Virðing og virðingarleysi fyrir stjórnskipuninni

Forsætisráðherra og fjármálaráðherra lýsa því yfir að þau ætli ekki að kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Með því vanvirða þau þá stjórnarskrá og stjórnskipan sem þau sækja sjálf vald sitt í.

Kosningarétturinn er einn helgasti réttur hvers þegns og það er skylda allra sem hafa þann rétt að nýta hann, sama hvað þeir svo kjósa.

Það að nýta hann ekki er að samþykkja niðurstöðu meirihlutans, þannig að um leið og þau vanvirða þá stjórnarskrá sem þau hafa undirritað eiðstaf að, eru þau í raun að hafna þeim lögum sem þau hafa sjálf samþykkt á Alþingi.


mbl.is Ólafur Ragnar búinn að kjósa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Páll Blöndal

Hvaða bull er þetta í þér drengur?
"Kosningaréttur" nefnir þú það réttilega.
en það er ekki það sama og "kosningaskylda."

Það hafa allir rétt til að mæta ekki, mæta, kjósa, skila auðu eða gera ógilt.
ÞAÐ er lýðræði.
Lest þú eitthvað annað úr stjórnarskránni?

Páll Blöndal, 6.3.2010 kl. 12:03

2 Smámynd: Gestur Guðjónsson

Það er ekki lögfest skylda, en það er siðferðileg skylda að taka þátt í kosningum. Það að taka ekki þátt er ekki að taka þátt og gera í leiðinni lítið úr þessari aðferð til að ná fram vilja þjóðarinnar. Að skila auðu er allt annað.

Gestur Guðjónsson, 6.3.2010 kl. 12:46

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sammála Gestur.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 10.3.2010 kl. 00:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband