Er röng stefna betri en engin stefna?

Ég held að Árni Páll Árnason hafi rétt fyrir sér í því að það myndi strax skapa meiri tiltrú á íslensku efnahagslífi, ef Ísland segðist ætla að stefna að Evrópusambandsaðild. Þá væru ríkisstjórnarflokkarnir þó í það minnsta með einhverja stefnu í efnahagsmálum, hvort sem hún væri rétt eða röng.

Í dag blasir við að ríkisstjórnin hefur enga stefnu í efnahagsmálum, væntanlega vegna þess að þeir koma sér ekki saman um hvert beri að stefna. Yfirlýsingar Árna Páls og Ágústar Ólafs Ágústssonar varaformanns Samfylkingarinnar um að aðildarumsókn myndi auka aga í stjórn efnahagsmálam lýsir því ótrúlega viðhorfi að það þurfi slíka gulrót til að menn axli ábyrgð í efnahagsmálum. Að fyrst ekki sé verið að stefna beinustu leið í þá átt sem Samfylkingin vill, þurfi þau ekki að axla ábyrgð.  Ætli þeir séu aldir upp við að fá alltaf nammi þegar þeir voru búnir að taka til í herbergjunum sínum og aldrei hafi verið tekið til annars?

Það sama myndi gerast, ef ríkisstjórnin segði skýrt að hún ætlaði að halda flotgengisstefnunni áfram og styrka Seðlabankann í sínu hlutverki. Það er að vísu ótrúverðugt, þar sem ríkisstjórnin hefur unnið gegn þeirri stefnu undanfarið og þá sérstaklega í fjárlagagerðinni.

Það sama myndi einnig gerast, ef ríkisstjórnin segði skýrt að hún ætlaði að skoða upptöku fastgengisstefnu eða annars forms tengingar við aðra mynt eða myntir, þegar stöðugleika væri náð.

Það sem vantar er stefna. Stefnuleysi ríkisstjórnarinnar rýrir trú á efnahagslífi þjóðarinnar og er því almenningi dýr og væri manni næst að halda að röng stefna væri betri en engin stefna. Henni væri þá amk hægt að breyta við tækifæri, t.d. eftir næstu kosningar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Harðarson

mikið til í þessu - þó svo að líklega hafi saga norðmanna það fordæmisgildi að enginn gæti tekið yfirlýsingu nú um esb aðild alvarlega, hvorki hér heima né erlendis...

Bjarni Harðarson, 22.3.2008 kl. 19:32

2 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Það er vissulega rétt að ríkisstjórnin sjálf hefur ekk neina stefnu sem  þarf að taka, til að ná stöðugleika þegar, til langs tíma er litið, sem hlýtur að vera framtíðarmarkmið.En annar stjórnarflokkurinn hefur það.Það er ekkert öðruvísi hér en í öðrum löndum Evrópu, að þegar kreppir að þá halda engin bönd fólki.Framsóknarflokkur og Samfylking munu ná meirihluta í næstu kosningum ef þessir tveir flokkar hefðu það báðir á stefnuskrá sinni að láta kjósa um hvort sækja beri um Evrópusambandsaðild.

Sigurgeir Jónsson, 23.3.2008 kl. 10:48

3 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Kæri bloggvinur, ég óska þér og þinum gleðilegra páska.

Sigurður Þórðarson, 23.3.2008 kl. 14:18

4 Smámynd: Óskar Arnórsson

Gleðilega páska Gestur minn!Easter Basket

Óskar Arnórsson, 23.3.2008 kl. 19:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband