Ólafur F telur mig hafa eyðilagt miðborg Reykjavíkur!

Borgarstjóri Reykvíkinga bar mig og aðra Framsóknarmenn þungum sökum í fréttum RÚV í kvöld.

Ég á víst að bera ábyrgð á því hvernig komið er fyrir miðbæ Reykjavíkur. Ég ku hafa verið að hygla einhverjum ónefndum verktökum og peningamönnum sem eru að láta miðborgina drabbast niður með sérstakri velþóknun minni.

Mér þætti gaman að vita hvaða verktökum og peningamönnum ég hafi verið að hygla og á hvaða hátt ég hafi getað gert það, enda hef ég ekki verið formaður skipulags og byggingarráðs, né nokkur annar Framsóknarmaður nokkurn tíma að því að ég best veit.

Borgarstjóri eða einhver þeirra Sjálfstæðismanna sem bera ábyrgð á honum, verður að tala skýrar, koma með einhverjar skýringar og dæmi um það hvernig ég hafi gert þetta, svo ég geti bætt ráð mitt og reynt að vinda ofanaf þessu klúðri mínu. Hann hefur reyndar gert það ansi dýrt með því að hækka fermetraverðið í 700 þúsund, en það verður líklegast bara að hafa það.

Eða á borgarstjóri kannski ekki við mig?

Við hvern á hann þá?

RÚV sýndi ekki þá fagmennsku að spyrja hann þess í kvöld, né að biðja um dæmi, máli sínu til stuðnings, heldur tekur þátt í "let the bastards deny it" leik Ólafs F og fellur þar með niður á svipað plan og hann. Það er ekki góður staður að vera á, vilji maður láta taka sig alvarlega.


Af mönnum og músum

Geir H Haarde meldaði stórt pass í umræðum um efnahagsmál á Alþingi í dag. Engar tillögur til úrbóta, gerði bara tilraun til greiningar á fortíðinni. Maður hlytur að gera meiri kröfur til ráðherra efnahagsmála þjóðarinnar en svo. Hans hlutverk er að leiða þetta starf, ekki sitja og horfa á og koma með eftiráskýringar. Því miður virðist hann ekki lifa upp í hlutverk sitt, þrátt fyrir miklar vætingar, þám mínar. Þegar Sjálfstæðisflokkurinn var í samstarfi við Framsókn hélt ég að flokkarnir væru nokkuð jafnvígir á efnahagsmálin, með Davíð Oddsson, Geir H Haarde og Árna Mathiesen í broddi þeirra fylkingar. Nú er að koma á daginn að það var misskilningur í mér. Því miður. Davíð Oddsson og samstarfsmenn hans í Seðlabankanum hafa verið einir í baráttunni fyrir stöðugleika, meðan ríkisstjórnin hefur hingað til unnið á móti honum með útgjaldagleði sinni.

Ingibjörg Sólrún talað.i um helgina bara um að skoða beri að taka lán til að auka gjaldeyrisvaraforða Seðlabankans. Gott og vel. Hún fer með völdin í landinu. Hún á að kynna að búið sé að ákveða að gera hitt og þetta. Ómarkvissar vangaveltur eru bara tli að auka á óvissuna og það er það síðasta sem við þurfum þessa dagana. Annars kom hún bara með almennar vangaveltur um að í framtíðinni beri að gera hitt og þetta og stefna beri að hinu og þessu og mikilvægi hins og þessa.

Að öðru leiti engar aðrar tillögur en að menn eigi að fara að hittast og spjalla saman um landsins gagn og nauðsynjar. Það er góð tillaga að stofna vísmannaráð, en til þess hefur ríkisstjórnin haft tæpt ár. Það getur nú ekki verið svo erfitt að fá menn til að hittast og skrafa. Nú er tími athafnanna löngu kominn, þá er fyrst farið að setjast niður og bollaleggja.  

Þetta hljómar eins og hjáróm tíst í músum, ekki ábyrg viðbrögð við aðsteðjandi verkefnum sem fyrir löngu er búið að benda á.

Þá er meiri mannsbragur af tillögum Framsóknar, sem strax í sumar varaði við þeim blikum sem voru á lofti og allir þeir sem vildu sjá, sáu. En á það var ekki hlustað, því miður.

Gjaldeyrisvaraforðann verður að auka. Bankarnir eru einfaldlega orðnir það stórir að það verður að gerast. Eðlilegt er að bankarnir greiði fyrir það skjól sem það veitir þeim, sem nemur vaxtagreiðslum af þeim lánum sem taka þarf til þess. Tillögur um að Íbúðalánasjóður létti af bönkunum og verði í raun heildsölubanki fyrir hluta íbúðalána bankanna er eitthvað sem hefur verið í umræðunni í einhvern tíma. Hvort ég fari í afgreiðslu Íbúðalánasjóðs eða viðskiptabanka míns til að ná í þessa öruggu fjármögnun má einu gilda, svo lengi sem Íbúðalánasjóður sé þarna á bakvið. Það er spurning hvort bankarnir eigi skilið að vera skornir svona niður úr snörunni, vegna óábyrgrar innkomu sinnar á íbúðalánamarkaðinn á sínum tíma og verða með því valdir að mjög stórum hluta þeirrar skuldsettu þenslu sem við súpum nú seyðið af. En tillögurnar koma viðskiptavinum þeirra, íslenskum almenningi, til góða og til þess ber að horfa.

Verðbólguna verður að takast á við. Hún má ekki fara af stað umfram það sem þegar er orðið. Hækkanir eru í pípunum og því verður að fara í varanlegar og tímabundnar aðgerðir til að stemma stigu við henni. Þar er helst hægt að ráðast á matinn og eldsneytið, auka samkeppni á bankamarkaði auka verðlagseftirlit og bæta neytendavitund. Fyrr er ekki hægt að lækka vexti, en þeir eru að sliga minni fyrirtækin og heimilin í landinu.

Vonandi tekur ríkisstjórnin þessar tillögur til sín. Þótt fyrr hefði verið. Tími athafna er kominn.


mbl.is Vilja fella niður neysluskatta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnarandstaðan í Samfylkingunni

Stjórnarandstaðan í Samfylkingunni fékk samþykkta ályktun sem er í samræmi við Fagra Ísland-stefnu flokksins, en gengur þvert gegn þeim yfirlýsingum sem þingmenn hans hafa haft um uppbyggingu iðnaðar í landinu, þar sem flokksstjórnarfundur Samfylkingarinnar

"...hvetur ríkisstjórnina til að vinna að atvinnuuppbyggingu sem byggist á þekkingu, hátækni og virðingu við sjónarmið náttúru- og umhverfisverndar. Fundurinn leggur áherslu á að meðan beðið er niðurstöðu rammaáætlunar um vernd og nýtingu náttúrusvæða verði ekki farið inn á óröskuð svæði og varar eindregið við því að virkjana- og stóriðjuframkvæmdir hefjist áður en gengið hefur verið frá orkuöflun, línulögnum, losunarheimildum o.fl.

Flokksstjórnarfundurinn telur að við ákvörðun um meiriháttar framkvæmdir í atvinnumálum með tilstuðlan og atbeina stjórnvalda og almannafyrirtækja verði að taka mið af nútímalegum atvinnuháttum, byggðasjónarmiðum og umhverfisþáttum, þar á meðal skuldbindingum Íslendinga í loftslagsmálum og fyrirheitum um vernd ósnortinna náttúrusvæða"

Eins og fyrr er þetta reyndar innihaldslaust froðusnakk, ekkert er talað um leiðir til að koma þessum vilja flokksstjórnarinnar til framkvæmda. Í hverju á þessi vilji flokkstjórnarinnar að birtast?

Reyndar á ég erfitt með að sjá í hverju ályktunin er frábrugðin stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, en fyrst flokksstjórnin telur þörf á að samþykkja ályktun af þessu tagi, hlýtur að felast í henni yfirlýsing um að flokksstjórnin, sem samþykktir ríkisstjórnarþátttöku fyrir Samfylkinguna, telji að ekki sé nægjanlega að gert í þessum málum og hóti eigin ráðherrum og samstarfsflokknum að ef ekki verði staðið við þennan hluta stefnuyfirlýsingarinnar, verði stjórnarsamstarfinu slitið.

Það fyrsta hlýtur að vera að koma starfinu við rammaáætlunina af stað. Maður hefur ekkert heyrt um það og hef ég þó spurst fyrir um það meðal þeirra sem eru í starfshópum rammaáætlunarinnar.

Það verður einnig fróðlegt að fylgjast með framgöngu fulltrúa Samfylkingarinnar í stjórnum OR, LV og Rarik að maður tali nú ekki um Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra í framhaldi af þessari ályktun. 

Einhvern vegin á ég erfitt með að skilja þessa ályktun sem annað en beina ofanígjöf við Össur Skarphéðinsson, sem hélt því fram á fundi á Húsavík að hann minntist þess ekki að neinn þingmaður Samfylkingarinnar hefði talað gegn álveri á Bakka og sömuleiðis hlýtur Kristján L Möller að klóra sér í hausnum yfir þessari ályktun í ljósi yfirlýsinga sinna um álverið á Bakka.

Vefstjóri Samfylkingarinnar virðist hafa áttað sig á því að ályktunin er bein árás á Bakkaverkefnið, með því að setja inn í fréttina um málið að umfjöllunin hafi aðallega snúist um Helguvík. En ályktunin er skýr og verður erfitt fyrir þingmenn flokksins að aðhafast neitt til að bæta atvinnuástandið fyrir norðan með áframhaldi Bakkaverkefnisins vegna þess að stjórnarandstaðan í Samfylkingunni hefur náð yfirhöndinni í flokknum.


Bloggfærslur 31. mars 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband