Samfylkingin fer framúr sjálfri sér í ESB málum

Sigmundur Davíð hefur allar ástæður til að vera á varðbergi gagnvart Evrópusambandsaðildarumsóknarþingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar.

Ályktunin sjálf, sem er hinn bindandi texti, er algerlega opinn tékki fyrir Samfylkinguna að haga málum og standa að samningaviðræðum eins og hana lystir.

Greinargerðin er að mörgu leiti ágæt, væri hún inni í ályktuninni sjálfri en lýsingin á samningaferlinu sjálfu er alls ekki nægjanlega skýrt.

Ályktun Framsóknar var mun betur unnin en þessi ályktun, þar voru sett fram eðlileg og raunhæf skilyrði og í greinargerð með henni var samningsferlið listað upp á mun nákvæmari hátt.

"Viðræðuferlið á að vera opið og lýðræðislegt og skal íslenska þjóðin taka afstöðu til aðildarsamnings í þjóðaratkvæðagreiðslu í kjölfar upplýstrar umræðu. Framkvæmdin gæti verið  með eftirfarandi hætti:

  • Alþingi feli sérstakri þingnefnd, Evrópunefnd, yfirumsjón með öllu viðræðuferlinu.
  • Í víðtækri samvinnu við hagsmunaaðila undirbúi Evrópunefndin aðildarviðræður, þar sem þeir grundvallarhagsmunir sem gæta þarf að eru skilgreindir. Nefndarfundir Evrópunefndar skulu vera opnir þegar samningsmarkmiðin eru mótuð og skal hagsmunaaðilum gefinn kostur á að koma oftar en einu sinni fyrir nefndina.
  • Alþingi álykti að hefja beri aðildarviðræður við Evrópusambandinu og feli samninganefnd umboð til að sækja um á grundvelli skýrra og vel skilgreindra samningsmarkmiða og að niðurstaðan verði borin undir þjóðaratkvæði, þar sem einfaldur meirihluti ráði.
  • Áður en viðræður hefjast verði sett auðlindaákvæði í Stjórnarskrá Íslands eða sérstök lög um sameign íslensku þjóðarinnar á auðlindum í þjóðlendum og á auðlindum í og undir hafinu, þ.m.t. fiskveiðiauðlindinni.
  • Áður en samningur yrði borinn undir þjóðaratkvæði, þarf að vera búið að breyta Stjórnarskrá Íslands þannig að lögmæti inngöngu í Evrópusambandið og þátttaka í annarri alþjóðasamvinnu sé hafin yfir allan vafa. Hugmynd að þeirri breytingu fylgir hér á eftir.
  • Ef samningar nást á grundvelli þess umboðs sem samninganefndinni var veitt, skal fara fram greining á einstökum hlutum samningsins af amk tveimur óháðum aðilum.
  • Ef niðurstaðan er ekki í samræmi við umboð og samningsmarkmið samninganefndarinnar skal Alþingi taka sérstaka ákvörðun um hvort þau samningsdrög verði undirrituð og borin undir þjóðina.
  • Niðurstöður þeirrar greiningar skulu teknar saman, birtar og kynntar almenningi á netinu, í skýrsluformi og með kynningarþáttum.
  • Stuðlað verði að opinni lýðræðislegri umræðu þar sem öll sjónarmið fái að heyrast.
  • Að aflokinni kynningu, þó ekki seinna en 3 mánuðum eftir að samningaviðræðum er lokið, skal halda þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort Ísland gangi inn í Evrópusambandið á grundvelli þess samnings sem kynntur hefur verið."

Mér þykir með ólíkindum að Samfylkingin, sem hefur að mörgu leiti verið einsmálsflokkur um ESB aðild, skuli virkilega ekki vera betur undir málið búin.

Ályktunin eins og hún er lögð fram er í raun ósk til Alþingis um að nú eigi fyrst að fara að vinna heimavinnuna. Það heitir að fara framúr sjálfum sér sem kann ekki góðri lukku að stýra.

Ég teldi það ferli sem Framsókn hefur lagt til mun affarasælla


mbl.is Lítið um rök fyrir umsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Páll Vilhjálmsson

Samfylkingin er ekki betur undirbúin vegna þess að flokkurinn hefur notað ESB sem skálkaskjól. Í stað efnislegrar stjórnmálaumræðu hefur Samfylkingin stundað áróðurspólitík og þar drjúg upphrópunin að Evrópusambandið bjargi öllum málum okkar.

Páll Vilhjálmsson, 15.5.2009 kl. 00:13

2 Smámynd: Ólafur Ingólfsson

Eigum við ekki að vona að stjórnmálamennirnir nái sameiginlegri niðurstöðu í því hvernig skuli staðið að málinu, en leggist ekki í þras um smáatriði. Sjálfstæðisflokkurinn ætlar sér að vera stikkfrí, móðgaðir við kjósendur yfir útreiðinni í kosningunum og gjörsamlega vanhæfir um skynsamlega stefnumótun vegna innri klofnings í málinu. VG er á leiðinni ofaní skotgrafirnar, og helstu andstæðingar ESB viðræðna í hópi þingliða eru með heitstrengingar um blóðbað í umræðunni. Það verður á ábyrgð Samfylkingar, Framsóknar og Borgarahreyfingarinnar að standa að þessu máli þannig að víðtæk sátt verði um ferlið.

Ólafur Ingólfsson, 15.5.2009 kl. 09:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband