Umhverfismál, ferðaþjónusta og iðnaður

Þegar andstæðingar iðnþróunar eru spurðir út hvað þeir vilji gera fyrir byggðarlögin hefur svarið yfirleitt verið "eitthvað annað en stóriðja", með vísun í umhverfisáhrif hennar. Þegar gengið er á eftir svari, koma fram hugmyndir um opinber störf og aukina ferðaþjónustu. Uppbygging ferðaþjónustunnar á undanförnum árum hefur skapað miklar gjaldeyristekjur og er orðin ein af stoðum íslensks efnahagslífs. En ferðaþjónustan hefur líka mikil umhverfisáhrif.

Flugsamgöngur eru mjög mikill og vaxandi orsakavaldur CO2 losunar. Vegna þess að flugið eykst svo ört, verða áhrif þess á loftslagið brátt meiri en áhrif fólksbílanna á heimsvísu, og gert er ráð fyrir að álagið verði orðið tvöfalt meira árið 2030. Flug er ekki tekið með í Kyoto bókunina og ekki heldur millilandasiglingar.

 Í svari við fyrirspurn Kolbrúnar Halldórsdóttur á þar síðasta þingi kom fram að:

"Árið 2003 var losun frá eldsneyti sem selt var til alþjóðaflugs og alþjóðasiglinga á Íslandi, sem svarar um 514.000 tonnum af koldíoxíð-ígildum, eða sem svarar 17% af heildarlosun Íslands. Losun vegna brennslu eldsneytis til alþjóðasiglinga jókst um 81% frá 1990 til 2003 og losun vegna brennslu eldsneytis ætlað alþjóðlegu flugi jókst um 50% á sama tímabili"

Síðan þá hafa umsvif í flugi bara aukist. Sala á eldsneyti til skipa í alþjóðasiglingum er hverfandi, svo langstærstur hluti þessarar losunar kemur frá fluginu. Iðnaðarferlar, þmt stóriðjan losar í dag um 960 þús tonn, þannig að flugið, fram og til baka er að menga svipað og öll stóriðjan!

Að auki kemur svo losun vegna aksturs með ferðamenn á jörðu niðri.

Evrópusambandið hefur áttað sig á þessu máli sbr þetta

Auk þessa verður einnig að taka tillit til þess að ferðamenn vilja að sjálfsögðu sjá okkar helstu náttúruperlur, sem eru um leið viðkvæmar. Þannig að hagsmunir ferðamennsku, náttúruverndar og umhverfisverndar fara ekki alltaf saman. Það var með þetta að leiðarljósi sem Framsókn setur þetta mál sérstaklega á sína stefnuskrá og boðar mótun landnýtingarstefnu, m.a. fyrir ferðaþjónustuna. Markmið þeirrar stefnu verði að skilgreina þau svæði sem ferðaþjónustan geti nýtt til framtíðar.  Slík stefna er forsenda fjárfestinga í markaðssetningu og uppbyggingu innviða sem mega ekki eiga á hættu að svæðin verði tekin til annarra nota fyrirvaralaust.

Öll mannana verk hafa áhrif á umhverfið og andrúmsloftinu er sama hvaðan mengunin kemur. Framsókn hefur ástundað ábyrga umhverfisstefnu, með virðingu fyrir náttúrunni um leið og virðingin fyrir fólkinu í landinu er í hávegum höfð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Sæll Gestur,

Hér er hugmynd!

Því ekki að setja upp einfalt og afkastamikið léttlestarkerfi sem notar náttúruvæna orkugjafa. Slíkt samgöngukerfi myndi minnka umferð mengandi ökutækja stórlega.

Hér má sjá kort af sjálfvirku lestarkerfi sem gæti haft mjög jákvæð áhrif á samgöngumál á Íslandi og jafnframt vera andlit íslendinga út á við í umhverfismálum.

Mynd sýnir samgöngukerfi sem gæti leyst umferðarvandan á Suðurlandi, bæði fyrir heimafólk og ferðamenn (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Annars má lesa nánar um málið hér:

http://photo.blog.is/blog/photo/entry/339910/

Kjartan

WWW.PHOTO.IS

Kjartan Pétur Sigurðsson, 24.10.2007 kl. 09:19

2 Smámynd: Gestur Guðjónsson

Þá vantar bara eitt lítið atriði. Hvað kostar gillið?

Gestur Guðjónsson, 24.10.2007 kl. 17:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband