Frábært

Var að koma frá Hvalsnesi. Þeim tókst að losa Wilson Muuga talsvert fyrir háflóð og stefna inn til Hafnarfjarðar. Mikið rosalega hljóta þeir að vera þreyttir en sælir um borð. Til hamingju með vel unnið verk. Hitti slatta af þeim sem stóðu vaktina með mér í fjörunni og var gaman að upplifa þetta með þeim. Nú er það Samgönguráðherra að girða sig í brók og bæta Siglingalögin, þannig að ekki verði þessi réttaróvissa um svona mál. Umhverfisráðuneytið er löngu búinn með sinn hlut í því. Því lauk árið 2004 með setningu laga um verndun hafs og stranda, en Samgönguráðuneytið vildi ekki taka þátt í þeim undirbúningi.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband