Þjóðstjórn strax
30.4.2009 | 11:33
Nú er staða mála þannig að það verður að mynda þjóðstjórn. Ef ekki væri vegna efnahagsástandsins þá vegna Mexíkóveikinnar.
Við siglum inn í 12 vikna tímabil þar sem stór hluti þjóðarinnar mun leggjast í flensu í einu og samfélagið mun meira og minna hökta og lamast sem og heimurinn allur.
Þá er ekki tími til að vera í pólitísku karpi.
Ég skora því á Forseta Íslands að kalla forsætisráðherra þegar í stað til Bessastaða, fá hana til að skila stjórnarmyndunarumboði sínu og að því loknu skipi Forsetinn utanþingsráðherra til 6 mánaða, þar sem verkefnið væri annarsvegar að koma þjóðinni í gegnum flensuna og hins vegar að koma henni í gegnum efnahagshrunið og leggja línurnar fyrir enduruppbygginguna í samvinnu við Alþingi.
Hægt væri að miða við að hafa 3 ráðherra í efnahagsmálunum, atvinnuvega, viðskipta og fjármála og 4 ráðherra í flensumálunum, samgöngu, dómsmála, umhverfis og heilbrigðisráðherra. Hinir ráðherrarnir mega vinna hver fyrir sig.
Forsætisráðherra sinnti þeirri skyldu sem segir fyrir um í inflúensuáætluninni
Svo er hægt að mynda venjulega karpstjórn þegar búið er að samþykkja fjárlög.
Viðbúnaðarstig 5 vegna flensu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ef allt fer á versta veg varðandi inflúensuna, sem mun líklega gerast, þá verða umræður um stjórnmál hégómi einn í samanburði við það reiðarslag. Þá verður ekki spurt hvar í flokki menn eru. Góður punktur hjá þér Gestur.
Finnur Bárðarson, 30.4.2009 kl. 17:20
Nei nei,Gestur minn,fórstu öfugur framúr í morgun eða hvað,??? Þjóðstjórn,???Bilun,þá er nú allt annað munstur betra,en þjóðstjórn,ég er nú hissa á þér að heimta ekki Framsókn í stjórn,og sjálfstæðisflokkur og samfylking eigi að verja hana falli,HA HA HA HE HE HE,er þetta ekki betra,Gestur,??? Allavega getum við ekki treyst á samfylkinguna og vinstri græna,eina sem kemst inn í hausinn á þeim er,TAKTU EFTIR,forgangsmál þjóðarinn,að ganga í ESB.....þvílík og annað eins,þjóðin er komin í þrot,og þeir hugsa um ESB-sem forgangsmál,??þau er ekki í lagi,þess vegna getur þessi getulausa ríkisstjórn ekki tekið á veiru-málum,þá eru bara eftir framsóknarflokkur til að stjórna eða sjálfstæðisflokkur sem getur stjórnað með hjálp hinn ,Kær kveðja og gleðilegan 1 maí - dag. HA HA HA HE.
Jóhannes Guðnason, 30.4.2009 kl. 21:55
Stjórnvöldin hafa greinilega mikinn áhuga á að fá svínaflensuna hingað þar sem mér vitanlega eru alls engar hömlur á ferðalögum hingað. Orsök - afleiðing. Það þýðir ekkert að þykjast koma af fjöllum eftir á og kenna einhverjum sofandi sauðum á ofurlaunum í ónýtum atvinnugeymslum hins opinbera um ófarirnar.
WHO er komið með fimmta stig á flensuna sem þýðir í raun að þeir eru þegar búnir að ákveða að setja á sjötta og hæsta stigið sem er almennt neyðarástand á heimsvísu, herlög, efnahagsfrost, hrynjandi borgir, upplausn. Með tilliti til þess - ef og hvort osfrv. - er Gestur bara að benda á augljósa og nauðsynlega hluti.
Baldur Fjölnisson, 30.4.2009 kl. 22:55
Jamm og svín munu fljúga útsýnisflug yfir Reykjavík um hádegisbilið á morgun ....
Baldur Fjölnisson, 1.5.2009 kl. 00:21
Ríkisstjórnin þyrfti að taka afdrifaríkar ákvarðanir og þær verða að vera hafnar yfir pólítíkst argaþras.
Gestur Guðjónsson, 1.5.2009 kl. 09:59
Svínaflensan.
Læknast hún ekki bara sjálfkrafa með því að við göngum í ESB ?
Er ekki Yfir-heilbrigðis commízar ESB að útbúa sérstaka tilskipun gegn svínaflensuni !
Gunnlaugur I., 1.5.2009 kl. 10:15
Samfylkingin byggir nú málflutning sinn í sambandi við ESB að miklu leyti á landsþingssamþykkt Framsóknarflokksins um að sótt skuli um aðild að ESB.Jóhanna Sigurðardóttir minnist ekki á að sett voru skilyrði fyrir aðildinni.Mér finnst furðulegt hvað hinir nýju þingmenn Framsóknarflokksins eru þögulir nú þegar ESB umræðan er kominn á fullt.Eftir þær yfirlýsingar sem aðilar innan ESB hafa gefið út upp á síðkastið er ljóst að ekki förum við inn í ESB á forsendum Framsóknarflokksins.Framsóknarflokkurinn elti Samfylkinguna of lengi síðastliðinn vetur, en formaður flokksins tók loks af skarið á síðustu metrunum og bjargaði flokknum.Nú þarf hann að taka af skarið aftur og hafna túlkun Samfylkingarinnar á stefnu Framsóknarflokksins hvað varðar ESB.
Sigurgeir Jónsson, 1.5.2009 kl. 12:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.