Ekkert svar.... ekkert hljóð, bara....

Úrræðaleysi við stjórn landsins virðist algert. Engin svör fást, hvorki frá Seðlabanka né Forsætisráðherra við spurningum sem hefðu átt að liggja fyrir löngu áður en Framsókn spurði þeirra.

Guðni Ágústsson sendi skriflega fyrirspurn til forsætisráðherra um áhrif þorskniðurskurðarins á byggðir landsins og meintar mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar gagnvart þeim þann 26.2.2008. Er 10 daga frestur forsætisráðherra til svara löngu liðinn og ekkert bólar á svörum.

Sömuleiðis var Seðlabankanum sendar spurningar um stöðu efnahagsmála í febrúar þar sem óskað var eftir svörum um áhrif kjarasamninga og hvort Seðlabankinn telji ríkisstjórnina hafa gengið nógu langt til að draga úr þenslu í samfélaginu og hvaða áhrif tillögur ríkisstjórnarinnar til að liðka fyrir í kjaramálum hafi á þróun efnahagslífisins, ríkisútgjöld og tekjuöflun ríkisins og hvort ríkisstjórn landsins hafi gengið nógu lagt í þá átt að draga úr þenslu í samfélaginu. 

Líklegast eru svörin óþægileg, svo það er þægilegra að hafa hausinn áfram í sandinum.

Á meðan blæðir efnahagslífinu...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: haraldurhar

   Ef hér væri alvöru stjórnsýsla þá væri Seðlabankastjóri kallaður fyrir þingnefn, og hann spurður spjörunum út, og þeim fundi sjónvarpað.

   Guðni er nú ekki trúverðugusti maðurinn til að spyrja um ráðstöfun ríkisfjármála, eins og þú hlítur að muna lofaði hann reiðhöll í nær alla hreppi fyrir síðustu kostningar ásamt  heillögnum loforðalista um fjármuni til hinna ýmssu verkefna á Suðurlandi, nær allt á heimilda

haraldurhar, 23.4.2008 kl. 00:16

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Það er rétt Gestur úrræða og aðgerðaleysið er algjört.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 23.4.2008 kl. 00:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband