Dómurinn er góður vitnisburður um störf lögreglunnar

Það er ekki hægt annað en að hella bílförmum af hrósi yfir lögregluna vegna Pólstjörnumálsins. Lögreglan undirbjó málið vel áður en hún lét til skarar skríða, aðgerðirnar gengu upp og gögn málsins greinilega þannig að sakborningarnir sáu að ekkert var hægt að gera annað en að játa.

Vonandi verður þetta til þess að fjárveitingavaldið sýni þessu þjóðþrifastarfi fullan skilning og skapi þeim sem best starfsumhverfi í baráttu þeirra við fíkniefnabölið um leið og farið verði af enn meiri krafti í forvarnir.


mbl.is Dæmt í Pólstjörnumálinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðar fréttir fyrir efnahagslífið

Yfirlýsing Geirs H Haarde er jákvæð og tímabær. Vonandi er hann að vakna af Þyrnirósarsvefninum og ætla að fara að koma skikki á yfirlýsingagleði ráðherra ríkisstjórnar sinnar, því þeir hafa verið að tala út og suður. Vonandi hefur hann einnig hlustað vel á viðskiptaþingi þegar hann var skammaður fyrir lausatök á ríkisfjármálunum og fer að vinna með Seðlabankanum en ekki á móti.

Batnandi mönnum er best að lifa.


mbl.is Mikilvægt að sýna samstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú þarf að standa við stóru orðin í auðlindamálum

Fyrir síðustu kosningar var gerð tilraun til að koma ákvæði um sameign þjóðarinnar á auðlindum í stjórnarskrá lýðveldisins.

Sjálfstæðisflokkurinn vildi þetta ekki, en gaf þó eftir, eftir að hafa náð að útvatna tillöguna talsvert.

Stjórnarandstaðan, Samfylkingin, Vinstri Grænir og Frjálslyndir, héldu blaðamannafund og buðust til að koma Framsókn til hjálpar í málinu. Hún heyktist á því, enda var ákvæðið ekki eins beitt og flokksþingssamþykkt Framsóknar mælti fyrir um.

Nú er frumvarp með því orðalagi komið fram og þá hljóta sjónir manna að beinast að þeim flokkum sem vildu styðja málið á sínum tíma. Ég er fyrirfram vonlaus um að Sjálfstæðisflokkurinn styðji málið, enda hefur hann unnið leynt og ljóst að því að koma öllum auðlindum í einkaeigu, sem ekki eru þegar komnar í eigu einkaaðila.

En spurningin er: Er Samfylkingin búin að selja sálu sína til Valhallar?


mbl.is Auðlindir í þjóðareign
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Orð dagsins...

...getur engin annar en Vilhjálmur Þ Vilhjálmsson átt, þegar hann sagði

"ég hef axlað mína ábyrgð"

og vísar þar til þess að Björn Ingi sleit óstarfhæfu meirihlutasamstarfi við hann og hann missti borgarstjórastólinn í fyrsta skiptið, eftir að hann "lenti" í REI málinu.

Þetta er líklegast í fyrsta skipti sem einhver lendir í því að axla ábyrgð.


Leiðréttingar ganga of skammt

Renndi lauslega yfir þessar breytingar á fæðingarorlofslögunum sem Jóhanna hefur lagt fram. Flest af því sem lagt er til er til bóta, enda getur gott lengi batnað og kerfið á að sjálfsögðu að fá að þróast. En eitt mesta óréttlætið er ekki leiðrétt. Fólk sem á börn með stuttu millibili verður nefnilega fyrir ósanngjarnri skerðingu, því ef greiðslur úr fæðingarorlofssjóði, sem eru 80% af heildarlaunum, falla innan viðmiðunartímabilsins fyrir seinna barnið fást bara 64% af heildarlaunum þess tímabils og svo koll af kolli.

Auðvitað á að miða við 100% af tekjum, sé greiðandinn Fæðingarorlofssjóður.

Í tíð Framsóknar var búið að koma þessu óréttlæti á framfæri og ég vissi ekki betur en að verið væri að undirbúa leiðréttingu á því á þeim tíma. Félagsmálaráðherra hefur því greinilega ákveðið að taka ekki tillit til þessa.

Viðbót kl 21:21

Hvað varð um kosningaloforð Samfylkingarinnar úr Unga Ísland?:

"4. Lengja fæðingarorlofið í eitt ár og tryggja börnum einstæðra foreldra sama rétt og öðrum börnum til samvista við foreldra. "

Hún ætti að hafa stuðning Sjálfstæðisflokksins sem ályktaði

"Sjálfstæðisflokkurinn stefnir að lengingu fæðingarorlofs. Gæta skal að því að ef aðeins einn aðili er með forsjá geti hann fengið fullt fæðingarorlof. "


mbl.is Leggur til breytingar á lögum um fæðingarorlof
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta frétt?

Mér hefði þótt það fréttnæmt ef það hefði verið haldið ball í Njálsbúð og það hefðu ekki brotist út slagsmál.

