Vill Hafró ekki finna loðnuna?
20.2.2008 | 14:06
Rakst á eftirfarandi frásögn af miðunum
"Það er alveg merkilegt með það að þegar skipstjórar eru að hringja í þá og segja þeim frá miklu magni af loðnu þá segja þeir að þeir séu búnir að mæla þetta og hafi verið þarna. Hvað heldur hafró að loðna sé???? þetta er ekki eins og að fara út í karteflugarð og taka upp. Jú loðna hefur víst synt í mörg mörg ár. Það er alveg magnað að þeir sem eru að veiða loðnu eru að rembast eins og þeir geta að fylgja þessu eftir svo að þetta hverfi ekki. En hafró fer í land og kemur ekki á miðinn í marga daga. svo frétta þeir af loðnu á sama stað og þeir sáu fyrir eitthverjum dögum og segja. Já við erum búnir að mæla þetta. "
Slæmt ef satt er.
![]() |
Tekjutap upp á 7-8 milljarða verði loðnuveiðum hætt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ómakleg árás Össurar á Gísla Martein
20.2.2008 | 10:58
Síðastliðna nótt sat maður við tölvuna sína á Vesturgötunni og skrifaði:
"Hvað lá eftir Gísla Martein þegar kom að atburðarrásinni kringum REI? Ekkert, nema hræin af mávunum sem hann lét embættismenn skjóta og stillti sér svo upp hjá einsog Rambó sjálfur."
Hver skrifar svo? Jú, sá maður sem gegnir því embætti sem samflokksmenn hans kalla "hinn umhverfisráðherrann". Reyndar hefur hann einnig gegnt hinu eiginlega umhverfisráðherraembætti, svo maður skyldi ætla að hann hefði áhuga á málaflokknum og jafnvel einhverja innsýn eða í það minnsta yfirborðsþekkingu.
En nei. Ég sat með Gísla Marteini í fyrsta meirihluta umhverfisráðs þessa kjörtímabils og mér er til efs að nokkur meirihluti hafi náð að gera jafn mikið á jafn stuttum tíma í umhverfismálum og sá meirihluti sem Gísli Marteinn var í forsvari fyrir og leiddi af miklum áhuga.
Grænu skrefin mörkuðu rammann um þær aðgerðir sem við fórum í. Mikið af þeim var þegar kominn í framkvæmd þegar meirihlutinn sprakk. Það er eftirsjá af þessu ráði fyrir umhverfið.
Menn verða að vera sanngjarnir og það voru samflokksmenn Össurar í minnihluta ráðsins. Sem dæmi studdi minnihlutinn grænu skrefin og fagnaði þeim. Gísli stýrði vinnu umhverfisráðs með þeim hætti að starfsáætlun ráðsins var samþykkt af öllum nefndarmönnum. Er það einsdæmi og til mikillar eftirbreytni.
Hafandi sagt þetta verður að sjálfsögðu að vara við öskrandi hægrimennskunni í Gísla Marteini. Menn þurfa ávallt að vera á varðbergi gagnvart henni, því hún skýst upp í tíma og ótíma. Það gerðum við, fulltrúar Framsóknar í ráðinu.
Hvernig einstökum borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins reiðir svo af í gjörningaveðrinu núna veit ég ekki. Þar ráða tilviljanir örugglega miklu, en pólitískir andstæðingar verða að vera sanngjarnir. Það er Össur ekki í þessari færslu sinni og ber skömm fyrir.