Meðfylgjandi bréf sendi ég borgarstjóra í pósti áðan

Reykjavík 2. apríl 2008

Borgarstjóri Reykjavíkur

Hr Ólafur F Magnússon

Ráðhúsi Reykjavíkur

150 Reykjavík

 

Varðandi: Ábyrgð mina á ástandinu í miðborginni

Ágæti borgarstjóri,

Í sjónvarpsfréttum RÚV ohf  þann 31. mars 2008 báruð þér mig og aðra Framsóknarmenn þungum sökum.

Hélduð þér því fram að framsóknarmenn beri ábyrgð á því hvernig fyrir miðborginni er komið.með því að draga taum og hygla verktökum og peningamönnum sem eru að láta miðborg Reykjavíkur drabbast niður.

Aðspurður á borgarstjórnarfundi í gær, þann 1. apríl, lýstuð þér því yfir að þér væruð ekki að visa til Óskars Bergssonar, borgarfulltrúa Framsóknarflokksins með yfirlýsingum yðar.

Meðan þér skýrið ekki mál yðar betur get ég sem framsóknarmaður ekki annað en talið að þér séuð að bera mig þessum sökum. Tel ég það alvarlega árás gegn æru minni, sem er varin að lögum gegn ósönnum ávirðingum.

Óska ég því eftir nánari útskýringum frá yður, hvaða verktökum og peningamönnum, sérhagsmunahópum og flokksmönnum ég hafi verið að hygla og á hvaða hátt ég hafi getað gert það, svo ég geti metið stöðu mína í framhaldinu.

 

Með vinsemd og virðingu,

 

Gestur Guðjónsson

Grettisgötu 67

101 Reykjavík


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Theódór Norðkvist

Láttu endilega vita hverju Ólafur F. svarar. Ef hann svarar ekki, tilkynntu það þá á blogginu hjá þér.

Theódór Norðkvist, 3.4.2008 kl. 00:28

2 Smámynd: Hermann Einarsson

Sæll Gestur.

gott framtak hjá þér og leyfðu okkur að vita hver svör borgarstjóra verða.

Það er með ólíkindum hvað blessaður maðurinn er stöðugt með allt niður um sig, kanski er búið að "blörra" hann of mikið í Spaugstofunni hver veit?

Hermann Einarsson, 3.4.2008 kl. 13:00

3 Smámynd: Theódór Norðkvist

Góðan daginn. Ég hef verið ráðinn blaðurfulltrúi Ólafs F. og hann bað mig um að koma þessum skilaboðum á framfæri:

Þessar spurningar og allar aðrar spurningar til mín eru óviðeigandi!

Theódór Norðkvist, 3.4.2008 kl. 14:24

4 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Úfff...mikið er á framsóknarmenn lagt.....nú er spurning hvað Hallur segir, hringurinn þrengist.

Haraldur Bjarnason, 3.4.2008 kl. 14:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband