartæki sem systurflokkar Samfylkingarinnar á Norðurlöndunum nota helst, atvinnuleysi?
Einnig kom fram að tillögur Samfylkingarinnar í efnahagsmálum væru einkasmíð Jóns Sigurðssonar í Helsinki. Er sem sagt enginn í frambjóðendahóp Samfylkingarinnar sem er tækur í það minnsta að aðstoða hann, bara smá?