Í þau skipti sem við í Nemendaráði FSu héldum böll í Njálsbúð voru held ég alltaf einhverjir pústrar. Það eru að vísu nokkur ár síðan og kannski er þetta allt breytt núna...


mbl.is Handalögmál á þorrablóti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Orð dagsins...

...er lína borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins í fréttum RÚV í kvöld

"við styðjum Vilhjálm meðan hann er oddviti"

Við hverju má hann þá búast frá þeim ef hann skyldi hætta? Það er kannski ekki skrítið að hann skuli þurfa að fara vandlega yfir stöðu sína!


mbl.is Pólitísk staða Vilhjálms rædd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Árni Páll Árnason boðar verðbólgu eða atvinnuleysi

Það er eins og Samfylkingarmenn séu orðnir gersamlega vitfirrtir í trúboði sínu fyrir ESB aðild.

Að láta hafa eftir sér á opinberum vettvangi að krónan sé að kosta íslensk heimili 50-100 milljarða árlega án nokkurra fyrirvara er þvílík vitleysa að manni fallast bara hendur að fólk sem heldur þessu fram sé kosið á Alþingi.

Það getur vel verið að munurinn á vaxtagreiðslum ef evruvextir væru á Íslandi sé eitthvað af þessari stærðargráðu, en það sem hann segir ekki og verður að segja um leið er, að ef vextirnir væru ekki þetta háir væri verðbólgan mun hærri á Íslandi eða þá atvinnuleysið. Kostnaður heimilanna vegna verðbólgu væri örugglega af svipuðum stærðargráðum eða dýrari ef vextirnir hefðu verið svipaðir á Íslandi og á evrusvæðinu og ef reynt væri að ná sömu hagstjórnaráhrifum án verðbólgu getur það ekki kostað annað en atvinnuleysi með þeim hörmungum sem það hefur í för með sér fyrir allt og alla.

Það er nefnilega ekki af illgirni sem stýrivextir Seðlabankans eru svona háir. Það hefur verið mikil þensla og vöxtur í íslenska hagkerfinu, sem flestir ef ekki allir hafa notið góðs af og til að verðbólgan fari ekki alveg úr böndunum þarf háa stýrivexti. Ef hagvöxturinn hefði verið minni, væru vextirnir einnig lægri, en um leið myndi kaupmáttaraukning heimilanna einnig stöðvast eða glatast.

Svo virðist sem Jón Sigurðsson, kratinn þeas, hafi ekki komið þessu á kennsluskrána í stjórnmálaskóla Samfylkingarinnar, þrátt fyrir að hafa gefið út að mörgu leiti ágæta kennslubók um efnið. Það er virkilega slæmt.

Þegar íslenska hagkerfið hefur náð jafnvægi, eru fyrst forsendur til að spá í peningastefnu þjóðarinnar. Á forsendum okkar eigin metnaðar og hagsmuna. Þar verður að taka tillit til margra þátta.

Hvort niðurstaðan verði upptaka Evru með eða án inngöngu, einhver tenging við Evru eða einhvern annan gjaldmiðil eða myntkörfu verður fyrst tímabært að leita svara við þá, en því lengur sem ríkisstjórnin gerir ekki neitt til að hjálpa Seðlabankanum, því lengra líður þangað til að það verði hægt. Þannig má segja að ríkisstjórn Árna Páls sé sífellt að fjarlægjast ESB aðild með framferði sínu.


Skipaflotinn undir loftslagssamninga - val um pest eða kóleru

Eðlilega beina menn einnig sjónum sínum að skipum í tengslum við losun gróðurhúsalofttegunda. Þar þarf að taka flóknar og erfiðar ákvarðanir um hvert beri að stefna.

Vísustu menn eru farnir undirbúa sig fyrir þetta. Skip eru í notkun mun lengur en bílar og kröfur miðaðar við byggingatíma, svo þær breytingar á kröfum sem gerðar yrðu í náinni framtíð munu fyrst slá almennilega í gegn að þónokkrum árum liðnum.

Sat ráðstefnu um daginn þar sem málið var rætt. Voru fyrirlesararnir sammála um að lausn skipabransans á útblástursvandamálum sé nánast aðeins ein ef stór skip sem fara á milli heimsálfanna þurfa að hætta á olíu. Kjarnorka.

Olían og kjarnorkan eru nefnilega þeir orkuberar sem hafa lang hæsta orkuþéttleikann, því plássið um borð í skipunum er afar dýrmætt. Gastegundir eins og vetni koma ekki til greina af þeim sökum. Valið stendur sem sagt milli pestar og kóleru.

Hafandi hlustað á þetta, verð ég að segja að maður vildi óska sér að skipin fengju að vera áfram á olíu, þangað til að hægt verður að framleiða lífdísel á það hagkvæman hátt að það komi til greina.


Orð dagsins...

...á Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi, þegar hann sagði aðspurður um pólitíska stöðu Vilhjálms Þ Vilhjálmssonar í sjónvarpsfréttunum áðan:

"Ég held að hún sé sterk"

Er þetta hin fullkomna afneitun?


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband