Siðuð mótmæli skila árangri

Þessi viðbrögð starfsmanna utanríkisráðuneytisins eru til mikillar fyrirmyndar og það er alveg ljóst að mótmælendur eru að hafa meiri áhrif með því að koma sínum boðskap fram með samræðum í stað skemmdarverka.

Á sama hátt fannst mér mótmælagerningurinn fyrir framan stjórnarráðið í morgun afar flottur og kom hann skilaboðunum um þetta hræðilega ástand á Gaza og voðaverkum Ísraelsmanna vel til skila. Þau hefðu samt alveg mátt sleppa því að sletta lit á sjálfa bygginguna.

Það hefði verið alveg nóg að setja rauðan lit á stéttina til að minna á það lóð sem hermenn Ísraels ganga í þegar þeir myrða saklausa borgara í leit sinni að glæpamönnum Hamaz. Glæpamönnum sem þeir hafa í rauninni að miklu leiti búið til sjálfir með framkomu sinni til áratuga.

Eins og ég hef áður skrifað, er eina leiðin til lausnar í þessum hildarleik, að Sameinuðu þjóðirnar komi inn með öflugt friðargæslulið, sem gæti svæðisins til næstu framtíðar, eða á meðan að heilbrigð kynslóð Palestínumanna og Ísraelsmanna vex úr grasi.


mbl.is Fundað með mótmælendum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ástþór Magnússon Wium

Má ekki nota annað rautt efni en málningu? Skilar það ekki sama árangri fyrir mótmælin? Nema tilgangurinn sé að valda ríkinu aukakostanð við þrifin í stað þess að skapa myndrænt tjáningaform án skemmdarverka.

Ástþór Magnússon Wium, 12.1.2009 kl. 23:07

2 Smámynd: Ævar Rafn Kjartansson

Sammála þessarri skoðun þinni en við erum sennilega að tala um 3-4 áratugi.

Ævar Rafn Kjartansson, 12.1.2009 kl. 23:35

3 Smámynd: Gestur Guðjónsson

Ástþór. ég held að ég hafi heyrt einhversstaðar að þau séu farin að nota matarlit, en það er samt allt í lagi að hlífa húsunum.

Ég er hræddur um að við séum að tala um þann tíma Ævar.

Gestur Guðjónsson, 13.1.2009 kl. 00:13

4 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

D-sætið var autt í kvöld í Háskólasbió

Anna Ragna Alexandersdóttir, 13.1.2009 kl. 03:11

5 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Ég tek undir með þér Gestur.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 13.1.2009 kl. 21:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband