Sjálfstæðisflokkurinn vill endurstofna Þjóðhagsstofnun
30.11.2007 | 14:59
Davíð Oddsson lagði niður Þjóðhagsstofnun þegar hún hafði ítrekað sagt hluti sem honum var ekki að skapi, enda Þjóðhagsstofnun sjálfstæð stofnun. Í framhaldinu var spárhluti hennar sett inn í Fjármálaráðuneytið, þannig að sú þjóðhagsspá sem fjárlagafrumvarpið byggir á, er gerð af framkvæmdavaldinu sjálfu.
Nú kveður svo við að Ármann Kr Ólafsson, fjárlaganefndarmaður úr Sjálfstæðisflokknum, segir í umræðum á Alþingi að fjárlaganefnd ætti að hafa hagdeild sér til ráðgjafar í sínum störfum. Þingmaðurinn er sem sagt ekki að leggja annað til en að endurstofna Þjóðhagsstofnun. Öðruvísi mér áður brá.
Hins vegar verður að segjast eins og er, að það sé lítils virði að stofna hagspárdeild ef meirihlutinn hlustar ekki á hana fremur en allar þær hagdeildir og greiningadeildir sem hafa sagt að það beri að sýna ítrasta aðhald við fjárlagagerðina. Það hefur hann ekki gert, því miður....
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Nýjustu færslur
- Sala Landsvirkjunnar kemur ekki til greina
- Fylgi Bjartrar framtíðar
- Vinnulag við fjárlagagerð
- Landsbyggðaskattur
- Verðbólguleiðin?
- Blindir og vanhæfir gullkálfsdansarar
- Hver verða eftirmál þingsályktunartillögunnar?
- Hengjum ekki bakara fyrir smið
- Rangtúlkun Jóhönnu og Samfylkingarinnar á Rannsóknarnefndarsk...
- Furðulegar nornaveiðar í gúrkutíð
Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Bloggvinir
- Agnes Ásta
- Albertína Friðbjörg
- Björn Ingi Hrafnsson
- Dofri Hermannsson
- Fanný Guðbjörg Jónsdóttir
- Framsóknarflokkurinn
- Guðmundur Ragnar Björnsson
- Gunnlaugur Stefánsson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Helga Sigrún Harðardóttir
- Hlini Melsteð Jóngeirsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Jónas Yngvi Ásgrímsson
- Jónína Brynjólfsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigurður G. Tómasson
- Snæþór Sigurbjörn Halldórsson
- Sóley Tómasdóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Svava Halldóra Friðgeirsdóttir
- Sveinn Hjörtur
- Valdimar Sigurjónsson
- Guttormur
- Sigurður Ellert Sigurjónsson
- Agnar Bragi
- Anna Kristinsdóttir
- Ari Jósepsson
- Arinbjörn Kúld
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Ármann Kr. Ólafsson
- Áslaug Friðriksdóttir
- Ásta
- Baldur Fjölnisson
- Baldur Sigurðarson
- Bergur Sigurðsson
- Bergþór Skúlason
- Birgitta Jónsdóttir
- Birkir Jón Jónsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Björgmundur Örn Guðmundsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bwahahaha...
- Daði Einarsson
- Egill Jóhannsson
- Einar Björn Bjarnason
- Einar Kristinn Guðfinnsson
- Einar Sigurbergur Arason
- Einar Vilhjálmsson
- Einar Þór Strand
- Eiríkur Harðarson
- ESB
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Eysteinn Jónsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- FUF í Reykjavík
- Gísli Tryggvason
- Greta Björg Úlfsdóttir
- Guðmundur Andri Skúlason
- Guðmundur Magnússon
- Guðmundur St Ragnarsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Gunnar Aron Ólason
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnar Rögnvaldsson
- Gústaf Níelsson
- Halldór Borgþórsson
- Hallur Magnússon
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Heiðar Lind Hansson
- Heimir Eyvindarson
- Heimir Tómasson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Hermann Einarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Himmalingur
- hreinsamviska
- Hrólfur Guðmundsson
- Indriði Haukur Þorláksson
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Jakob Falur Kristinsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Jakob Þór Haraldsson
- Jóhannes Guðnason
- Jóhannes Snævar Haraldsson
- Jóhann Pétur Pétursson
- Jóhann Tryggvi Sigurðsson
- Jón Aðalsteinn Jónsson
- Jónas Egilsson
- Jón Axel Ólafsson
- Jón Baldur Lorange
- Jón Finnbogason
- Jón Ólafur Vilhjálmsson
- Jón Snæbjörnsson
- Júlíus Brjánsson
- Karl Hreiðarsson
- Karl V. Matthíasson
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristín Helga Guðmundsdóttir
- Landvernd
- maddaman
- Magnús Guðjónsson
- Magnús Þór Friðriksson
- Marteinn Magnússon
- Morgunblaðið
- Oddur Helgi Halldórsson
- Ólafur Fr Mixa
- Ómar Ragnarsson
- Óskar Arnórsson
- Páll Gröndal
- Páll Vilhjálmsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ritstjóri
- Samband ungra framsóknarmanna
- S. Einar Sigurðsson
- Sigurður Árnason
- Sigurður Fannar Guðmundsson
- Sigurður Ingi Jóhannsson
- Sigurður Jónsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Viktor Úlfarsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Stefán Bogi Sveinsson
- Steinn Hafliðason
- Sædís Ósk Harðardóttir
- Sævar Helgason
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Vefritid
- viddi
- Þórólfur S. Finnsson
- Þór Saari
- Þráinn Jökull Elísson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 356309
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Finnst þér nú líklegt að Þjóðhagsstofnun verði endurreist? Ummæli Ármanns voru einhvernveginn á þann veg að hann lýsti því nokkurnveginn yfir að meirihlutinn hlustar yfirleitt hvorki á greiningardeildir eða önnur varnaðarorð. Þeir vita og kunna manna best rétt eins og undanfarinn áratug og ríflega það.
Þórbergur Torfason, 30.11.2007 kl. 15:12
Já, það var þversögnin í hans málflutningi.
Gestur Guðjónsson, 30.11.2007 kl. 15:13
Fyndið, það virðist nánast sama hvaða framsóknarmaður tjáir sig. Það er alltaf látið eins og Framsóknarflokkurinn hafi ekki verið í ríkisstjórn í fjölda ára. Það eru samt minna en 7 mánuðir síðan ;)
Hjörtur J. Guðmundsson, 30.11.2007 kl. 23:40
Ég reyndar man ekki eftir því að Davíð Oddsson hafi lagt hana niður prívat og persónulega, en allt í góðu.
Ég er ekki viss um að Ármann Einarsson tali fyrir hönd flokksins í þessu máli. Það eru engin landsfundardrög sem tala um að endurvekja þjóðhagsstofnun.
Gisli Freyr Valdórsson (IP-tala skráð) 1.12.2007 kl. 00:37
Gísli, Minnisleysi þitt hefur ekkert með fyrri ákvarðanir Davíðs Oddssonar að gera. Hugsaðu frekar um þá misbresti sem á honum eru í dag.
Væntanlega manstu ekki heldur hver kom kvótakerfinu í sjávarútvegi á og hvað lá að baki þeirri ákvörðun, þó að það haldi í þér lífinu í dag.
Þórbergur Torfason, 1.12.2007 kl. 02:43
Reyndar svolítið sérkennilegt að ekki megi fulltrúi sjálfstæðisflokksins lýsa skoðun sinni persónulega. Gísli, þetta er líklega persónuleg skoðun Ármanns. Gleymdi hann að spyrja þig leyfis að orða þetta svona?
Þórbergur Torfason, 1.12.2007 kl. 02:46
Þórbergur:
Ef þú hefðir lesið þessa umræðu hefðiru áttað þig á að Gísli var ekki að amast við persónulegum skoðunum Ármanns. Hins vegar var hann að svara þeirri ályktun Gests að þessi persónulega skoðun Ármanns fæli það í sér að Sjálfstæðisflokkurinn vildi endurstofna Þjóðhagsstofnun, sbr. fyrirsögn færslunnar.
Hjörtur J. Guðmundsson, 1.12.2007 kl. 11:41
Erlingur:
Það kemur nú úr hörðustu átt að þú sakir aðra um rugl, bull og að drulla yfir fólk eins og þessi athugasemd þín er ágætt dæmi um.
Hjörtur J. Guðmundsson, 1.12.2007 kl. 11:45
Hjörtur: Meðan Framsókn var í ríkisstjórn var tekið mark á þeim teiknum sem á lofti voru í efnahagsmálum og þegar þurfti voru teknar nauðsynlegar, óvinsælar ákvarðanir til að viðhalda stöðugleika. Það var gert 1999 og 2003, en núverandi ríkisstjórn hefur ekkert slíkt gert. Hefur risastóran samgöngupakka inni í fjárlögum "bara svona til að geta gripið til" ef það skyldi koma samdráttur, ef skilja má fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í umræðunni. Það er ekki góð latína að vekja þessar væntingar og ekki til að skapa trúverðugleika að gefa út í sömu setningu að ríkisstjórnin ætli ekki að standa við fjárlögin.
Fátt vitrænt virðist koma frá Samfylkingunni, enda Jón þeirra Sigurðsson því miður ekki á landinu til að minna þau á rauða kverið þeirra. Björgvin G Sigurðsson segir skattalækkanir á næsta leiti í tengslum við kjarasamninga, þvert á yfirlýsingar forsætisráðherra, sem er svo arfavitlaust af ráðherra í ríkisstjórn að gefa út núna að það tekur ekki nokkru tali.
Gestur Guðjónsson, 1.12.2007 kl. 16:35
Núverandi ríkisstjórn hefur ekki verið við völd nema í tæpa 7 mánuði. Hitt er svo annað mál að Davíð Oddsson var ekki einn í ríkisstjórn. Ég veit ekki til þess að Framsóknarflokkurinn hafi mótmælt niðurlagningu Þjóðhagsstofnunar eða beitt sér gegn því á nokkurn hátt. En nú má gagnrýna.
Hitt er svo annað mál að ófáir framsóknarmenn, ekki sízt í forystu flokksins, hafa stundað það frá því sl. vor., eftir að það lá fyrir að Framsóknarflokkurinn yrði ekki aðili að næstu ríkisstjórn, að gagnrýna misskiptingu í þjóðfélaginu, svokallaða græðgisvæðingu o.s.frv. og sagt núverandi ríkisstjórn bera ábyrgð á því þó ljóst sé að þeir hitta sig sjálfa fyrir í þeim efnum. Það er einfaldlega eins og Framsóknarflokkurinn hafi ekki verið í ríkisstjórn a.m.k. síðasta áratuginn.
Hjörtur J. Guðmundsson, 1.12.2007 kl. 22:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.