Getur ríkisstjórnin enn talað um meinta kreppu?

Það að setja neyðarlög með afbrigðum er vísbending um eitt.

Ástandið er verra en okkur hefur verið sagt hingað til.

Hvað er þá að marka þá fullyrðingu Jóhönnu Sigurðardóttur um að ríkisstjórnin hafi gert nóg fyrir fjölskyldurnar í landinu ef frumvörp hennar verða samþykkt?

Við erum því miður að horfa á raunverulega hættu á algeru kerfishruni vegna aðgerðarleysis minnihlutastjórnar sem stofnað var til með stuðningi Framsóknar með því fyrirheiti að fara ætti í róttækar aðgerðir til að slá skjaldborg um heimilin og fyrirtækin í landinu.

Ekkert slíkt hefur enn komið fram úr þeim herbúðum og tillögur annarra til að hefur verið tekið fálega, án rökstuðnings, bara útúrsnúningi. Slíkt er ábyrgðarhluti og er Jóhanna fallin af þeim háa stalli sem ég taldi hana vera á.


mbl.is Gjaldeyrisfrumvarp að lögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Pétur Pétursson

Þetta er bara að byrja. Vandi heimilanna og fyrirtækjanna í landinu er algerlega óleystur. Mjög mörg fyrirtæki og yfir 15 þúsund heimili í landinu eru gjaldþrota og aðgerðarleysi og ráðaleysi ríkisstjórnarinnar er algert.

Það má segja að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur með stuðningi Framsóknarflokksins hafi tekist eitt, að breyta mjög slæmu ástandi í verra. Ég segi það og ég stend við það, við höfum ekki efni á þessari vinstri stjórn mikið lengur, ekki nema að við viljum horfa á allsherjar gjaldþrot. Ef að það gjaldþrot verður þá verður það ekki hermt upp á Sjálfstæðisflokkinn heldur Samfylkinguna, Vinstri Græna og Framsóknarflokkinn. Ég vona bara þessara flokka vegna að fjölda gjaldþrot heimila og fyrirtækja frestist fram á sumar eða haust, þannig að þeir komist nú í gegnum kosningarnar. 

Jóhann Pétur Pétursson, 1.4.2009 kl. 11:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband