Hvers virði er stuðningur Jóhönnu Sigurðardóttur?
10.9.2008 | 00:15
Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra segir að hún hafi fullan skilning á launakröfurm ljósmæðra að þvi að fram kom hjá RÚV í kvöld.
Ef hún vill ekki vera talin jafn mikill blaðrari og sumir aðrir ráðherrar og þingmenn stjórnarliðsins sem hafa flúið eins mýs undanfarið, hlýtur hún að beita sér í málinu, enda ber hún ábyrgð á málinu ásamt öllum öðrum þingmönnum Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins.
Eins og Siv Friðleifsdóttir benti á, að þegar BSRB hefði í vor gert samninga við ríkið þá hefði ekki verið hægt að leiðrétta kjör kvenna. Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra hefði sagt að það myndi reyna á stjórnarsáttmálann varðandi þetta mál.
Nú reynir sem sagt á stjórnarsáttmálann og treysti ég helst Jóhönnu til að láta til sín taka.
Annars var ég að heyra frá ljósmæðrum að fjármálaráðuneytið væri að undirbúa kæru á hendur þeim fyrir ólöglegt verkfall.
Það væri þá dálaglegt ef rétt reynist.
Samningar tókust ekki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Jóhanna er ekki sjálfri sér lík þessa dagana. Hún veldur mér vonbrigðum. Hún af öllum!
Axel Jóhann Hallgrímsson, 10.9.2008 kl. 00:26
Heilir og sælir; Gestur - Axel Jóhann, og aðrir skrifarar !
Gestur minn ! Því er fljótsvarað. Einskis virði, því miður. Samfylkingarfólk eru ekki síðri ómenni, öðrum stjórnmálamönnum, sem dæmin sanna.
Með beztu þjóðernissinna kveðjum /
Óskar Helgi Helgason
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 10.9.2008 kl. 00:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.