Nýjasti kokkteillinn - Hvergerðingur

Víða um Hveragerði hafa menn verið að blanda nýjasta kokkteilinn, sem hlotið hefur nafnið Hvergerðingur.

Þú tekur allt vínið í húsinu; sterkt, rautt, hvítt, líkjöra og alles, hendir því í gólfið, hrærir í því með gólftusku og vindur í fötu.

Hægt er að drekka þetta beint úr fötunni, en í lúxusútgáfu eru glerbrotin síuð frá og hellt í glös.

Engum sögum fer reyndar af því hversu vinsæll drykkurinn er, en hann hefur verið blandaður ótrúlega víða að undanförnu.

 


mbl.is Allt í lamasessi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gott grín er gulls ígildi.

Kannski maður skelli sér í Ríkið á morgun og smakki á þessum guðaveigum.

Hér hristist allt og skelfur ennþá, það kom einn ríflega 4 stig fyrir um 20 mínútum síðan og hrærði vel upp í kokteilum bæjarbúa.

Karl Jóhann Guðmundsson (IP-tala skráð) 30.5.2008 kl. 23:37

2 identicon

Það gaman að sjá að fólk geti gert grín að náttúruhamförum, en því miður þá hlær fólkið mitt á Suðurlandi ekki voða mikið þessa daganna.

H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 31.5.2008 kl. 11:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband