Engar nýjar fréttir um olíuhreinsunarstöð
1.4.2008 | 19:06
Enn og aftur er umfjöllunin um hugsanlega olíuhreinsunarstöð á Vestfjörðum á villigötum eins og ég skrifaði um fyrir stuttu.
Hún hefur að megninu til snúist um hlut sem er ekki einu sinni til umræðu. Hvort losunarheimildir séu til staðar fyrir hreinsistöðina. Þær eru ekki til. Það liggur fyrir og ráðherra hefur enn og aftur staðfest það. Ef byggð yrði olíuhreinsunarstöð myndi framkvæmdaaðilinn, sem líklegast væri að leggja niður hreinsistöð af svipaðri stærð, þurfa að koma með losunarkvóta með sér.
Umræðan um umhverfisáhrif olíuhreinsistöðvar á að fjalla um önnur atriði, þá aðallega siglingarnar og þá auka áhættu sem siglingin inn að hreinsistöðinni hefur í för með sér, en einnig losun rokgjarnra efna, svifryks og fastra efna og meðhöndlun þeirra.
Losunarkvótar eru mál rekstraraðilans, ekki ríkisins.
Olíuhreinsistöð rúmast ekki innan losunarheimilda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Nýjustu færslur
- Sala Landsvirkjunnar kemur ekki til greina
- Fylgi Bjartrar framtíðar
- Vinnulag við fjárlagagerð
- Landsbyggðaskattur
- Verðbólguleiðin?
- Blindir og vanhæfir gullkálfsdansarar
- Hver verða eftirmál þingsályktunartillögunnar?
- Hengjum ekki bakara fyrir smið
- Rangtúlkun Jóhönnu og Samfylkingarinnar á Rannsóknarnefndarsk...
- Furðulegar nornaveiðar í gúrkutíð
Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Bloggvinir
- Agnes Ásta
- Albertína Friðbjörg
- Björn Ingi Hrafnsson
- Dofri Hermannsson
- Fanný Guðbjörg Jónsdóttir
- Framsóknarflokkurinn
- Guðmundur Ragnar Björnsson
- Gunnlaugur Stefánsson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Helga Sigrún Harðardóttir
- Hlini Melsteð Jóngeirsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Jónas Yngvi Ásgrímsson
- Jónína Brynjólfsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigurður G. Tómasson
- Snæþór Sigurbjörn Halldórsson
- Sóley Tómasdóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Svava Halldóra Friðgeirsdóttir
- Sveinn Hjörtur
- Valdimar Sigurjónsson
- Guttormur
- Sigurður Ellert Sigurjónsson
- Agnar Bragi
- Anna Kristinsdóttir
- Ari Jósepsson
- Arinbjörn Kúld
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Ármann Kr. Ólafsson
- Áslaug Friðriksdóttir
- Ásta
- Baldur Fjölnisson
- Baldur Sigurðarson
- Bergur Sigurðsson
- Bergþór Skúlason
- Birgitta Jónsdóttir
- Birkir Jón Jónsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Björgmundur Örn Guðmundsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bwahahaha...
- Daði Einarsson
- Egill Jóhannsson
- Einar Björn Bjarnason
- Einar Kristinn Guðfinnsson
- Einar Sigurbergur Arason
- Einar Vilhjálmsson
- Einar Þór Strand
- Eiríkur Harðarson
- ESB
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Eysteinn Jónsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- FUF í Reykjavík
- Gísli Tryggvason
- Greta Björg Úlfsdóttir
- Guðmundur Andri Skúlason
- Guðmundur Magnússon
- Guðmundur St Ragnarsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Gunnar Aron Ólason
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnar Rögnvaldsson
- Gústaf Níelsson
- Halldór Borgþórsson
- Hallur Magnússon
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Heiðar Lind Hansson
- Heimir Eyvindarson
- Heimir Tómasson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Hermann Einarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Himmalingur
- hreinsamviska
- Hrólfur Guðmundsson
- Indriði Haukur Þorláksson
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Jakob Falur Kristinsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Jakob Þór Haraldsson
- Jóhannes Guðnason
- Jóhannes Snævar Haraldsson
- Jóhann Pétur Pétursson
- Jóhann Tryggvi Sigurðsson
- Jón Aðalsteinn Jónsson
- Jónas Egilsson
- Jón Axel Ólafsson
- Jón Baldur Lorange
- Jón Finnbogason
- Jón Ólafur Vilhjálmsson
- Jón Snæbjörnsson
- Júlíus Brjánsson
- Karl Hreiðarsson
- Karl V. Matthíasson
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristín Helga Guðmundsdóttir
- Landvernd
- maddaman
- Magnús Guðjónsson
- Magnús Þór Friðriksson
- Marteinn Magnússon
- Morgunblaðið
- Oddur Helgi Halldórsson
- Ólafur Fr Mixa
- Ómar Ragnarsson
- Óskar Arnórsson
- Páll Gröndal
- Páll Vilhjálmsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ritstjóri
- Samband ungra framsóknarmanna
- S. Einar Sigurðsson
- Sigurður Árnason
- Sigurður Fannar Guðmundsson
- Sigurður Ingi Jóhannsson
- Sigurður Jónsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Viktor Úlfarsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Stefán Bogi Sveinsson
- Steinn Hafliðason
- Sædís Ósk Harðardóttir
- Sævar Helgason
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Vefritid
- viddi
- Þórólfur S. Finnsson
- Þór Saari
- Þráinn Jökull Elísson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Vestfirðingar geta að sjálfsögðu reiknað sér losunarkvóta, og miðað hann hlutfallslega við stærð Vestfjarða sem hlutfall, af stærð íslands.Orkuna geta þeir fengið hjá Húnvetningum sem hafa Blönduvirkjun.Nú eða virkjað sjálfir í Ófeigsfirði.Fólki sem býr á og kringum Seltjarnarnesið kemur ekkert við hvað Vestfirðingar gera.Það hlýtur að fara að koma að því að fólk á landsbyggðinni rísi upp gegn frekju og yfirgangi,skrílsins og snobbliðsins á tjarnarbakkanum sem er búinn að setja landið á hausinn.
Sigurgeir Jónsson, 1.4.2008 kl. 21:02
Gestur þú ætti að vera það vel upplýstur um rekstur olíuhreinsunarstöðvar, og vita það mæta vel að engar forsendur eru fyrir rekstri hennar, vitandi það að einungis fullkomnustu og best búnu olíuhreinsunarstöðvar heimsis og þær er liggja að markaðnum eru rekstarhæfar. Þú ættir frekar að upplýsa hversu langt er síðan byggð hefur verið ný olíuhreinsunarstöð í US, og segja hversvegna svo sé.
Það er ljótt að vera blekkja fólk um væntanlega uppbyggingu, er allir sem til þekkja vita að enginn forsenda er fyrir fyrirtækinu. Það að vera mala um losunarkvóta, og því um síkt er bara blaður er engum kemur við.
haraldurhar, 1.4.2008 kl. 23:25
Sigurgeir. Lögin um úthlutun losunarheimilda gera ekki ráð fyrir slíku. Það eru rök í almennri umræðu, réttlætisrök.
Haraldur. Ég veit ekki til þess að það hafi verið byggðar hreinsistöðvar lengi í US í þeim skilningi sem ég tel þig vera að vísa til, þeas ný starfsemi á nýjum stað.
Reyndar er alltaf spurning hvað menn kalla byggingu nýrrar stöðvar, því stöðugt er verið að endurnýja og endurbæta þær hreinsistöðvar sem fyrir eru. Í Evrópu voru settar kröfur um brennisteinshreinsun sem kipptu fótunum undan fjölda gamalla hreinsistöðva. Hinar sem eftir standa hafa þurft að standa í mikilli endurbyggingu til að geta uppfyllt þessar kröfur. Á meðan hefur verið framleiðsluskortur á olíumarkaði og skýrir, auk aukinnar notkunar Kínverja og Indverja, hækkun olíuverðsins.
Þegar búið verður að auka framleiðslugetu hreinsistöðvanna skulum við vona að verðhækkunin hætti í það minnsta og við sjáum einhverjar lækkanir. Það er þessi staðreynd sem knýr þetta verkefni áfram að mínu mati, þótt ég sjá Húsavík, með nálægðina við gufuna og minni íshættu sem vænlegri stað, eigi að vera hreinsistöð á Íslandi.
Gestur Guðjónsson, 2.4.2008 kl. 09:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.