Ráðlaus flokkur í vanda

Ögmundur hefur ekki treyst sér í að fylgja eftir þeim tillögum að niðurskurði sem lágu á borði Heilbrigðisráðherra og kynntar verða í dag og notar nú Icesave sem flóttaleið til að þurfa ekki að horfa í augun á eigin skjólstæðingum í BSRB.

Þetta er ekki eini vandi VG, því úrskurður Svandísar Svavarsdóttur um að setja línulagnir í heildstætt umhverfismat, gengur þvert á stöðugleikasáttmálann sem sú ríkisstjórn sem hún situr sjálf í hefur samþykkt.

Vandinn verður svo enn meiri þegar rennur upp fyrir verkalýðsfélögunum, einu af öðru, að þessi ríkisstjórn ætlar sér ekki eða getur ekki komið sér saman um aðgerðir til að tryggja atvinnu.

Þannig að ég skil Guðfríði Lilju vel að hafna því að taka sæti í slíkri ríkisstjórn.


mbl.is Guðfríður Lilja hafnaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Ólafur Vilhjálmsson

Nei það er ekki sat Ögmundur segir til u m hvernig á að vinna þessa samninga og ég er honum  100% sammála þingið á að taka þá yfir Steingrímur er umboðslaus í málinu og Hollendingar og Bretar eiga að segja honum það kurteislega við höfum ekkert við þig að  tala þú stendur ekki við orð þín og þér er ekki að treysta við viljum fá nefnd frá þinginu til að semja  við.

Jón Ólafur Vilhjálmsson, 1.10.2009 kl. 23:33

2 Smámynd: Sigurður Sveinsson

Það sjá það allir nema þú og Steingrímur J. að Ögmundur sagði ekki af sér vegna heilbrigðismálanna. Og af hverju heldurðu að Guðfríður Lilja hafi hafnað ráðherraembættinu? Hún er sammála Ögmundi í icesave málinu og vill ekki verða viðskila við sannfæringu sína frekar en Ögmundur. Vertu bara feginn að enn skuli til fólk í Vg sem stendur í lappirnar.

Sigurður Sveinsson, 2.10.2009 kl. 04:14

3 Smámynd: Páll A. Þorgeirsson

Furðuleg grein hjá þér.

Það væri nær að standa með þessum örfáu stjórnarliðum sem þora að standa gegn því að forystusauðirnir í stjórninni valti yfir þjóðina með "glórulausum" Icesave samningum.

Páll A. Þorgeirsson, 2.10.2009 kl. 09:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband